Vikan - 07.07.1966, Síða 10
Hús og
húsbúnaOup
Nokkir
einfðld
oo óiór
kís
Sumir halda því fram, að hér séu
ef til vill byggð vandaðri hús en
nokkursstaðar annarsstaðar um
heimskringluna. Ef það er rétt, þá
er ekki úr vegi að minnast þess,
að formæður þeirra sem nú eru
að byggja úr steini og tekkviði,
sópuðu moldargólf með hrísvönd-
um, muldu skán og klipptu hrís til
að troða undir pottinn á hlóðun-
um og borguðu ekki grænan eyri
fyrir upphitun, því upphitun var
ekki til. Nú gæti kannski einhverj-
um gætnum manni orðið á að
hugsa, að við hefðum tekið stökkið
helzt til myndarlega og skammt sé
nú orðið öfganna á milli. Því hús
hér eru ekki aðeins vönduð, heldur
afspyrnu dýr. Dætur þeirra kvenna
sem fóru með þvottinn I bala niður
í bæjarlæk og klöppuðu hann þar
á steini, verða nú helzt að hafa
sjálfvirkar þvottavélar í þvottahús-
inu og þvottahúsið verður helzt að
vera beint innaf eldhúsinu. Og dæt-
ur þeirra mæðra sem aldrei eignuð-
ust baðkar eru ekki ánægðar nema
baðherbergið sé flísalagt upp að
lofti. Nú er talað um það sem hvert
annað böl, ef viftu vantar f eldhús-
ið og það kemur fyrir að matar-
lykt berst inn í stofuna. Engu máli
skiptir þó hægt sé að opna glugga
og veita henni út á einni mfnútu.
Það þykir alveg ófært samt. Að
ekki sé nú talað um það að ganga
á berum línóleumdúkum. Svoleiðis
villimennska er fyrir bí sem betur
fer.
Og þá er það enn ótalið sem
mest stingur f stúf við gamalt fs-
lenzkt allsleysi: Nýju eldhúsin,
harðviðareldhúsin með kjörvið og
harðplast í bak og fyrir og bakar-
ofn með glugga álfka stóran og
meðal sjónvarpsskerm.
Þessi upptalning er ekki meira
en allir þekkja og alkunna er það
líka að margir stynja sáran undan
klyfjunum. Kannski eru þessar 6-
skaplegu og óhóflegu kröfur vegna
þess, hvað stutt er sfðan við höfð-
um ekki neitt. Sumir segja að þetta
muni jafna sig; að bráðum verði
10 VIKAN
Framúrskarandi einfalt hús í byggingu og
þrískipt eins og grunnteikningin sýnir.
Þriðjungur hússins fer undir stofuna, sem nær
þvert í gegnum húsið meðfram einni hlið þess.
Þriðjungurinn í miðjunni sem á grunnteikning-
unni er strikaður til aðgreiningar, er nefndur
kjarni í texta bókarinnar: Þar er forstofan, lít-
ill upphitunarklefi, salerni, svefnherbergisgang-
ur, bað, eldhús og nokkuð sem nefnt er á skand-
inavískum málum „Alrum“. Þetta „Alrum“ er
í beinu framhaldi af eldhúsinu, nokkurskonar
baðstofa, það er að segja daglegt íverupláss,
leiksvæði fyrir börnin og borðstofa. Baðherberg-
ið, upphitunarklefinn og salemið, mynda sér-
stakan kjama inn í miðju húsinu, og yfir bað-
herberginu er þakgluggi. í eldhúsinu verður
hinsvegar góð birta frá útvegg baðstofunnar
vgna þess að hann er að öllu leyti úr gleri og
breið rennihurð svo hægt sé að opna út í garð-
inn. Þriðjungur hússins fer svo undir þrjú svefn-
herbergi, hjónaherbergi og tvö barnaherbergi.
Eins og sést af meðfylgjandi perspektívteikn-
ingu, er hér um að ræða gerðihús, líkt og Geir-
harður Þorsteinsson, arkitekt, skrifaði um ný-
lega í Vikuna. Þama er opinn bílskúr eða bíl-
skýli, sem Danir hafa ekkert orð yfir og kalla
einfaldlega Carport. En sjálft gerðið er næst á
myndinni. Fyrir utan bílskýlið er húsið 129 fer-
metrar að flatarmáli.
SNIT _________________,
Einfalt hús af gerð, 130 fermetrar að flatarmáli. Þarna er gert ráð fyrir
barnaherbergi fyrir utan hjónaherbergið og reynt er að nýta ganginn þann-
ig, að hann verði eðlilegt leikrými fyrir börnin. Þarna er „alrum“, rúm-
góð borðstofa f beinu framhaldi af eldhúsinu og um leið daglegt iveruherbergi,
einkum fyrir börnin. Þó ekki sé þarna um neina stássstofu að ræða þá er gert
ráð fyrir þvi að minna mæði á hcnnl vegna hins fyrrgreinda. Úr eldhúsinu er
innangengt i þvottahús, geymslu og kyndiklefa. Tveir burðarveggir hússins eru
byggðir út eða framlengdir og er það gert til að mynda skjól. Á þessu húsl er
lágt ris en þakskeggið er haft þykkt, og heildarsvipur hússins er vinalegur.