Vikan - 07.07.1966, Síða 16
CILLA VEIT HVAÐ
HÚN SYNGUR
Sumir söngvarar þurfa aldrei
að hafa áhyggjur af því að
verða sér úti um lög til þess að
syngja á plötu. Sandie Shaw á hauk
í horni þar sem Chris Andrews er
og Dionne Warvick getur alltaf snú-
ið sér til Baccarachs og Davids. The
Kinks eiga Ray Davies og Bítlarn-
ir John og Paul.
Oðru máli gegnir um Ciilu Black.
Aður en hún sendi frá sér lag-
ið „Love is Just A Broken Heart"
sem var gefið út ásamt „Yester-
day", hafði hún í átta mánuði leit-
að að lagi, sem hentaði henni
Fimm sinnum hafði sún sungið lag
inn á plötu, en öllum var stungið
undir stól, því að hún var ekki
ánægð með þau. Sennilega eru fá-
ir söngvarar eins vandlátir í vali
á lögum, sem þeir syngja á plötur,
og einmitt Cilla, einkum þegar þess
er gætt, að allir beztu lagasmiðir
eru reiðubúnir að semja lag fyrir
hana. En Cilla hefur sínar eiqin
skoðanir og hún veit, hvað hún
syngur, þegar hún segir:
— Eg verð að vera sérstaklega
hrifin af lagi, sem ég syng á plötu.
Ef mér líkaði ekki eitthvert lag að
öllu leyti, kæmi scngurinn ekki frá
hjartanu. Ég get aldrei mælt með
lagi, sem ég get ekki lagt
hjarta mitt í. Að vísu hefur mér
staðið til boða fjöldinn allur af
lögum, sem vafalaust hafa átt vísa
leið upp eftir vinsældalistanum, en
mér geðjast bara ekki að r.líkum
verzlunarvarningi. Þegar þannig
lög eru komin á vinsældalistann
eru þau óðara gleymd. Ég kýs frem-
ur lag, sem fólk mun þekkja í mörg
ár.
— Sumir eru þeirrar skoðunar,
að maður verði að senda frá sér
plötu á þriggja mánaða fresti
a.m.k. Ég fæ ekki séð, að það skipti
nokkru máli. Lítum til dæmis á
Bill'/ Fury. Hann sendir frá sér plötu
á sex mánaða fresti, og ekki hefur
honum orðið meint af á þeim fimm
árum, sem hann hefur fengizt við
að syngja. Kannski er þessu öðru-
vísi háttað í Bandaríkjunum. Það
er svo stórt og víðáttumikið land
að maður verður að hakka út plöt-
um í sífellu til þess bókstaflega að
Framhald á bls. 49.
barattuhugur
Vesalings Hermann átti ekki sjö
dagana sæla, þegar hann var í
liljómleikaferð um Ástralíu ný-
lega, ásamt hljómsveit sinni, The Her-
mits. Önnur eins fagnaðarlæti hafa
ekki heyrzt á hljómleikum þar í landi
í annan tíma — og hafa þó Bítlarnir
og Rollingarnir verið þarna á ferli
áður. Þessar þrjár myndir sína, bar-
áttu hennar Moriu litlu Billson við
lögregluna. Moria, sem er 15 ára, átti
þá ósk heitasta að komast í snertingu
við draumaprinsinn Hermann. Ilún
eir.setti sér að ná því takmarki, en
cins og gcfur að skilja gekk það
hvorki þrauta- né hljóðlaust. Samt
sem áður tókst henni það að lokum
eftir feiknalega samgönguerfiðleika.
Draumaprinsinn kyssti hana á kynn-
ina
Moria, sem hafði mátt þola óblíðar
viðtökur laganna varða, féll nú í yfir-
lið. — Af hamingju.
LAGASMIÐUR
Ray Davies, fyrirliði hinna
sívinsælu The Kinks, á
sannarlega viðurkenningu skilið
fyrir öll þau skemmtilegu og á-
gætu lög, sem hann hefur samið
fyrir sína eigin hljómsveit og
aðrar. Hér fær hann blóm í
hnappagatið hjá afgreiðslustúlku
í Gróðurhúsinu Eden í Hvera-
gerði — og átti það auðvitað að
tákna örlítinn þakklætisvott frá
íslenzkum aðdáendum. Ray er
ósköp hægur og rólegur í fasi,
segir yfirleitt fátt, en þá sjaldan
hann opnar munninn, hefur hann
alltaf eitthvað skemmtilegt að
segja.
Hann sagði okkur eitt sinn, að
það væri ung stúlka, sem ætti
mestan þátt í velgengni The
Kinks. Ef hann hefði ekki notið
aðstoðar hennar, hefðu Kinkslög-
in vinsælu aldrei komið fram.
Þessi stúlka hefur þau forrétt-
indi að fá að heyra lögin, sem
Ray semur, áður en nokkrir aðr-
ir heyra þau. Ef henni líkar lag,
sem Ray er að semja, heldur
hann áfram að vinna að því. Ef
henni finnst ekkert til lagsins
koma, hafna nóturnar yfirleitt í
ruslakörfunni.
— Þegar ég samdi til dæmis
„Tired of Waiting for you“ tók
ég eftir svipbrigðum hennar, og
þegar hún byrjaði að raula lagið
aftur og aftur, var ég sannfærð-
ur um, að lagið væri gott.
En hver er þessi áhrifamikla,
unga stúlka? Það er lítil ná-.
grannakona — 5 ára!
Ray er álitinn einhver mikil-
hæfasti lagasmiður í Bretlandi,
og sennilega er hann einnig sá
afkastamesti. Engum dylst, að
vinsældir The Kinks eru fyrst
og fremst honum að þakka. Allir
þekkia lögin hans. Hann hefur
samið m.a. „AR Day And All
Of The Night“, „See My Friends"
og nú síðast „Dedicated Follower
of Fashion", sem komst upp í
topp á enska vinsældalistanum.
Þá samdi hann 12 lög á hæg-
gengu plötunni „Kinda Kinks“
og 10 lög á plötunni „The Kinks
Kontroversy", þar á meðal lög-
in „I’m on An Island“ og „Ring
Framhald á bls. 49.