Vikan - 07.07.1966, Side 23
Hugh Hefner bæði á og ritstýrir Playboy, mánaðarriti, sem eink-
um er ætlað karlmönnum og hefur náð dæmalausum vinsæld-
um. Auk þess á hann keðju næturklúbba um öll Bandaríkin og
víðar. Æskudraumarnir hafa rætztogríki hans blómstrar. Kanín-
urnar njóta lífsins í dýrlegum veizlum á heimili hans. Pen-
ingarnir streyma inn og heimspekin flæðir út. Hugh Hefner er
talinn eiga 70 milljónir dollara, en sjálfur hefur hann lítinn
tíma til að sinna þokkagyðjunum brjóstamiklu, sem fylla hús
hans.
Þegar vindurinn af Michiganvatni er
orSinn heitur og litlu kanínurnar, sem
annast dyravörzlu í Playboy-klúbbn-
um eru orðnar léttklæddar og bún-
ar að leggja loðfeldina sína á hill-
una, verða mikil tímamót í lífi ein-
hvers happasælasta borgara Chicago-
borgar, Hugh Hefner. Það var hann sem árið
1953, þá ungur að árum, fékk að láni 600 doll-
ara til að hefja útgáfu á Playboy, mánaðarlegu
skemmtiriti fyrir karlmenn. Nú er umsetning
hans orðin 48 milljón dollarar árlega. Hann er
nú að taka við Palmolive-stórhýsinu á Michigan
Avenue, sem er upp á 37 hæðir, og þar verður
framvegis aðsetur hans.
Það getur verið að einhverjir gamlir Chicago-
borgarar þykist ekki taka eftir þessu,- það er
ennþá dálítið erfitt fyrir afturhaldssama, mið-
aldra góðborgara, að viðurkenna dugnað þessa
unga áhlaupamanns og taka hann í sinn hóp.
En venjulegir menn horfa á þetta með aðdáun
og skemmta sér vel; leigubílstjórar benda ferða-
mönnum með stolti á Playboy-bygginguna. Flug-
menn og sjómenn eiga eflaust eftir að gangast
fyrir því að hinn voldugi viti á þaki hússins,
verði endurskírður; þetta 38 billjón watta „Kan-
inu"-merki, sem lýsir og snýst, og sést úr 500
mílna fjarlægð. Þetta er óhrekjanlega merki
snilligáfu og heppni.
Þarna hefur risið upp heilt keisaradæmi. Play-
boy-klúbbarnir einir skiluðu meira en 19 milljón
dollara gróða, síðastliðið ár. Það eru 15 Play-
bcy-klúbbar í Bandaríkjunum og Jamaica og
þeir hafa umturnað öllum næturklúbbarekstri
og menningu. Þar er aðeins eitt verð, allt kost-
ar þar einn og hálfan dollar, t.d. drykkir og
máltíðin, en aðallega eru það stúlkurnar, sem
ganga um beina, sem setja svip sinn á umhverf-
ið. Þær eru klæddar þröngum lífstykkjum, sem
eru þannig löguð að vöxturinn komi sem bezt
í Ijós, með kanínueyru á höfðinu og hina sér-
kennilegu kanínurófu á bakhlutanum. Það stend-
ur til að opna fyrsta Playboy-klúbbinn í Evrópu
í sumar og verður hann við Park Lane í London,
og Hefner hefur jafnvel í hyggju að koma „Kan-
ínum" sínum fyrir í öllum aðalborgum vestræns
heims. Þess utan er útgáfufyrirtæki Playboy,
sem gefur út mjög seljanlegar sérprentanir af
Playboy sögum, skrítlum og myndum, sömuleið-
is spjaldbundnar bækur eftir Lenny Bruce, J.
Paul Getty og aðra fræga menn og vitra. Svo
eru það ýmsir hlutir sem Playboy fyrirtækið sel-
ur, allt frá skyrtuhnöppum að skemmtiferðalög-
um til Karabiahafsins, sem færði fyrirtækinu
milljón dollara gróða síðastliðið ár. Ennfremur
hefur Playboy umboð fyrir fyrirsætur, og gerir
það meðal annars með það fyrir augum að fá
nógar fegurðardísir í Kanínustöðurnar, enda hef-
ur það borið góðan árangur, en Playboy leik-
húsið í Chicago er eina fyrirtæki Hefners sem
ekki skilar ágóða. En undirstaða allrar þessar-
ar velgengni er Playboy, þykkt, skrautlegt og
vandað mánaðarrit, fullt af sögum (góðum og
hrollvekjandi), alvarlegum hugleiðingum (Play-
boy Philosophy), leiðbeiningum fyrir þá sem eru
einmana að maður ekki tali um allar myndirnar
sem blaðið er fullt af; siða eftir síðu af nöktum
og hálfnöktum „leiksystrum", Ijómandi myndir i
glóandi litum. Umsetning Playboy fór yfir 3
milljónir dollara síðastliðið ár, og ennþá eykst
það (marz heftið seldist í 3.770.000 eintökum).
