Vikan - 07.07.1966, Blaðsíða 7
VIFTAN YFIR ELDAVÉLINA
Hreint og hresscmdi! Það er ganian að matreiða í nýtízku eldhúsi, þar sem loftið
er hreint og fcrskt. Það skapar Iétta lund, vinnuglcði og vellíðan, hvetur hug-
myndaflugið — og matarlykt og gufa setjast ekki í nýlagt hárið né óhreinka fðt
og gluggatjöld; málning og heimilistæki gulna ekki og hreingerningum fækkar.
Raunveruleg loftræsting! Með Bahco Bankett fáið þér raunverulega ioftræstingu,
þvf auk þess að soga að sér og hlása út gufu og matarlykt, sér hún um eðlilega
og heilnæma endurnýjun andrúmsloftsins i cldhúsinu og næstu herhergjum. Sog-
getan er ein af ástæðunum fyrir vinsældum Bahco Bankett.
Hljóð! Þrátt fyrir soggetuna heyrist varla í viftunni. Bahco Bankett er sennilega
hljóðasta viftan á markaðinum.
Engin endurnýjun ó síum! Athugið sérstaklega, að Bahco Bankett þarfnast engrar
cndurnýjunar á lykt- og gufueyðandi síum, sem dofna með tímanum. Bahco Bank-
ctt hefur engar slíkar, en heldur alltaf fullum afköstum — kostnaðarlaust.
Fitusíur úr ryðfríu stáli! Bahco Bankctt hefur hins vcgar 2 stórar, varanlegar fitu-
síur úr ryðfríu stáli, sem ekki einungis varna því, að fita setjist innan í útblásturs-
stokkinn, heldur halda viftunni sjálfri hreinni að innan, því að loftið fer fyrst
gegnum sfurnar. Fitusíurnar eru losaðar mcð cinu handtaki og einfaldlega skolaðar
úr heitu vatni stöku sinnum.
Rétt vinnuhæð, innbyggt Ijós og rofar. Lögun Bahco Bankett skapar óþvingað
svigrúm og sýn yíir eldavélina. Innbyggt ljós veitir þægilega lýsingu og rofarnir
fyrir ljós og viftu eru vci og fallcga staðscttir.
Falleg, stílhrein og vönduð — fer alis staðar vel! Bahco Bankett er teiknuð af
hinum fræga Sigvard Bernadotte, cins og ntörg fallegustu heimilistækin f dag, og
er sænsk úrvalsframlciðsla frá einum stærstu, rcyndustu og nýtfzkulegustu loft-
ræstitækjavcrksmfðjum álfunnar.
BAHCO ER BETRI. Það cr einróma álit neytendasamtaka og reynslustofnana ná-
grannaríkjanna, að útblástursviftur einar veiti raunverulega Ioftræstingu. Hagsýnir
húsbyggjcndur gera því ráð fyrir útblástursgati cða sérstökum loftháfi. Þelr, sem
cndurnýja eldri eldhús, brjóta einfaldlega gat á útvegg cða ónotaðan reykháf. Sú
fyrirhöfn margborgar sig.
NÝJUNG: Bahco raðstokkar. Við höfum nú á boðstólum létta og sterka, hvfta
plaststokka með beygjum og öðru tilheyrandi, sem hver og einn getur raðað saman,
án minnsta erfiðis eða sérstakra verkfæra.
Veljið því rétt, veljiö viftu, sem veitir
raunverulega loftræstingu og heldur allt-
af fullum afköstum — kostnaðarlaust.
Veljið BAHCO BANKETT.
— - ■** - - —
mínum á réttritunarkunnáttu, og
færi ykkur mínar beztu fyrir-
fram þakkir fyrir væntanlegar
upplýsingar.
Annley.
Stofnunin, sem þú spyrff um,
heitir réttu nafni Ráðleggingar-
stöð í hjúskaparmálum og er að
sönnu til húsa á Lindargötu 9.
Þar starfa Iæknir og prestur.
Læknirinn, Pétur Jakobsson,
hefur viðtalstíma frá 4—6 á mið-
vikudögum, en presturinn, séra
Erlendur Sigmundsson, á þriðju-
dögum og föstudögum kl. 5—6.
Síma hefur stöðin ekki, enn sem
komið er. Tíma mun ekki þurfa
að panta fyrirfram.
Við vonum svo, að bróður (eða
í þessu tilfelli systurkærleikur
okkar verði til þess að spara ein-
hverjum sakleysingjanum annars
hugsanleg fjárútlát. — Hvað rétt-
ritunina snertir, er ástæðulaust
fyrir þig að biðjast afsökunar á
henni, því hún er í betra lagi.
