Vikan - 24.06.1965, Blaðsíða 41
Vandengraf færði drottning-
arriddarann og tók peð af borð-
inu. Halden ýtti drottningunni
sinni áfram með skjálfandi fingr-
um; hendur hans skulfu svo ákaf-
lega, að hann sló um koll tvo
eða þrjá taflmenn, og varð að
beygja sig eftir þeim og setja
þá á sinn stað aftur. Vandengraf
blístraði Danse Macabre eftir
Saint-Saéns.
— Hættið að blístra maður!
sagði Halden reiðilega. — Eða
ef þér þurfið að blístra, blístrið
þá eitthvað annað lag. Vanden-
graf hallaði sér aftur á bak í
kojunni sinni og hélt áfram að
blístra, beint framan í Halden.
— ímyndið ykkur mig, Alex-
ander Vandengraf alias Blotzky
huglesara að starfi, sem á gamal-
aldri kemst skyndilega að þeirri
staðreynd, að hann getur í raun
og veru lesið hugi annarra! sagði
hann eftir að hafa lokið við lag-
ið með dúllu. — Það hlýtur að
vera skapið og andrúmsloftið í
þessarri höfn sem hefur kallað
það fram í mér. Það er einhver
elektrómagnitísk spenna í loft-
inu, í sambandi við þrumuveðr-
ið. ég get lesið hugi. Úr því ég
get lesið flókinn, slunginn, mein-
gallaðan huga eins og yðar, Myn-
heer, ætti að vera barnaleikur að
lesa hina einföldu hugi meðal-
mannanna.
Framhald í næsta blaði.
FangaráS
í flutningalest
Framhald af bls. 17.
Við erum Þióðverjar. Ef ég þarf
að segja eitthvað, þó segi ég það
á þýzkri ensku. En þv( aðeins að
það sé óhjákvæmilegt.
_ Við finnum hann aldrei, ef þeir
hafa ákveðið að fela hann, sagði
Hedley ofursti. — Það þarf heila
herdeild til að leita almennilega í
þessu kanínubúri.
Þeir sáu engan niðri ( þorpinu
nema lítinn dreng, sem lék sér á
götunni. Hann reis á fætur og fór
burt, þegar mennirnir þrír nálguð-
ust.
— Ætli hann hafi ekki verið á
verði, sagði Ryan. — Við skulum
sjá hvert hann fer.
Þeir fylgdu drengnum eftir. Allt
í einu leit hann um öxl og hent-
ist í gegnum opnar dyr.
_ Komið! hrópaði Ryan og tók
til fótanna.
Hann þaut að dyrunum, sem
drengurinn hafði horfið í gegnum,
sparkaði þeim upp og hentist inn
með hríðskotabyssuna reidda.
Drengurinn sast hvergi. Eini mað-
urinn í herberginu var sá gamli,
sem hafði verið í fararbroddi fyr-
ir þeim hópi þorpsbúa, sem heim-
sótti lestina. Hann hallaði sér aft-
urábak í armstól og horfði æðru-
laust á Ryan.
Ryan beindi hríðskotabyssunni
að þeim gamla og benti Costanzo
Hvepflsgölu 82 - Sfmí 2117S
HRINGBORÐ
MEÐ EINUM
FÆTI EÐA
ÞREM FÖTUM
FERKÖNTUÐ
BORÐ OG
SÖFABORÐ
BARNAKOLLAR
húsgögn
i eldtiús
að stíga fram. Sá gamli hristi höf-
uðið, þegar Costanzo spurði hann.
Ryan greip fyrir bringspalirnar á
honum og rykkti honum upp úr
stólnum.
— Der fangann! sagði hann
hörkulega.
Sá gamli beit saman vörunum.
Ryan skók hann til. — Der fangann!
Costanzo kom við öxl Ryans og
gaf honum til kynna, að hann vildi
tala við hann. Ryan bölvaði og
skellti þeim gamla frá sér á stólinn,
sem hrökk í sundur, svo gamling-
inn lá í brakinu á gólfinu. Gömul
kona kom þjótandi út úr öðru her-
bergi og kastaði sér grátandi á
gólfið við hlið þess gamla. Hann
sagði eitthvað við hana, og hún
þagnaði.
— Jafnvel þótt hann viti hvar
Bostick er, segir hann okkur það
ekki, sagði Costanzo. — Fyrr lætur
hann drepa sig.
Gamla konan, sem hélt að nú
væri komið hennar skapadægur,
reri fram og aftur og kjökraði há-
stöfum. Sá gamli sagði eitthvað
með reiðilegri rödd, og hún þagn-
aði aftur.
— Við leitum um allt húsið, sagði
Ryan. — Það er varla um marga
staði að ræða, þar sem hægt er
að fela risa á borð við Bostick (
þessu húsi.
Hann skildi Costanzo eftir á verði
yfir gömlu hjónunum og stökk í
gegnum húsið ásamt Hedley, spark-
aði um húsgögnum og leit undir
rúmin. Þeir fundu engan felustað,
sem var nógu stór fyrir karlmann,
varla heldur nokkurn á stærð við
drenginn, sem stokkið hafði inn á
undan þeim, en sem greinilega var
heldur ekki í húsinu. En hann fann
opinn glugga á bakhlið hússins.
— Heinz! hrópaði Ryan. — Kom
her.
Constanzo kom þjótandi.
— Hann hefur forðað sér út í
gegnum þennan glugga, sagði
Ryan. — Komið með.
Þeir klöngruðust út og voru þá (
litlum, daunillum garði, sem lá
milli tveggja raða af hrörlegum
húsum. Allar dyr og gluggar voru
aftur og þeir sáu engin merki um
mannabyggð önnur en þau að
gluggatjald í glugga á annarri hæð
í einu húsanna bærðist eins og ein-
hver stæði fyrir aftan það og horfði
niður í garðinn.
— Reynið þarna, sagði Ryan og
benti á húsið
Aður en Costanzo og Hedley
náðu að hlýða, heyrðu þeir blístrað
VIKAV 25. tbl.