Vikan - 07.07.1966, Síða 14
GÆGSTIGEGNUM
SÍÐAN SÖGUR HÖFUST HAFA MENN REYNT AÐ ÖÐLAST INNSÝN í ÖORÐNA HLUTI, SÉR OG Ö0
FERÐIR: STJÖRNUSPÁFRÆÐI, LÖFALESTUR, SPILASPADÓMAR OG KRYSTALSKÚLULESTUR.
Sífellt eru menn að reyna að komast að því sem fram-
tíðin ber í skauti sér. Oldum saman hefur fólk verið þakklátir
hlustendur og lagt eyrun við þegar talað er um einhverjar
aðferðir, sem mættu verða til þess að lyfta hulunni af fram-
tíðinni. Þetta á líka við um þjóðir, að á tímum erfiðleika og
öryggisleysis sé meiri áhugi á því að sanna spádóma.
Fjórar þekktustu aðferðirnar sem notaðar eru til þess í
vestrænum heimi eru stjörnuspáfræði, lófalestur, spilaspá-
dómar og að lesa í krystalskúlu.
Stjörnuspáfræðin varð til í Mesopotamíu u.þ.b. 3000 f.
Kr., en sú aðferð sem við þekkjum í dag þróaðist í Grikk-
landi á þriðju öld og átti sammerkt við stjörnufræðina í
hundruð ára.
Stjörnuspáfræði er byggð á stærðfræðilegum athugunum
á hreyfingum sólarinnar, tunglsins og plánetanna og segir
til um þau áhrif sem hreyfingar þeirra hafa á jörðina og
framkvæmdir jarðarbarna. Þessar athuganir á braut himin-
hnatta, ferð stærri plánetanna, fjarlægð þeirra frá
jörðu, eðli þeirra að hreyfa sig með jöfnu millibili, voru
þó byggðar á þeirri skoðun, að jörðin væri miðdepill alheims-
ins. En þegar Copernicus uppgötvaði það, í lok fimmtándu
aldar, að það var sólin, en ekki jörðin, sem var þessi alheims-
miðdepill, fékk stjörnuspáfræðin hálfgert rothögg og fólk fór
að missa áhuga á henni. Við komu kristninnar var stjörnu-
spáfræðin, vísindin um spádóma með hjálp stjarnanna, að-
skilin frá stjörnufræði, stjörnurannsóknum, og byggðist meir
á goðsögum og ófullnægjandi þekkingu. Lengi má deila um
hvort sú uppgötvun að pláneturnar fylgja sporbaugum frek-
ar en hringbaugum og í kringum sólina í stað jarðarinnar,
sé nóg til þess að halda því fram að stjörnuspáfræðin sé al-
gerlega óábyggileg. Vissulega hefur komið fram athyglisverður
árangur og upplýsingar við þessar tilraunir og það er h'klega
ástæðan fyrir því að áhuginn á stjörnuspáfræði hefur aldrei
dáið út.
Það er hægt að læra að reikna út stjörnukort. En til þess
er nauðsynlegt að hafa fæðingarstund, dag og ár og bera
þetta saman við stjörnualmanak um stöðu plánetanna á þeirri
stundu og á þeim sérstaka stað á jörðunni. Að setja upp
þessi stjörnukort um örlög manna krefst töluverðrar stærð-
fræðiþekkingar (Ef prentaðar skýrslur eru ekki til um allar
breiddar og lengdargráður, verður maður að gera nauðsyn-
lega útreikninga sjálfur), en túlkun slíkra fæðingarskýrslna
útheimtir töluverða reynslu á því sviði, þótt skyggnigáfa sé
ekki nauðsynleg. Þetta eru tímafrekar athuganir í hverju
tilfelli og koma oft furðulega nálægt þeim hlutum sem hafa
eða munu ske. Beztur árangur næst venjulega, þegar um er
að ræða persónu og lundarfars greiningu.
Sólarkort, byggð á fæðingardegi stað og ári, gefa venjulega
góða hugmynd um persónu, en nákvæmur tími sólarhrings
er nauðsynlegur, ef óskað er eftir nákvæmum spádómi.
Stjörnuspá er líka hægt að leggja við framsetningu skipa
og byggingu húsa og svo framvegis, og getur oft sagt til um
heppni eða óheppni við rekstur fyrirtækja, jafnvel áður en þau
eru stofnuð. Maður gæti líka sett upp spá fyrir sérstökum
spurningum, t.d.: Á ég að kaupa þetta hús, sem ég var að
skoða? í því tilfelli er spurningartíminn álitinn vera fæðingar-
tíminn. Svo er líka veður-stjörnuspá, sem samfara náttúru-
vísindum, eins og áhrifum tunglsins á veðurbreytingar og
athugun á vindum o. s. frv., geta gefið góða raun.
Fæðingardags-stjörnuspá getur gefið í skyn, t.d. hvort á-
kveðin persóna sé metorðagjörn, hvort sú persóna stjórnast
af eigin vilja og framtaki, eða lætur stjórnast af öðrum, hvort
hún er skörp eða frekar lélega gefin, hvort hún er heilsu-
veil eða hraust, hvort hún er líkleg til að giftast og auka kyn
sitt, o. s. frv. Allt eru þetta bendingar eða merki, en ekki stað-
reyndir, því að persóna sem hefur ef til vill lélegt minni, getur
þjálfað sig upp í það að verða minnisgóð, og maður sem enga
metorðagirnd hefur, getur þjálfað sig upp í það, en í báðum
tilfellum verður þetta erfitt, þar sem han vinnur á móti
eðli sínu. Dagleg hreyfing plánetanna og áhrif sem þau hafa
á fæðingarspá okkar, sýna timabil þar sem erfiðleikar verða
minni eða meiri á vissum sviðum og hvar menn verða að nota
meiri eða minni styrkleika til að marka stefnuna. í stjörnu-
spám blaða og tímarita, eru stjörnuspár miðaðar við dýra-
merki sem fólk er fætt undir, án tillits til fæðingarstundar
og er þar af leiðandi almenns eðlis. Að lesa þar að þessi dag-
ur sé góður fyrir peningamál, þarf ekki alltaf að vera það að
peningar falli þér í skaut þennan dag, en að það geti verið
happadrjúgt að athuga fjármál þennan dag t.d. ef þú ætlar
að selja eitthvað, þá sé þessi dagur heppilegri til slíkra hluta,
14 VIKAN