Vikan - 07.07.1966, Page 48
ANGELIQUE OG SOLDÁNINN
Framhald af bls. 45.
— Svona, svona, verið ofurlítið rórri, sagði Osman Faraji myndug-
lega.
Hann gekk fram og aftur meðfram röð af blæjuklðsddum verum,
grandskoðaði vandlega búning og skreytingu hverrar einnar, og gekk úr
skugga um, að andlitsblæjurnar væru svo vel festar, að ekkert sæist
annað en tvö dökk augu eða ljós, öll ljómandi af tilhlökkun.
Þegar konurnar voru tilbúnar til að horfa á hátíðahöld eða skemmt-
anir litu þær allar eins út — keilulaga fatapinklar, sem vógu salt á litlum
rauðum eða gulum skóm með upphringuðum tám. Aðeins hundrað
uppáhaldskonur áttu að fara, og Mulai Ismail átti að velja úr hópnum
með því að láta vasaklútinn sinn detta fyrir framan Þá, sem hann kaus
sér til skemmtunar þann dag — eða öllu heldur þá nótt. Þannig hafði
honum verið sagt að stórsoldáninn i Konstantínópel hagaði sér í sínu
kvennabúri.
Þegar einhver konan hafði verið hunzuð of lengi tók Osman Faraji
hana úr hópnum og sendi hana í eitthvert annað kvennabúr og lét
hana taka til starfa þar. Þessvegna var versta refsingin af öllum að
fá ekki að vera „viðstödd“. Það rýrði vonina um að fá að taka þátt í
þeirri gleði, sem hjákonum soldánsins var búin. Það var upphafið að
útskúfuninni, að ellinni, að ruddalegri brottvikningu úr þessu iburðar-
mikla kvennabúri. Yfirgeldingurinn réði öllu um útskúfun og frama,
og hann kunni að ógna með brottvikningu, þegar honum þótti það eiga
við. Þegar kona fékk ekki að vera ,,viðstödd“, var hún einnig svipt
annarskonar ánægju, svo sem gönguferðum, horfa á skemmtanir og
fara í lítil ferðalög, sem Osman Faraji stofnaði oft til með eftirsóknar-
verðustu meðlimum kvennabúrsins.
Á þessum degi brustu þær, sem ekki voru „viðstaddar", í grát og
gnístran tanna, Þegar þær heyrðu múskettuskotin og hróp fjöldans,
sem gáfu til kynna, að hátíðahöldin voru að hefjast.
Osman Faraji kom sjálfur til að Þagga niður í þeim. Konungurinn
var orðinn þreyttur á að heyra grát og stunur í kvennabúrinu sínu.
Óskuðu þær eftir sömu örlögum og höfðu orðið hlutskipti kvenna og
dætra Abd el Maleks? Þegar Abd el Malek dó af drepi, viku eftir að
hönd hans og fótur höfðu verið höggvin af, hófu konur hans harma-
kvein sín að nýju, og soldáninn hafði neyðzt til að ógna þeim með
tafarlausum dauða, ef þær létu ekki af þessum óhljóðum. 1 nokkra daga
héldu þær aftur af sér, þegar soldáninn var í höllinni, en þegar hann
fór út, byrjuðu þær að nýju. Svo konungurinn lét kyrkja fjórar þeirra
fyrir augunum á þeim sem eftir voru.
Eftir þessa róttæku áminningu Osmans Farajis, héldu þær sem eftir
voru skildar, aftur af grátinum og tóku að leita að einhverri rifu, sem
þær gætu séð út og fylgzt með einhverju af því, sem fram færi.
Þegar yfirgeldingurinn kom aftur, fór hann framhjá íbúð Angelique,
þar sem þjónustustúlkur hennar voru að vefja hana í blæjur. Henni hafði
ekki dottið í hug að gráta og kveina, þótt hún hefði verið skilin eftir,
en yfirgeldingurinn hélt áfram þeim hættulega leik að leyfa tilvonandi
uppáhaldseiginkonu soldánsins að sjá tilvonandi húsbónda sinn, án
þess að hann sæi hana.
Þar af leiðandi varð Angelique alltaf að blanda sér i hóp kvennanna,
sem fylgdu soldáninum á gönguferðum hans, eða þegar hann kom opin-
berlega fram. Ef hann kæmi til með að varpa of forvitnislegu auga á
þann fjölda af hvítum og grænum púpum, sem fylgdu honum eftir, áttu
þrír fráneygir geldingar að fela Angelique eða laumast með hana burtu.
Þetta var aðferð Osmans Farajis til að kynna fyrir henni hegðun og
eðli Mulai Ismails, einnig til að yfirvinna andúð hennar og gera henni
Ijósa ábyrgðina. Hún skelfdist enn ofsafengin köstin, sem hann fékk,
en hún myndi smám saman venjast þeim. Hann ætlaðist til þess, að
hún samþykkti án skilyrða húsbóndann og hlutverkið, sem hann hafði
ætlað henni.
Angelique blandaðist í hóp kvennanna, sem gengu í halarófu út í
garðinn. Enska stúlkan var þarna blæjulaus og leiddi tvær litlar, fal-
legar stúlkur með ljóst hár og gullið .hörund — tvíbura, sem hún hafði
alið soldáninum. Fæðing þeirra hafði kostað hana titilinn eiginkonu
númer eitt, Leila Aisheh hafði borið honum son.