ÆTIA TIL ÁSTRALÍU.
Kæra Vika!
Vð erum hérna þrjár vinkonur,
sem langar til að skoða heiminn,
og erum með ýmsar ráðagerðir í
því sambandi. Við höfum heyrt,
að það væri gaman að koma til
Ástralíu og gott að fá vel borg-
aða vinnu þar. Okkur datt í hug
að þú, kæri póstur, gætir kannski
gefið okkur einhverjar upplýs-
ingar um þetta mál, til dæmis
hvað dýrt sé að ferðast til lands-
ins o.s.frv. eða kannski getur þú
líka vísað okkur á einhvern stað,
sem við getum fengið upplýs.ing-
ar um þetta. Tvær okkar eru
nitján ára, en ein tuttugu. Með
fyrirfram þökk fyrir svarið.
Þrjár í gæfuleit.
P.S. Hvernig er skriftin?
Því miður getum við ekki gefið
ykkur neinar öruggar upplýsing-
ar um þetta. en við vitum þó, að
tiltölulega ódýrt mun vera fyrir
fólk að fara til Ástralíu, það er
að segja ef það vill setjast að í
landinu. Nú vitum við ekki hvort
þið hugsið svo langt, en á það
má benda, að Ástralía er land
mikilla framfara og grósku og
lífskjör þar einþver þau beztu
í heimi. Yfirvöldin þar sækjast
mjög eftir sem flestum innflytj-
endum trá Evrópu, og munu
Norðurlbúar ekki sízt velkomn-
ir. Sérstaklega er þó lögð áherzla
á að ná sem flestu kvenfólki til
landsins, því karlmenn hafa til
þessa verið í miklum meirihluta
meðal innflytjenda og eru því í
töluverðum meirihluta í landinu.
Hafa ástralskir leiðtogar farið í
sérstaka áróðursleiðangra til
Vesturlanda til að lokka til sín
kvenfólk og heitið því gulli og
grænum skógum. Við það má
bæta, að ástralskir karlmenn eru
sagðir myndarmenn tl orðs og
æðis að öllum jafnaði. Þið vitið
sjálfsagt, að enska er töluð í
landinu, enda eru flestir Iands-
manna ættaðir frá Bretlandseyj-
um. En varðandi allar nánari
upplýsingar getið þið sjálfsagt
snúið ykkur til brezka sendiráðs-
ins í Reykjavík, sem vafalítið
getur leyst á fullnægjandi hátt
úr öllum ykkar spumingum
varðandi Ástralíu.
Skriftin er falleg.
LAUGARVATNSUNGLINGAR OG
DÁTASKJÁTUR
Kæri Póstur!
Blöðin skrifa mikið um drukkna
unglinga á Laugarvatni og draga
þar ekkert undan, en það er ekki
nema helmingur af sex—sjö
hundruð unglingum sem eru und-
ir áhrifum áfengis þar. En það
er gleymt að minnast á ferming-
artelpurnar, sem gráta þegar
frönsku dátarnir fara héðan. Það
er kannske alltof mikil þjóðar-
skömm. Ef til vill af því að svona
stúlkur ættu að vera á uppeldis-
heimili, sem því miður er ekki
til hér í borg nema smá kompa
hjá ósérmenntuðu fóki eins og
hjá Hjálpræðisherskerlingum.
. Húsmóðir í Reykjavík.
Þótt aðeins helmingur þessara
sjö hundruð Laugarvatnsung-
linga liafi verið í áfenginu, þá
finnst okkur það nú fullmikið
af því góða. En við erum alveg
sammála þér í því, að þetta sjó-
liðaflangs í stelpunum er hrein
þjóðarskömm. En það eru að okk-
ar áliti ekki fyrst og fremst
stelpugreyin, sem eiga að skamm-
ast sín, því þetta er nú einu sinni
svo fljóthuga og áhrifagjarnt á
þessum aldri. Skömmin hvílir á
stjórnarvöldunum, sem veita
þessu hvimleiða dátapakki Iand-
gönguleyfi.
Komið, skrifið eða útfyllið úrklipp-
una og fáið allar upplýsingar um
Bahco Bankett, stokka, uppsetningu,
verð og greiðsluskilmála.
FÖNIX
SÍMI 24420. SUÐURGÖTU 10. RVÍK.
Sendið undirrit. Bahco Bankett myndalista með öllum upplýsingum:
Nafn: ..............................................................
Heimilisfang: ....................................................
Til Fönix s.f., pósthólf 1421, Reykjavík.
VIKAN 7