Vikan - 07.07.1966, Page 20
„Ijúfa lifið"
Einræðisherra Kúbu, Fidel
Castro, hefur sagt hinu „ljúfa
lífi“ stríð á hendur.
Castro hefur þröngvað
mörgum af byltingarfélögum
sínum til að yfirgefa Hav-
anna, flytja út á land og ger-
ast bændur. Einn þeirra,
Efigenio Ameijeiras, þrjátíu
og tveggja ára gamall, var
rekinn úr stöðu sinni sem að-
stoðarhermálaráðherra og
sviptur majórstign, þrátt fyrir
það að hann var einn af hin-
um sögufrægu tólf mönnum,
sem börðust með Castro í
upphafi byltingarinnar.
Hvert var svo brot hans?
Skemmdarstarfsemi gegn
byltingarmóralnum.
Raúl Rosa yngri, sonur
utanríkisráðherrans var kærð-
ur fyrir „óleyfilegan og ósið-
samlegan verknað“, og var
rekinn frá starfi sínu í verzl-
unarráðuney tinu.
Fidel Castro hefur bannað
öllum embættismönnum sín-
um, sem eru staðsettir utan-
lands, að taka við gjöfum. Og
heima í Havanna má enginn
taka við heimboði í erlend
sendiráð, nema með leyfi frá
því opinbera.
Castro finnst að nokkrir
hinna ungu byltingarsinna
drekki of mikið, dansi of
mikið, og sýni of mikinn á-
huga á kapitalískum skemmt-
unum. Hann ætlar því að
koma í veg fyrir þessar hætt-
ur og hótar ungum byltingar-
mönnum að banna þeim um-
gang við umheiminn. Hann
ætlar að bjarga þeim með
því að fá þeim vinnu við
heilsusamleg jarðarbótastörf.
Johnson misslr
ffylgi i Texas
Johnson forseti hefur mikl-
ar áhyggjur, ekki einungis út
af Vietnam, heldur líka vegna
þess að hann virðist vera að
tapa fylgi í fæðingarhéraði
sínu, Texas.
Ástæðurnar eru athyglis-
verðar fyrir þá sem hafa á-
huga á stjórnmálum í Banda-
ríkjunum. Johnson verður
sem forseti að haga málum
þannig að þau falli í geð
meirihluta Bandaríkjamanna:
þ.e. hægfara miðstéttarfólks.
Það fólk vill fá sjúkratrygg-
ingar en er á móti verðlags-
eftirliti.
En í Texas er öðru máli að
gegna, þar er fólk ekkert hæf-
ara. Til að geðjast Texasbú-
um þurfa stjórnmálamennirn-
ir að vera mótfallnir sjúkra-
tryggingum, verðlagseftirliti
og yfirleitt allri afskiptasemi
frá Washington; vera á móti
sósíalisma og öllum samning-
um við Sovétríkin og nú orð-
ið jafnvel á móti Johnson
sjálfum.
Gamall vinur forsetans og
náinn samstarfsmaður John
Connally, sá sem særðist af
einu skoti úr byssu Oswalds,
hefur orðið að taka afstöðu
til þessa, til þess að halda
stöðu sinni sem fylkisstjóri.
Waggoner Carr, frambjóð-
andi til þingsins í kosningun-
um í haust, hefur neyðzt til að
hefja hatursfullar árásir á for-
setann.
Árangurinn af þessu er að
forsetinn hefur eiginlega engin
áhrif í Texas. Hann er jafn-
vel hættur að heilsa upp á
gamla kunningja og nágranna,
þegar hann fer til Texas.
Hann fer yfirleitt beina leið
á búgarð sinn og beina leið
til baka.
Rétfindalaiusir
Indlánar
Kynþáttamisrétti viðgengst
víðar og er sumsstaðar miklu
verra en í Suður-Afríku, Ró-
desíu og Suðurríkjum Banda-
ríkjanna, þótt mest veður sé
gert út af því þar. Líklega er
það hvergi verra en í Suður-
Ameríku, þótt margir ímyndi
sér hið gagnstæða. Þeir, sem
þar fá að kenna á misréttinu,
eru Indíánarnir. Þeir hafa þar
víða bókstaflega engin mann-
réttindi.
Ástandið er hvað verst í
Perú, sem fyrir daga hvíta
manna í álfunni var mesta
menningarsvæði Indíána. Að
minnsta kosti helmingur
hinna tíu milljóna, sem land-
ið byggja, eru hreinir Indí-
ánar enn í dag. Þeir eru flestir
ánauðugir verkamenn á bú-
görðum stórbændanna, sem
eru af spænskum uppruna, fá
ekkert kaup og eru meðhöndl-
aðir sem skepnur. Um mann-
réttindi eins og kosningarétt
er að sjálfsögðu ekki að ræða
fyrir þá, þaðan af síður
nokkra möguleika til mennt-
unar. Það eina, sem þræla-
eigendurnir spara ekki við þá,
eru kókalauf. Þau innihalda
eiturefni, sem gera Indíán-
ana sljóa og þar af leiðandi
kærulausa um kjör sín.
Jafnvel í Mexíkó, sem stát-
ar af að vera framsæknasta
ríki spænskumælandi manna,
eru Indíánar ennþá annars-
flokks borgarar. Þeir fá ekki
afgreiðslu á betri veitingahús-
um, fá ekki herbergi á virðu-
legri hótelum og eru hvar-
vetna hornrekur á vinnumark-
aðinum. En enginn reynir til
að gera neitt fyrir þá, jafn-
vel ekki Sameinuðu þjóðirnar.
011 réttlætisást heimsins er
helguð negrunum, hvort sem
það stafar af einni saman rétt-
lætisást eður ei.