Vikan


Vikan - 23.06.1966, Blaðsíða 32

Vikan - 23.06.1966, Blaðsíða 32
Húsmæður! Gefiðfifjölskyldunni holla og|góða fæðu Sölufélag garðyrkjumanna STJÖRNUSPÁ 7F TJy 71* • % Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Það vcrja margar freistingar á vegi þínum, og lík- legt cr aS þú standist þær ekki allar. Þú ert nokk- uð latur og þarft að taka þig rösklega á til að vinna upp það sem þú hefur trassað undanfarið. 0 Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú átt í smá brösum við einn nýkominn ættingja þinn, en af gamalli reynslu veiztu að tíminn bætir alla missætt ykkar i milli. Þú stendur ekki í skil- um með verkefni sem liggur mjög á. m Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Einhver gerir þér smá grikk sem hefur tvær hliðar eins og þú veizt og skaltu taka tillit til beggja. Þú kemst að því að þú ert vinsælli en þú hélst og mun það verða til að létta skapið til muna. -¥ Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú ert vel undirbúin fyrir þau átök sem verða næstu daga og muntu standa þig mjög vel. Það reynir nokkuð á samningslipurð þína og umgengnishæfi- leika. Reyndu að nota sem flestar frístundir úti við. n Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Það er nokkur drungi yfir félögum þínum og eirðar- leysi yfír húpnum þegar þið eruð saman. Ykkur vrntar ný verkefni og lifandi áhugamál. Þú ert nokkuð sérhlífinn og ættir að reyna að hætta því. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú færð fréttir, eftir krókaleiðum, sem eiga eftir að styrkja aðstöðu þína 1 ákveðnu máli. Þú ferð í stutt ferðalag með kunningjum þínum. Þú þarft ýmissa aðstæðna vegna að vinna mikið sjálfstætt. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Það gerist eitthvað næstu daga sem á eftir að valda miklum misskilningi meðal kunningja þinna og greiðist ekki úr þessari flækju fyrr en eftir mikíð þóf. Þú ert nokkuð bundinn heimavið. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Ekki virðist allt leika í lyndi fyrir þér þessa viku en þú lætur það ekki mikið á þig fá. Þú vinnur nokkra sigra sem ekki allir vita um, því þeir snerta þig einan. Heillatala er fjórir. Ljónsmsrkið (24. júli — 23. ágúst): Líkur eru á einhverju sem veldur þér miklum vangaveltum og heilabrotum, en ýmissa hluta vegna geturðu ekki leitað þér upplýsinga og verður að treysta þinni eigin dómgreind. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúarl: Þú hefur slegið nokkuð slöku við og ættir að kippa því f lag til að róa sjálfan þig. Vinur þinn færir fram skemmtilega hugmynd, sem þú skalt reyna að notfæra þér. Vertu heima á mánudagskvöld. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Eitthvað gerist sem veldur því að þú breytir veru- lega um afstöðu í vissu máli. Þú munt umgangast einn félaga þinn óvenju mikið. Þér berst gjöf sem þú hefur mikil not fyrir. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Einhver verður til þess að hleypa þér í vont skap og hyggurðu á hefndir. Næsta helgi færir þér tæki- færi sem gæti reynzt tvieggjað. Það verður nokk- uð gestkvæmt heima hjá þér á kvöldin þessa viku. 22 VIKAN 25. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.