Vikan - 24.06.1965, Blaðsíða 13
Kíki í rikinu: Keflavíkurflugvöllur, þrætueplið mikla. Myndin
sýnir upptöku í sjónvarpsstöðinni á Keflavíkurflugvelli en
sjónvarpið hefur nú jafnvei yfirskyggt sjálfa herstöðina sem
þrætuefni.
Stórkostleg tímamót i atvinnusögu þjóðarinnar: Fyrsti togari lands-
manna, Jón forseti, kemur til landsins árið 1907.
Eyrarbakki á fyrsta tug aldarinnar. Þá var Bakkinn mikiil
verzlunarstaður og menningarsetur, en í seinni tíð hafa straum-
ar þjóðlífsins legið þar framhjá garði.
Tímamót í landbúnaðinum. Athafnamaðurinn Thor Jcnsen lætur vinna með traktor á Korpúlfs-
stöðum sumarið 1923. Maðurinn í miðið er einn af hinum merkari íslendingum þessarar aldar,
Sigurður Sigurðsson búnaðarmálastjóri.
aðurinn er enn að mestu leyti rekinn með frumstæðri rányrkju. Orfið, Ijár-
inn og hrífan með brúnspónstindunum setja svip sinn á heyskapinn. Heyið
er flutt heim á hestum, og heylestirnar setja sinn svip á hirðingardagana.
Það er mikill dagur í lífi sveitastrákanna, þegar þeir eru orðnir bagga-
færir, geta lyft sátu á klakk. Það er tákn þess, að þeir séu orðnir menn
með mönnum, sumum þykir það nærri því eins mikilvægur atburður og
sjálf fermingin. Og heyannirnar ganga sinn fasta gang, þó að mikið sé
reyndar komið undir tíðarfarinu. Víðast hvar er byrjað að bera út snemma
í júlí og túnasláttur hefst. Flest eru túnin enn lítil, þó að hinir ungu bún-
aðarskólar séu farnir að vekja talsverðan áhuga á ræktun. Sums staðar
eru menn farnir að rækta kargaþýfi í túnum, en aðaltækið til þess er
ristuspaðinn, og hann er hörmulega seinvirkur. í ágúst hefst engjaslátt-
urinn, sem mörgu sveitafólki finnst skemmtilegri en túnaslátturinn. Ljár-
inn bítur betur í rakri mýri en að harðbalatúni, og Framhald á bls. ??
Fyrsta umferSastjórn í Reykjavík sumarið 1925. Þá kom erlent skcmmtiferöa-
mannaskip og þótti vera umferðaröngþveiti. Knud Zimsen borgarstjóri tók þá
tii sinna ráða og stjórnaði sjáifur umferð bíla, hestvagna, ríðandi manna og
gangandi.
Kefiavík snemma
á öldinni. Dansk-
ættuð hús ofan
við fjöruna, en
heiðin þar sem
nú er Keflavík-
urflugvöllur, ó-
byggt land með
öllu.
VIKAN 25. tbl.