Vikan - 07.07.1966, Qupperneq 25
irtHMi&iifíihH
i!*!#HÍW0h‘
■'. ■'; *'' * * / ■' *: •
kvæmislífi. Hann vinnur sólarhringana ut, stund-
um 30—40 tíma í einu, borðar þegar hann man
eftir að gera það, drekkur stöðugt sodavatn, sef-
ur eins og ungbarn f ótta til níu stundir, fer svo
á fætur og byrjar upp ó nýtt.
Nýlega var sólarhringurinn hjá honum eitt-
hvað á þessa leið; hann fór á fætur síðdegis,
rétt fyrir klukkan fimm, talaði við blaðamann
til klukkan ellefu um kvöldið, þrátt fyrir alls-
konar truflanir og samtöl við starfsfólkið. Með-
an á samtalinu stóð, lét hann einkarakara sinn
klippa sig, einka-snyrtidömu laga neglur sín-
ar . . . Klukkan ellefu um kvöldið fór hann nið-
ur í svefnherbergi sitt, fór í náttföt og sökkti
sér yfir myndaefni þangað til klukkan 1.30 um
nóttina; þá komu þrír starfsmenn til að spila
,,Risk" við hann. Það er mjög flókið spil sem
Hefner hefur miklar mætur á, nú sem stendur.
Klukkan 5.30 hættu þeir að spila og þá sneri
Hefner aftur til vinnu sinnar. Hann rannsakaði
vandlega og samþykkti nokkrar myndateikning-
ar, hálfa tylft af síðum í næsta hefti. Svo vann
hann við The Playboy Forum (Póstinn) þangað
►' til seint um eftirmiðdaginn, þá lauk hann vinnu
sinni í tæka tíð til að halda stefnumót við Cynt-
hiu Maddox, sem er aðstoðarritstjóri við teikni-
t myndasíðurnar,- hún var einu sinni einkavinkona
Hefners, en var nú að koma með slatta af teikni-
myndum. Klukkan fiögur fór Hefner á 45 mín-
útna fund með forstióra kvikmyndahúsanna og
ræða við hann um möguleika HMH fyrirtækis-
ins á þeim vettvangi. Símasamtal við ellefu ára
gamlan son hans tók hálftíma; — Hefner á son
og dóttur úr hiónabandi sínu, (til þessa eina
hjónaband hans) sem lauk með hjónaskilnaði
fyrir 7 árum. Klukkan 6.30 um kvöldið sam-
þykkti hann prófarkirnar af „leiksystur" mán-
aðarins (Playmate of the Month), en það er allt-
af frumskilyrði að þær séu í lagi. Svo sneri hann
sér aftur að ritstióra-greinunum og vann við
þær alla nóttina. Klukkan sex um morguninn,
37 klukkustundum eftir að hann fór á fætur,
datt Hefner útaf í rúmið og steinsofnaði.
Það gefur að skiþa að Hefner er ekki bein-
línis hraustlegur í útliti. Hann er með innfalln-
ar kinnar, brún augun liggja djúpt i augntóft-
unum og dökkbrúnt hárið er orðið grásprengt.
En framkoma hans er mjög hressileg. Hann er
hreinskilinn, vingjarnlegur og ákaflega aðlað-
andi, en hann hefur líka geysi mikið sjálfsálit.
Hann talar hratt, með sterkum áherzlum og á
lágri óskýrri mállýzku Mið-vesturríkianna. Hend-
ur hans eru á stöðugri hreyfingu meðan hann
talar, það er eins og þær hætti aldrei að vinna.
— Ég hata svefninn, segir Hefner og hallar
sér yfir áttstrenda fundaborðið. — Lífið er allt-
of stutt, dagarnir eru of stuttir, þeir nægja mér
aldrei til dagsverksins. Það er það eina sem ég
er óánægður með. Ég er ákaflega þakklátur fyr-
ir það að hafa upplifað þetta allt svona snemma
í lífinu. Ef ég ann mér einhverrar hvíldar, ætti
ég að geta tórt í nokkur ár enn. En jafnvel þótt
ég ælti að deyja á morgun, finnst mér ég hafi
átt ríka og fullnægjandi ævidaga. Playboy upp-
fyllir allar mínar þarfir og þrár. Stundum finnst
mér að hann gegni sama hlutverki hjá ýmsum
öðrum, þótt þeir vilji ekki viðurkenna það.
Hvað er það sem gerir það að verkum að
Playboy tímaritið hefur náð svo gífurlegum vin-
sældum? Til að fá svar við því verður að fara
aftur í tímann og fylgja ferli Hefners sjálfs, því
varla hefur nokkurt tímarit verið byggt svo al-
gerlega upp af fjörugu ímyndunarafli eins ungs
manns.
Foreldrar hans voru guðhræddir meþodistar,
af sænsku og þýzku bergi brotnir. Þau fluttu til
Chicago frá Nebraska og Hefner eldri varð bók-
haldari hjá stóru alumin fyrirtæki. Á æskuheim-
ili Hefners var hvorki drukkið né reykt og eng-
ar bíóferðir leyfðar á sunnudögum. Hefner hef-
ur sagt að hann og Keith yngri bróðir hans hafi
alizt upp við algera einskorðun. Hann ásakar
samt ekki foreldra sína og ber enga reiði í brjósti
til þeirra. Hefner eldri er nú gjaldkeri í einu
fyrirtæki sonar síns og Keith hefur með þjálfun
starfsfólks Playboy-klúbbanna að gera. Hefner
hefur líka sagt að eitt þeirra afla sem standa
á bak við Playboy, sé hans eigin þrá eftir því
að reka nefið niður í hina ströngu siðferðiskenn-
ingu, sem hann þekkti svo vel á æskuárunum.
Hann virðist þó hafa búið við ósköp venju-
leg lífsskilyrði. Eftir að hann útskrifaðist úr
menntaskóla gegndi hann herþjónustu í tvö ár,
(skrifstofustörf í Bandaríkjunum) síðan fór hann
í háskólann í lllinois. Hann lagði stund á sál-
fræði og sóttist námið vel og fékk ágætis ein-
kunnir. Hann stofnaði skoptímarit við skólann,
skrifaði sögur og teiknaði skopmyndir í það,
söng með tríói á skólaskemmtunum og var trú-
lofaður skólasystur sinni, Willie Williams. Eft-
ir því sem herbergisfélagi hans í skóla, Robert
Preuss, sem nú er einn af framkvæmdastjorum
Playboy-fyrirtækianna, segir, bar hann með sér
að geta orðið eitthvað mikið. - Hann var mjög
skarpur náungi, segir Preuss. — Það var aldrei
neitt vafamál að hann átti eftir að komast ve!
áfram . . .
Fyrstu árin eftir að hann útskrifaðist úr skóla
árið 1949, var eins og Hefner fyndi ekki sjálf-
an sig. Hann giftist Millie Williams, eignaðist
tvö börn, og reyndi að koma sér áfram við mis-
munandi störf. Hann fór eitt ar í framhaldsnam
við háskólann Northwestern University, lagði þar
stund á sálfræði með það fyrir augum að ger-
Framhald á bls. 39.
VIKAN 25