öll réttindi áslcilin — Opera Muncbi, Paris Franrih. í næsta bl.
Sólböðin Framhald af bls. 46.
sem koma í veg fyrir að húðin of-
þorni, og rétt er að reyna kremið
áður en farið er í sólbað, sérstak-
lega sé farið á þá staði, þar sem
ekki er hægt að hlaupa í næstu
búð og kaupa annað krem. Það er
alltaf sá möguleiki fyrir hendi, að
konan sé ofnæm fyrir einhverju
vissu kremi, og þá er slæmt að
standa uppi og geta ekki notað
það, en hafa þá ekkert til varnar
sólbrunanum. Venjuleg sólkrem
gera húðina ekki brúnari, öðru vísi
en þannig, að hægt er að liggja
lengur ( sólinni án þess að brenna
og fá með því meiri sólbrúnan lit
á húðina. Önnur krem gera húðina
aftur á móti brúna, án þess að sól-
böð þurfi til. Þau ganga í sam-
band við önnur efni í húðinni og
gera hana brúna. Reyndar verður
blærinn oft fremur gulleitur og mis-
fallegur, eftir því hvernig húðin tek-
ur við efninu. Það er ekki hægt að
þvo litinn alveg burt af húðinni,
en það eyðist smám saman, og sé
kremið ekki borið alveg jafnt á,
má búast við flekkjum og ójöfn-
um lit. Það er ekki ráðlegt að nota
það í andlitið, en t.d. á fæturna er
það ágætt, sérstaklega meðan þeir
eru enn hvítir og óskemmtilegir eft-
ir veturinn — en berfætt getur kon-
an alls ekki verið á almannafæri
fyrr en fæturnir eru orðnir brúnir.
Þetta efni er samt í flestum tilfell-
SÚTAÐAR
GÆRUR
KÁLFSKINN
TRIPPASKINN
★
Mikið
úrval
★
Hagkvæmt
verð
Sútunarverksmiðja
SLÁTURFÉLAGS
SUÐURLANDS
Grensásvegi 14
Sími 31250
Einnig
Laugavegur 45
Sími 13661
um alveg óskaðlegt og getur verið
gott að grípa til þess öðru hverju.
Notið sólgleraugu í sterkri sól,
svo að ekki myndist hrukkur við
augun. Öðru hverju má taka þau
af og leggja bómull yfir augnlok-
in, til þess að ekki myndist hvítir
hringir undir gleraugunum, en sé
gengið gleraugnalaus í skuggan-
um, þegar sólin skín, brúnast húð-
in kringum augun, þannig að lítil
hætta er á förum eftir gleraugun.
Fólk verður nefnilega brúnt undir
berum himni, þótt sólin skíni ekki
beint á það.
☆
Gægzt í gegnum
örlagatialdið
Framhald af bls. 15.
um, sem sanna tilvist sína með
atvikum sem hlustandinn kann-
ast við úr fortíðinni.
Það hefur verið sagt frá at-
vikum í þessum tilfellum, þar
sem miðillinn verður svo líkur
andanum, að hann er fær um
að sýna rödd hans, fas og venj-
ur.
Mönnum eru gefnir mismun-
andi hæfileikar, sem þeir skilja
sjálfir að takmörkuðu leyti, og
aðrir ef til vill alls ekki. Það
eru til mörg dæmi um fólk sem
hefur fjarskynjunarhæfileika,
með hæfileikum til dáleiðslu og
sjálfsdáleiðslu. Nýlega var sagt
frá tilfelli í Ameríku, þar sem
kona var fær um að segja til um
lit á vefnaði, með því einu að
snerta hann.
Flestir hafa einhverntíma orð-
ið fyrir áhrifum af fjarskynjun
eða fyrirboðum, en almiennt kall-
ar fólk það tilviljun. Mæður og
börn, hjón, hafa oft hugsana-
tengsl sín á milli, sem eru ó-
skiljanleg þeim sjálfum. Mörg
okkar hafa upplifað það að sím-
inn hringir og við vitum fyrir-
fram hver það er, eða að við
erum að hugsa um gamlan kunn-
ingja, sem við mætum svo á
næsta götuhorni, eða dreymir um
vin og fáum svo bréf frá hon-
um næsta dag. Auðvitað er ekki
hægt að skýra marga drauma
sína með hversdagsleika undan-
farinna daga eða sálfræðilegum
tilvikum. Draumurinn getur rætzt
í hverju smáatriði og sýnt að
um það leyti hefirðu verið í
sambandi við sálræna öldu ein-
hvers sem er víðsfjarri.
☆
f fullri alvöru
Framhald af bls. 2.
og hinum auðskiljanlegu töfrum
þess, hann getur heldur ekki orð-
ið til leiðbeiningar nemendum í
skóla. Og eins og er, skilst mér
að ástandið sé þannig, jafnvel í
hinum æðri menntastofnunum,
að allt drukkni í kommufræðun-
um. Ef við eignumst góða rit-
48 VIKAN