Vikan - 07.07.1966, Qupperneq 47
Þessa léttu og hentugu dýnu er þægi-
legt að hafa með sér á sólbaðstaðinn.
Hana má vefja upp og halda á sem tösku.
í ytri vasa hennar má stinga lestrar-
efninu og sólgleraugunum, en í innri vas-
ann má hafa baðfötin.
Efni: IJm 3 m. af grófu bómullarefni,
(gjarnan vatnsþétt) 90 sm. breiðu —
svampur 180X40 sm. á stærð og 1—2
sm. á þykkt — 44 sm. millifóður (Vlise-
line) af þykkustu teg. — flatur trélisti
40X2,5 sm. — 4 hnappar.
Sníðið fyrst stóru stykkin eftir skýr-
ingarmyndinni 240X45 sm.
Á stk., sem snýr út (skýringarmynd
A), er saumaður vasi 35X22 sm. og á stk.
sem snýr inn (skýringarmynd B), vasi
30X40 sm. Sníðið síðan stykki úr milli-
fóðrinu 40X60 sm., merkt með punkta-
SOLBAÐSDYNA
Á SVÖLUNUM,
í GARÐINUM,
VIÐ SJÓINN
0G Á FERÐA-
LÖGUM -
ALLS STAÐAR
REYNIR FÓLK
AÐ FARAí
SÓLBAÐ,
ÞEGAR ÞESS
ER K0STU*.
línu á mynd B og saumið fast á röngu A stykkis.
Sníðið þá annað stk. úr millifóðri 3X40 sm. sem hanka, ldæðið hann efni
og festið vandlega í gegn um efni og millifóður fyrir ofan vasann á réttu
A stykkis. Saumið nú saman A og B stk. dýnunnar, leggið þau réttu mót
réttu og saumið allan hringinn, skiljið aðeins eftir ósaumuð um 5 sm. í ann-
arri hliðinni við hankann (sjá punktalínur báðum megin við hann) og á
endanum til þess að snúa við. Snúið nú dýnunni við, rúllið saumana út
í brúnirnar, þræðið og pressið.
Saumið tvo sauma í gegn um dýnuna með 5 sm. millibili sinn hvorum
megin við hankann. Stingið listanum milli stungnanna og saumið fyrir end-
ann í höndunum.
Saumið siðan þvert yfir dýnuna rétt fyrir neðan vasann á B stk. Látið
nú svampinn í dýnuna og saumið fyrir endann í höndum.
Saumið 1 sm. frá brún allt í kring um dýnuna. Saumið merkt hnappagöt
á stk. A. Saumið tvo hnappa í gegnum dýnuna eftir merkingu A stk. og
hafið 2 litla hnappa hinum megin, svo slitni síður. Brjótið síðan dýnuna
saman og lmeppið.
UTVENOIG A
/NNVgNOIÚ B
Þetta einfalda sólskýli er búið til úr segldúk. Hver hlið mæl-
ir um 2 m. og rör fyrir 4 sköft eru saurnuð á horn og enda.
Síðan er sköftunum stungið í rörin og áfram niður eins
djúpt og þarf svo sólskýlið festist. Gjarnan má festa í
sköftin tjaldhælum eins og myndin sýnir.
\J