Sala blaðsins skilaði síðastliðið ár 28,5 milljón
dollara gróða. Þegar öll kurl koma til grafar er
álitið að HMH félagið (Hugh Marston Hefner
er forstjóri og aðalhluthafi) sé sinna 70 milljón
dollara virði, enda hikstaði Hefner ekki agnar
ögn þegar hann skrifaði undir leigusamning til
63 ára og skuldbatt sig til að borga 2,7 milljón
dollara leigu fyrir stórhýsið, sem í framtíðinni
verður aðseturstaður fyrir hann og hina 700
starfsmenn hans.
En þótt undarlegt megi virðast stígur Hefner
varla fæti sínum í hinar stóru skrifstofur. í sið-
astliðin fimm ár hefu Hefner eytt ævinni á heim-
ili sínu, fjögra hæða, virðulegu múrsteinshúsi,
sem stendur við rólega götu í auðmannahverfi
Chicago-borgar, Mear North Side. Starfsfólkið
kallar þetta hús „herrasetrið" (The Mansion), og
það er hinn raunverulegi miðdepill HMH veld-
isins. Hér er það sem Hef, en svo vill hann láta
kalla sig, framkvæmir dagleg kraftaverk sín og
dreymir mikla Piayboy-drauma, og hér hvílir
hann sig líka á lárberjunum.
Playboy birtir oft myndir af Hef í veldi sínu;
Hefner sem gestgjafi fyrir frægt fólk, í stórri og
vel búinni dagstofu sinni; myndir af honum þar
sem hann heldur veizlur fyrir „Kanínurnar" sín-
ar, en það gerir hann venjulega fjórum til fimm
sinnum á ári; Hefner þar sem hann er í liðs-
könnun, þ.e. hann raðar öllum Kanínunum upp
og athugar hvort allt sé í lagi með þær. Annars
búa þær á tveim efstu hæðum hússins og borga
litla sem enga húsaleigu og setja svip á um-
hverfið fyrir herra Piayboy sjálfan. Svo eru
myndir þar sem hann er að sýna nýrri „leik-
svstur" elektróniska skemmtiherbergið, þar sem
veggirnir eru þaktir allskonar video-tækjum, þar
á meðal fullkomnum sjónvarpsmyndavélum, sem
hann notar til heimilisbrúks; Hefner þar sem
hann er að sýna sundlaugina, hreina paradís
með pólynesískum gróðri, og venjulega eru ein-
hverjar af „Kanínunum" á sundi í volgu vatn-
inu. Svo má auðvitað ekki gleyma þvi allra
helgasta: svefnherberginu. Þaðan ritstýrir Hefn-
er blaði sínu og einkum úr rúminu. Þetta er ekk-
ert venjulegt rúm, það er geysistórt, hringlaga
og búið allskonar tækjum, sem snúa því í allar
áttir og það er jafnvel hægt að láta það titra,
til afslöppunar. 28 manna starfslið annast heim-
ilishaldið. En er Hef hamingjusamur? Hafa
draumar hans rætzt?
— Ég er fullkomlega ánægður, segir hann. —
Eg vildi ekki skipta um stöðu við nokkurn ann-
an mann, hvorki lífs eða liðinn . . .
Hann situr við áttstrent skrifborð í vinnustofu
sinni. Veggirnir eru klæddir dökku valhnotutré
og gólfið grænu gólfteppi og allt í kringum hann
eru lágir, rúmgóðir skjalaskápar.
Það er klukkan 5,15 á miðvikudegi og Hefner
er nýkominn á fætur. Hann er klæddur Ijósum
buxum, hvítri skyrtu, sem er opin í hálsinn og
hvítri vestispeysu. Hann er fertugur að aldri.
— Hvað er velgengni? Ég myndi segja að það
væri það að komast sem næst því að æskudraum- ■ ■ ■ I
VTKAN 23