Vikan - 07.07.1966, Síða 36
dæmdur í útlegð frá sjónvarp-
inu og frá hljómleikahaldi um
nokkurra mánaða skeið.
Nú fór að síga á ógæfuhlið-
ina fyrir Proby. Ekki bætti úr
skák, þegar hann söng lagið
„Somewhere" úr söngleiknum
West Side Story á plötu. Gagn-
rýnendur fóru hinum háðuleg-
ustu orðum um túlkun hans og
sögðu, að hann hefði afskræmt
dásamlegt lag. Þrátt fyrir þessar
ófarir hélt Proby áfram að sann-
færa sjálfan sig og aðra um það,
að enginn söngvari væri honum
fremri.
Þegar Proby fékk aftur leyfi
til að koma fram á hljómleikum,
lýsti hann því yfir, að hann
skyldi sjá til þess að buxnaævin-
týrið endurtæki sig ekki. Margir
ráku upp stór augu, þegar hann
birtist í sviðsljósinu á ný — í
samfesting. En því miður —
samfestingurinn dugði ekki held-
ur. Hann rifnaði hvað eftir ann-
að! Að lokum var svo komið,
að læknar ráðlögðu Proby að
hafa hægt um sig. Hann þyldi
greinilega ekki allan hamagang-
inn á sviðinu — frekar en sam-
festingurinn.
Þegar hér var komið sögu tóku
aðdáendur Probys smátt og
smátt og smátt að missa áhuga
á honum. Hann söng ekki leng-
ur fyrir troðfullu húsi eins og
áður fyrri.
Fyrir nokkrum mánuðum kom
hann fram á hljómleikum í
Kaupmannahöfn. Örfáar hræð-
ur mættu til þess að hlusta á
hann og það var greinilegt, að
hrifningin var ekki upp á marga
fiskaii-i. Þetta varð Proby sjálf-
um ljóst, og að hljómleikunum
loknum tilk.vnnti hann alvarleg-
ur í bragði, að hann hefði á-
kveðið að hætta með öllu að
syngja. Hann sagði skilið við
fylgisvein sinn, sem hafði verið
hans auðmjúkur þjónn á veldis-
dögunum og sendi hann aftur
heim til föðurhúsanna — til
Bandaríkjanna. Sjálfur hafði
hann talsverðar áhyggjur, þegar
hann sneri aftur til Bretlands
frá Danmörku, því að atvinnu-
leyfi hans var runnið út. Öll
nótt virtist úti.
En Proby virðist ekki hafa dá-
ið ráðalaus. Þær fregnir hafa
borizt að hann sé kominn á kreik
einu sinni enn. Svo mikið er
víst, að ráðgert er að kvik-
mynd verði gerð um söngferil
hans og hefur okkur verið sagt
að hún eigi að heita „Tilkomu-
mesta saga, sem aldrei var sögð“.
Svo mikið er víst, að hann sendi
frá sér nýja plötu nýlega með
laginu „You-ve Come Back“.
(Þú ert kominn aftur).
Enn í dag segir Proby:
— Ég er bezti söngvari í heimi
og aðdáendur minir krefjast þess
að ég komi aftur.
Hann er eins og fugl, sem ekki
er hægt að handsama. Hann kem-
ur alltaf aftur og aftur ú
við mig að skilnaði? Þú hefur
heimilisfang mitt í Viterbo. Láttu
mig vita, þegar þú hefur tekið á-
kvörðun.... kannski sendirðu
mér símskeyti. . . . “
„Já, það er sagt að ástin geri
menn stundum glámskyggna,"
varð mér að orði.
„Það er þó hverju orði sann-
ara.“
Fáum mánuðum síðar stóð
svo brúðkaupið, loksins, í kirkju
heilags Pasquales Bailonne. Þeg-
ar hinni kirkjulegu athöfn var
lokið, var gestum boðið til veizlu-
verðar í nálægu veitingahúsi, að
Via della Lungarina. Þegar kom
út úr kirkjunni laumaðist ég á
brott úr hópnum, ásamt nokkrum
öðrum, sem ekki ætluðu sér að
sitja veizluna. Það var hellirign-
ing og ég hraðaði för minni. Og
þá gerðist það, að ég heyrði ein-
hvern kalla: „Allessandro . .. “
Ég leit um öxl og sá hvar
Erimino veifaði til mín, þar sem
hann stóð inni í þröngri hliðar-
götu. „Ég var í kirkjunni og
fylgdist með allri athöfninni. Ég
var skammt frá altarinu," sagði
hann.
„Hrífandi athöfn, fannst þér
það ekki?“
„Og veiztu hvað? Hún kom
auga á mig, þó að ég stæði á bak
við súlu. Og einmitt andartaki
áður en að hún svaraði spurn-
ingu prestsins játandi, þá leit
hún til mín og brosti. Ó, þessar
konur, þessar konur. . Á ég
að segja þér eitt, hún hefur
gifzt gegn vilja sínum, og ein-
hverntíma, kannske áður en
langt um líður, þá getur farið
svo, það er að segja ef ég þá ...“
„Ástin byggist á tilfinningun-
um,“ sagði ég. „Láttu allt kyrrt
liggja eins og orðið er. Þú átt
tilfinningar hennar. Og hvað fær
Ettore svo, þegar allt er skoðað?
Haminn, ekkert nema haminn.“
Þetta virtist sannfæra hann
fullkomlega. „Þetta er rétt sagði
hann. „Þegar um konur er að
ræða, ber allt að sama brunni.“
„Já ,svo sannarlega. Þessar
konur, þessar konur. . . “
Kóngur eða bara
vælukjói
Framhald af bls. 17.
sviðinu, heldur hélt hann áfram
með efnisskrá sína eins og ekkert
hefði í skorizt. Nú var mörgum
nóg boðið.
í sjónvarpsþætti nokkru síð-
ar endurtók sama sagan sig.
Proby missti niður um sig bux-
urnar fyrir framan alþjóð. Af-
leiðingin var sú, að hann var
Blæfagur fannhvítur þvottur meS
Sj.'lfvirka þvottavélin yðar verður fyrst full-
komin, er þér notið Skip — þvf það er ólfkt
venjuiegu þvottadufti.
Skip fyllir ekki vél yðar með froðu, sem
veldur yfirrennsli og vatnssulli, og minnkar
þvottahæfni hennar, heldur verður skolunin
auðveld og fullkomin.
Pvottahœfni Skip er svo gagnger að þér fáið
ekkifantihvítari þvott.
Notið Skip og sannfærist sjálf.
dðþ-serstakSega framleitt fyrir sjálfvirkar þvottavélar
XB-SKPI a/ICE-644?
í5(> VIKAN