Vikan

Tölublað

Vikan - 24.06.1965, Blaðsíða 47

Vikan - 24.06.1965, Blaðsíða 47
SAUMIÐ YKKUR EINFALDA OG AUÐSAUM- AÐA SUMARKJÓLA, NOTIÐ SNYRTIVÖRUR, SEM ÞOLA VATN OG SÓL, OG LÍTIÐ VEL ÚT ÁSUMARMYNDUNUM. upp við hvítan eða svartan bakgrunn. Mikið munstruð föt eru oft falleg við sjó eða sand, því að alltaf er fallegast, að manneskjan sé aðalatriðið ó myndinni, sé hún þar ó annað borð. Þó getur oft verið fallegt að hafa fólk í bakgrunni, þegar verið er að taka mynd af landslagi, því að það gefur myndinni meira líf. Vilji maður lóta taka mynd af sér frammi fyrir einhverri byggingu, er bezt að standa í töluverðri fjarlægð fró henni, lóta stilla myndavélina ó sjólfa sig, en hafa bygginguna aðeins sem bakgrunn. Margir eru í vandræðum með hendurnar, þegar myndir eru teknar, en þó er um að gera að halda ó einhverju. Það er ekki rétt að snúa beint að Ijósmyndavélinni, þegar myndir eru tekn- ar í líkamsstærð. Flestir, ef ekki allir, sýnast mjög breiðir ó þann hótt, og það er því um að gera að líkaminn snúi aðeins ó skó að vélinni. Það er líka stíft og ónóttúrlegt að einblína inn í vélina, miklu betra er að horfa eitthvað annað. Eigi að horfa beint fram, ó að horfa ó Ijós- myndarann, en ekki í Ijósopið. Ljósmyndarinn verður að stilla Ijósmælinn við andlit þeirrar, sem hann er að taka mynd af — fötin geta sýnt allt aðra birtu. Fólk, sem myndast illa, ætti að athuga gaumgæfilega í spegli beztu hliðar andlits síns og gera sér far um að snúa þeim að Ijósmyndaranum. Þó mó slík stelling ekki verða of stíf, því að þar er einmitt aðalhættan fólg- in. Beztu myndirnar fóst, þegar fólk er alveg afslappað og nóttúrlegt. SNIÐ FYRIR HEKLAÐAN KJÓL Þennan fallega kjól má hekla úr frem- ur fínu garni og meö livaöa munstri, sem. vill. Búiö til sniöin eftir uppgefnum mál- um skýringarmyndanna, og sníöiö úr ódýrri grisju eöa úr gamalli flík. ÞrœÖ- iö saman og mátiö, geriö breytingar, ef meö ftarf. Takiö þrœöingarnar úr, og hekliö eftir stykkjunum. Byrjiö neöst, og vissara er aö hekla Framhald á bls. 48. JN * - 9 -L*’— 20 — 22 --------36-----UlO- i, -—37 ■ » 0 42 — j.'«AMSTYKKI. AFTUHSTYKKI. EFNISBRSIDD.9 o SH■ -13—*-10X jr ^To J —15 — 1 * 1 ; M X 10 g £ 8 —■ 21 m m SÓLFÖT EINS OG TAHITISTOLKUR NOTA, GETA ALVEG EINS GENGIÐ [ NAUTHÓLSVÍK Efni: 1,60 m. af 90 sm. breiöu skáröndóttu bómullarefni. Búiö til sniöin eftir uppgefnum málurn skýringarmyndanna og klippiö sniöiö og saumiö eins og bómullarkjóllinn. Hafiö 2 sm. í mittissaum og gangiö frá eins og faldinum á röndótta bóm- ullarkjólnum. Sníöiö pilsiö úr efnisbreiddinni aö ofan og í þeirri sídd sem œskileg er. Faldiö pilsiö á hliöunum meö mjóum faldi og 5—6 sm. faldi aö neöan. Hnýtiö pilsiö saman á annarri hliöinni. Snyrting sem þolir sól og Nú er aðal sumarleyf- istíminn að hefjast, og margar konur hafa efa- laust áhyggjur af því, hvernig þær geti hald- ið við snyrtilegu útliti og vandaðri málningu, þegar þær fara að stunda sjóböð og sól- böð. Margir mundu kannski vilja halda því fram, að undir þeim kringumstæðum eigi konur að sleppa öllu tilhaldi og vera sem eðlilegastar, brúnar og hraustlegar. En það tekur sinn tíma að ná brúna litnum, og marg- ar konur kunna ekki við sig án einliverrar málingar. Ég birti því hér nokkrar ráðleggingar um það, hvernig hægt er að mála sig án þess að „strikin“ renni i taumum niður andlitið eftir sundið, eða púðrið liggi í kekkjum á liúðinni og varaliturinn í smákornum á vörunum. Ennþá hefur ckki verið framleidd málning, sent er algjörlega vatnsheld, en notast má við ýmis smábrögð. Flestar konur leggja mest upp úr augnmáln- ingunni nú ú dögum, en um hana er það að segja, að sleppa verður „eye Iiner“ í sólbað- inu, því að allar tegundir hans innihalda svo sterk bindiefni, að þau eyða að mestu leyti viðkvæmasta húðarlaginu á augnlokinu. Eye liner getur einnig brennzt inn í húðina, þann- ig að næstum ógerningur er að ná lionum burtu. Ef konur vilja stækka augun með strikum, er ágætt ráð að strjúka með mjúkum, dökk- um augnblýanti eftir augnalokinu fyrir inn- an augnhárin, eftir vild að ofan eða neðan eða livort tveggja. Það er ekki eins erfitt og það virðist, t. d. er ágætt að halda augnlokinu út með vinstri hendi, meðan linan er dregin með þeirri hægri. Þetta á við, meðan verið er i sól- og sjóbaði, en liafa má í huga, að konur ganga mikið með sólgleraugu þess á milli, og er þá auðvitað hægt að leyfa sér meira. Litur helzt bezt í augnabrúnum séu þær málaðar með blýanti. Gott er að fara lauslega yfir brúnirnar á eftir með lireinum augn- hárabursta, þá lieldur liturinn sér betur og verður eðlilegri. Nú eru framleiddir margs konar augnháralitir, sem halda sér allvel í vatni, ef það er atliugað að nudda ekki augun eða þurrka strax eftir baðið. Þótt óþægilegt geti verið að hafa augun og augnaumbúnaðinn rennvotan af vatni eða sjó, líður það strax frá og verður reyndar sizt betra, fari liturinn inn í augun við nudd. Sá augnaháralitur, sem bezt virðist halda sér í vatni, er, þótt undarlegt sé, lit- Framhald á bls. 48. VIKAN 25. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.