Vikan - 07.07.1966, Page 6
HVERS VEGNA?
Linoleum, gólfflísar og vinylgólfdúk-
ur með áföstu korki eða fílti allt hol-
lenzkar gæðavörur frá stærstu fram-
leiðendum Evrópu á þessu sviði.
Fyrirliggjandi í miklu litaúrvali.
MÁLARINN
Bankastræti 7 - Sími 22866.
... það nýjasta
á gólfið kemur frá
Kæra Vika!
Hvers vegna þurfa allir að vera
kjamsandi poppkorn í bíóum?
Hvers vegna þurfa svona margir
að koma of seint í bíó og skyggja
á aukamyndirnar, bezta part sýn-
ingarinnar, fyrir manni? Hvers
vegna þurfa þeir andfúlu alltaf
að snúa að manni, þegar þeir
ryðjast fyrir framan mann inn í
bekkinn? Hvers vegna er íslenzki
textinn alltaf neðst á myndinni,
svo enginn getur séð hann fyrir
hausunum á næsta manni fyrir
framan?
Með kærri kveðju
Questjónas.
Ég gizka á, að menn éti popp-
korn af því þeim finnist það gott.
Menn koma of seint í bíó a) af
því þeir leggja of seint af stað,
b) af því þeir finna hvergi stæði
fyrir bílinn fyrr en miðja vegu
heim aftur, c) af því þeir ætla
að koma of seint. Það er viðtek-
in kurteisi, að snúa ekki rassi í
fó!k, þegar maður fer fram hjá
því inn í bíóbekk, og andremm-
an stafar oftast af slæmri munn-
hirðu, og af því enginn hefur
kjark til að segja öðrum frá því,
að hann sé andfúll. íslenzki
textinn er ævinlega neðst á
myndinni, af því hann verður að
vera með ljósum stöfum, sem
ekki myndu sjást, t.d. í útimynd-
um, þegar himininn einn er yfir
sjálfu mótífinu.
ENN UM FLUGURNAR.
Kæri Póstur!
Ég varð hreint steinhissa, þeg-
ar ég las í þér nú um daginn
bréfið frá stúlkunni, sem leggur
lag sitt við flugnaætuna. Annað
eins hef ég nú bara ekki heyrt!
Og ég er enn meira hissa að
heyra hvemig þú tekur á þessu.
Það er ekki hægt að sjá annað,
en þér finnist það allt í lagi,
þótt drengurinn haldi áfram við
þennan viðurstyggilega ósið, svo
framarlega sem hann geri ekki
meira að þessu í framtíðinni en
hingað til. Kannski finnst þér
þetta allt í lagi, ef hann étur ekki
nema einhverja ákveðna tölu af
flugum á dag (hve margar, þætti
mér gaman að vita)?
Nei, ef ég mætti leggja orð í
úelg, þá finnst mér að stúlkan
ætti að hætta við strákinn eins
og skot, hversu gasalega hrifin
sem hún kann að vera af honum.
Hann hlýtur að vera eitthvað
abnormal, svona gerir engin eðli-
leg manneskja. Getið þið líka
hugsað ykkur, stúlkur, hvernig
það muni vera að kyssa mann,
sem er búinn að éta kannski 10
eða 20 fiskiflugur (þessar stóru
svörtu, sem verpa möðkunum í
fiskinn) og hefur líklega ekki
burstað í sér tennurnar á eftir.
Hamingjan hjálpi okkur! Nei,
svona piltar þyrftu að tala við
sálfræðing.
Á. K., Akranesi.
í ÆTT VIÐ ELLÝ EÐA ÖNNU?
Kæra Yika!
Þannig er mál með vexti að
við erum ósammála tvær vin-
konur og langar að biðja þig að
leysa þrætumálið ef unnt er.
Deiluefnið er dægurlagasöngvar-
inn Vilhjálmur Vilhjálmss. og við
spyrjum: er hann bróðir Ellýar
Vilhjálms eða Önnu Vilhjálms?
Eða er hann ef til vill ekkert í
ætt við þær.
Tvær ósammála.
Hann er bróðir Ellýar en ekk-
ert í ætt við Önnu. eftir því sem
við bezt vitum.
SPURT UM RÁÐLEGGINGARSTÖÐ.
Kæri Póstur!
Ég á heima úti á landi og ætl-
aði að bregða mér í bæinn bráð-
lega og fara þá meðal annars í
„Ráðleggingarstöðina um frjógv-
unarvarnir" að Lindargötu 9. Ég
er búin að fletta símaskránni
spjaldanna á milli en finn hvergi
neitt símanúmer tilheyrandi þess-
ari stofnun, sem ég gæti hringt í
til ,að fá upplýsingar um heim-
sóknartíma og slíkt. Því sný ég
mér til ykkar í þeirri von að
hinn alvitri Póstur geti frætt mig
um hvort þurfa muni að panta
tíma þarna fyrir fram og ef svo
væri hver tæki þá á móti þeim
pöntunum eða hvort hægt er
bara að labba sig þarna inn fyr-
irvaralaust og þá á hvaða tíma?
Sennilega stendur nú einhverj-
um nær að svara slíku en ykk-
ur, en þar sem ég hef heyrt að
bróðurkærleikur sé mjög ríkur
í ykkur og þessar upplýsingar
geta ef til vill sparað einhverj-
um kynbróður ykkar álitlega
summu i meðlag, þá vona ég eft-
ir útúrsnúningalausu svari bráð-
lega. Ég bið velvirðingar á skorti
6 VIKAN