Vikan - 24.06.1965, Blaðsíða 36
cRABTREE
jaröleikastraumsliði er fullkomin
vttrn gegn fkveikju frá rafmagni.
<as§>
rafmagnsvfipup eru þekktap
fyrir gæðl. smekklegt
form og fallega liti.
JOHAN RÖNNING H.F. - SKIPHOLTI 15 - SlMI 10632
og í sambandi við eflingu atvinnu-
veganna f|ölgar í íslenzku verzlun-
arstéttinni. Nýr banki. Búnaðar-
bankinn, tekur til starfa 1929. Ár-
ið 1930 er Islandsbanki hætt kom-
inn fjárhagslega en er endurskipu-
lagður sem Utvegsbanki Islands h.f.
En ósköp var erfitt að slá íslenzka
bankastjóra um víxla á kreppuár-
unum.
Stórstígar framfarir verða í raf-
væðingu. 1821 er Elliðaárstöðin
reist. Stærsta skrefið er þó, þegar
virkjun Sogsins hefst 1937. Og 1939
tekur til starfa Laxárstöðin í Þing-
eyjarsýslu. — Eimskipafélag Islands
eignast fleiri Fossa. Skipaútgerð rík-
isins er stofnuð til að annast strand-
ferðir. Bílstjórar fara að verða a11-
fjölmenn stétt. Vegir eru lagðir, en
með frumstæðum tækjum, víðast
fylgja akvegirnir gömlu hestaslóð-
unum. 1929 ekur Þorkell Teitsson
í Borgarnesi í bíl frá Borgarnesi til
Akureyrar og vekur sú ferð mikla
athygli. Margar ár eru nú brúaðar.
Nokkur ný gistihús eru reist, flest
lítil og harla frumstæð en 1930 tek-
ur til starfa í Reykjavík stórt gisti-
hús, Hótel Borg.
Flogið með einn farþega.
Og nýjasta samgöngutæknin,
flugið, heldur innreið sína á Islandi.
Sumarið 1919 er keypt flugvél til
íslands. Hún hefir það aðalstarf að
fljúga með farþega yfir Reykjavík,
en hún rúmar nðeins einn farþega.
Flugvöllurinn er í Vatnsmýrinni, og
þar er reistur lítill flugskáli. Flug-
vélin er í eign hins fyrsta Flugfél-
ags íslands, sem Garðar Gíslason
stjórnar. Ekki verður þó meira úr
flugi á Islandi í þetta sinn. En 1924
gerast þau tíðindi, að flogið er í
fyrsta sinn frá útlöndum til íslands.
Þetta er amerísk flugvél í hnatt-
flugi, og lendir hún fyrst í Horna-
firði. Litlu síðar flýgur ítölsk flug-
vél til landsins. 1930 flýgur þýzka
loftfarið Graf Zepplin yfir Reykja-
vík. Og 1933 kemur til Reykjavík-
ur heill ítalskur flugfloti — 24 vél-
ar — til íslands undir stjórn Balbos,
flugmálaráðherra ítala. — íslend-
ingar stofna aftur flugfélag fyrir
atbeina hins mikla áhugamanns,
Alexanders Jóhannessonar prófess-
ors, árið 1928. Það heldur uppi
farþega- og póstflugi til ýmissa
staða á landinu. Flugvélar þess
heita Súlan og Veiðibjallan. 1930
tekur til starfa hjá félaginu fyrsti
íslenzki flugmaðurinn, Sigurður
Jónsson. Félagið hættir störfum
1932. En 1938 er stofnað Flugfélag
Islands, sem hefur starfað síðan.
Það ár er haldinn hinn fyrsti flug-
dagur á Islandi, á Sandskeiðinu.
Flugið hér á landi er að missa
nýjabrumið um 1940, en enn þyk-
ir þó mörgum spennandi að fljúga.
Niðurlag í næsta blaði.
Hitabeltisnótt
Framhald af bls. 5.
legt væri. Hópur hinna innfæddu
á hafnarbakkanum hafði beðið
þar til hinir fyrstu þungu regn-
dropar þutu gegnum loftið, og þá
höfðu þeir farið, skellihlæjandi,
í skjóli olíuborinna, kínverskra
regnhlífa, stórra keladi laufa og
skærlitra batiksjala, sem þeir
héldu yfir höfðum sínum. Sum-
ir hinna áköfustu og harðsvíruð-
ustu fulltrúa staðarins urðu kyrr-
ir um borð í skipinu og lögðu
undir sig salinn, þar sem æðis-
legur pókerleikur hafði hafizt
og meira og meira var lagt und-
ir. Klefaþjónarnir reyndu að
bjarga einhverju af skreytingun-
um, sem settar höfðu verið upp,
en stormurinn var þeim sneggri.
Áður en langt um leið var allt
þilfarið dapurlegur staður leifa
af kínverskum luktum, renn-
blautum skrautpappír og öðru
þvíumlíku.
Mynheer Van Halden gaf frá
sér djúpt þreytuandvarp, þegar
hann teygði úr sér í kojunni
sinni og lét undan hreyfingu
skipsins. Hann var þreyttur, en
hann gat ekki sofnað fyrr en Jeff
var komin aftur. Þetta kvöld var
einum of mikið fyrir okkur, sagði
hann í uppgefnu hjarta sínu. Lít-
ið glaðlegt lag kom blístrandi
niður ganginn, það var eftir Moz-
art úr Don Giovanni og aldrei
þessu vant þótti Halden miður
að hafa ekki tekið klefa út af
fyrir sig. Hann lokaði augunum
og lézt vera sofandi þegar Vand-
engraf opnaði dyrnar og lædd-
ist um. Vandengraf var tillits-
samur maður og hann hætti að
blístra þegar hann kom inn fyr-
ir. Halden horfði á hann með
hálflokuðum augum. Vanden-
graf hafði látið úrklippubókina
sína góðu ganga á milli íbúanna
í Sebang og nú dró hann tin-
kassann fram undan kojunni
sinni og gekk vandlega frá þess-
um dýrgrip fyrir nóttina. Svo
rétti hann úr sér aftur, blístraði
eitt stutt lag, mundi eftir klefa-
félaga sínum og hætti aftur.
— Verið ekki að hafa áhyggj-
ur af dóttur yðar, Mynheer, sagði
hann þótt Halden þættist vera
sofandi. — Anderson kemur með
hana aftur heilu og höldnu, þeg-
ar stormurinn er liðinn hjá. Þér
vitið hvað svona stormur geng-
ur fljótt yfir á þessarri breiddar-
gráðu.
— Ég hef engar áhyggjur,
g0 VIKAN 25. tbl.