Vikan - 07.07.1966, Síða 39
Herra Playboy
Framhald af bls. 25.
ast kennari, en hætti við það. Hann
gat aldrei losnað við drauma sína
um að koma upp sínu eigin tíma-
riti.
— Eg býzt við að ég hafi alltaf
haft áhuga á útgáfu tímarita, sagði
Hefner nýlega. — Þegar ég var átta
ára gaf ég út blað í nágrenninu,
það kostaði eitt cent. í menntaskóla
stofnaði ég dagblað, það er gefið
út ennþá, og alla tíð, bæði á
menntaskóla og háskólaárum mín-
um gerði ég mikið af því að skrifa
sögur og greinar og teikna. Eg las
öll tímarit sem ég náði í og var
sérstaklega hrifinn af Esquire ....
Arið 1951 fékk hann vinnu h|á
Esquire við að hreinrita. Það var
reyndar ekki sú vinna sem hann
hafði hugsað sér. Eftir árið flutti
tímaritið til New York og Hefner
var boðið 80 dollara vikukaup, ef
hann vildi koma með. Hann setti
upp 85 dollara. Esquire neitaði og
Hefner fór frá þeim.
Það hefur verið sagt að Hefner
hafi einangrað sjálfan sig, eftir að
hann fór frá Esquire, en svo hafið
framkvæmdir að stofnun eigin
blaðs, árið síðar. En sannleikurinn
er sá að hann fór að vinna fyrir
blaðaútgefandann Georg Von Ros-
en i Chicago. Hann gaf út ýmsar
tegundir keðjurita sem hétu Art
Photography, Modern Man og eitt-
hvað í þá áttina og voru yfirleitt
skreytt myndum af léttklæddum
stúlkum. Hefner vann við dreifing-
una og á þessu ári kynntist hann
persónulega mörgum þeirra heild-
sala sem seldu slík blöð til blaða-
turna og smáverzlana og fékk hald-
góða þekkingu á þessari hlið út-
gáfustarfseminnar, sem varð hon-
um ómetanleg siðar meir. Hann
komst líka að því að myndir af
nöktum stúlkum gáfu góða sölu-
möguleika.
Um tíma hafði Hefner reynt að
fá menn til að leggja fé í útgáfu-
fyrirtæki, sem hann kallaði Chicago
og átti að fjalla um gleðihliðar
borgarlífsins. Svo fór hann að
hugsa stöðugt um þá hugmynd sína
að gefa út skemmtitímarit fyrir
karlmenn. Það átti að vera glæsi-
legt tímarit fyrir heimsmenn og
vera töluvert vogað. Það átti að
birta skop (teikningar, skrítlur og
háð), stuttar og langar sögur. Hefn-
er hafði komizt að því að þar sem
höfundarréttur gekk úr gildi, 56 ár-
um eftir fráfall höfundar, var hægt
að fá mikið af ágætis efni ókeyp-
is. Blaðið átti líka að vera fullt af
stúlkumyndum og sýna vaxtarlag
fallegra stúlkna, og á því sviði fékk
Hefner stórkostlega hugmynd.
Þetta var árið 1953 og Marilyn
Monroe var orðin þekkt stjarna.
Nektarmynd af henni hafði verið
gefin út í almanaki, þegar hún var
fyrirsæta. Þessi mynd var orðin
hálfgerð furðusögn, en fáir höfðu
séð hana. Hefnir hafði upp á út-
gefanda almanaksins og tryggði
Gillette Super Silver gefur yður fleiri rakstra. en nokkurt annaC rnkblaO, sem þér hafi® áSur notati. Miklu fjeiri rakstra. Nyja
Gillette Super Silver rakblatlitt hefur pessa miklu teknisku kosti yfir öll önnur rakblötl: Störkostlegt nýtt, rytffrftt stái huða’ö meö EB7
Gillette uppfinning—beittari egg, sem endist lengur og gefur mýkri rakstur.
Maður uppgötvar stórkostlegt
nýtt endingargott rakblað, sem
gefur miklu, miklu, íleiri og
þægilegri rakstra, en nokkurt annað
rakblað, sem þér hafið nokkru sinni
notað, og auðvitað er það ífá Gillette.
Gillette Super Silver
<: Gillette
0 SUPER SILVER
Z STAINLESS BLADES
engin verðhœkkun
sér birtingarrétt á myndinni fyrir
200 dollara. Þessa 200 dollara
fékk hann að láni gegn tryggingu
í bílnum sínum.
Hefner eyddi öllum fristundum
sínum ( tímaritið. Hann var óán-
ægður með eigin tilraunir og beit
í það súra epli að fá sér til aðstoð-
ar lausa-teiknara, Arthur Paul að
nafni, og bauð honum sem borgun
hlutabréf í útgáfunni. Paul er ekki
ennþá Ijóst hvað kom honum til
að taka þessu tilboði.
— Utlitsteikningar Hefners voru
hræðilegar, segir hann, og texta-
efnið var langt frá þeim hugmynd-
um sem Hefner hafði gert sér. En
Hefner kom honum fyrir sjónir sem
„magnþrunginn, — eitthað sem ekki
var svo gott að ganga fram hjá",
og sú hugmynd að verða listfræð-
legur ráðunautur hins nýja tímarits
var freistandi, svo að hann sló til.
Stofnfé Hefners varð 600 dollarar,
sem hann fékk að láni ( tveim
bönkum, með því að veðsetja hús-
gögnin sín. Hann fékk gamlan vin
sinn, Eldon Sellers til að kaupa
hlutabréf fyrir 2.000 dollara, og
eitthvað smávegis náði hann ( á
sama hátt hjá nokkrum kunningj-
um slnum. (Eldon Sellers er nú einn
af aðstoðarritstjórum Playboy).
Smiðshöggið var rekið á ttmaritið
á eldhúsborðinu heima hjá Hefner.
Þegar fyrsta eintakið kom út í des-
VIKAN 39