Vikan - 24.06.1965, Page 32
Konter's
SUNDBOLIRNIR í ár úr SPANDEX-
og HELANCA efnum.
Ný sniS - Lengri - Teygjanlegri.
Nýjung í brjóstaskálum.
Kaníer's
Kaníer’s
09 SCANDINAVIA
HIGH FASHION SWIMWEAR
*
ii
4
>HLipnar
Stjörnuspáin giltlir frá fimmtudegi til fimmtudags.
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Dagarnir verða með fremur rómantísku móti og þá
einkum fyrir þá sem ennþá hafa ekki fest róð sitt.
Þeir sem fæddir eru milli 2. og 7. apríl mega eiga
von á einhverjum mjög sérstökum viðburði.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Þú ættir að hafa góða gát að skapsmunum þínum
þessa dagana, því margt getur orðið til að koma
þér úr jafnvægi og spillt fyrir þér. Seinni partur
vikunnar verður í alla staði skemmtilegri en sá
fyrri.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Vikan verður að mörgu leyti mjög hagstæð fyrir
þig og ef þú hefur einhverjar framkvæmdir á döf-
inni er góður tími til að taka ákvarðanir einmitt
nú. Þú skalt ekki slá hendinni á móti heimboði
ákveðins aðila.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Það verður margt ólíkt með þessarri viku og þeirri
sem var að líða. Það gæti jafnvel farið svo að hún
kæmi með þversagnir á þá fyrri. Líkur eru á stuttri
ferð um helgina að líkindum í fámennum hópi.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Þú ættir í þessari viku að vekja athygli réttra aðila
á ákveðinni hugmynd sem þú hefur fegnið í sam-
bandi við starf þitt. Ekki er ólíklegt að þú aðhaf-
ist eitthvað sem verður til að auka hróður þinn.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
©Þú verður fremur óþolinmóður og skyldustörfin
fara 1 taugarnar á þér. Þú ættir að vinna af kappi
að því að koma sumarleyfishugmyndum þínum í
framkvæmd. Haltu eitthvert kvöldið smá heimboð
fyrir vinkonu þína.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Allt bendir til þess að þér muni heppnast að koma
fyrirætlunum þínum í verk og verða ýmis öfl þér
hliðstæð ekki síður er í fyrri viku. Þú ættir að slaka
á kröfum þínum um fullkomleika eins vinar þíns.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Vikan verður full af rómantík og skemmtilegum
viðburðum ekki síður hjá þeim sem hafa fest ráð
sitt en hinum sem enn eru lausir og liðugir. Reyndu
að rækta með þér allt það bezta sem þú veizt í
fari þínu.
©
Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. desember):
Notaðu hvert tækifæri sem þér býðst til að létta
þér upp. Þú ert of veikgeðja í garð eins fjölskyldu-
meðlima þinna en ef þú tekur upp ögn meiri aga
og ákveðni breytist allt til hins betara.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Gættu þess vel að gera ekki of háar kröfur til
RM annarra og láta þá vinna verk þín. Seinni hluti
vikunnar færir þér svar við spurningu sem þú
hefur lengi verið órólegur út af. Happatala er 3.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 18. febrúar):
Ef þér hættir til fljótfærni skaltu vera sérstaklega
gætinn í þessarri viku, svo þú þurfir ekki að naga
handabökin síðar meir. Vertu sérstaklega vingjarn-
iegur við einn vin þinn sem hefur orðið fyrir mikl-
um órétti.
Fiskamerkið (19. febrúar — 20. marz):
í >að er oft heppilegt að gera áætlanir og leggja nið-
ur fyrir sér starf og starfsaðgerðir áður en fram-
kvæmdir eru hafnar. Þú ert líklegur til að gera
skyssu af eintómu athugaleysi og óforsjálni.
g2 VIKAN 25. tbl.