Vikan - 07.07.1966, Blaðsíða 49
plast
stólar
höfum hafið framleiðslu ó fjarlægðarstólum fyrir steypustyrktar-
jórn, bæði í loft, veggi og súlur.
með tilkomu plaststólanna vinnst eftirfarandi:
■ við spörum peninga. ■ við aukum öryggið. 9 jórn kemur
aldrei út úr steypu og viðgerðarkostnaður af þeim sökum fellur
niður. ■ styrkur jórnsins heldur sér því aðeins; að jórnið sé 6
þeim stað, sem það ó að vera.-plaststólarnir tryggja það. ■
notkun plaststólanna er einföld; (sbr. skýringarmyndir) ogtryggir
að jórn séu rétt í steypu, þegar steypt er.
hcldur jórni i fjarlægð 1,4 cm fró gólfi.
fjorlægðarstólar fyrir steypustyrktarjórn í
loftplötur: óætlað er að tvo stóla þurfi ó
hvern m-, en allir sverleikar ganga i stóla
þessa, allt fró 8 til 25 mm.
hcldur jórni í fjarlægð 2,2 cm fró vcgg.
fjarlægðarklossar fyrir steypustyrktarjórn í
veggi: óætlað er að einn til tvo stóla þurfi
ó hvern m-. einnig gert fyrir alla sverleika.
Sendum á staði i Reykjavik og nógrenni
GRENSÁSVEGI 22 REYKJAVÍK SÍMAR 33810 12551
iðhplast
höfunda úr þeim hópum, sem nú
eða nýlega hafa lokið námi í
skólum, þá verður það þrátt fyrir
móðurmálskennsluna en ekki
vegna hennar. G.S.
Banvæn sníkjujurt
Framhald af bls. 13.
— Víst er þetta hann, sagði
Jeb. — Hann sagðist heita Mill-
er. Svo beindi hann augum sín-
um að Victor. — Hvernig gátuð
þér fengið yður til þess að eitra
fyrir þennan góða mann? Hvern-
ig gátuð þér fengið yður til að
fremja svona hryllilegan verkn-
að?
— Ég hefi aldrei séð þennan
karl fyrr, sagði Victor rólega. —
Hann hlýtur að vera með lausa
skrúfu! Þess utan var ég á Spáni
þegar frændi minn dó. Hann hef-
ur trúlega ekki verið nógu ná-
kvæmur. Ef einhver hefur plant-
að eitursveppum innan um æti-
sveppina, þá var það að minnsta
kosti ekki ég.
— Það plantaði enginn eitur-
sveppum innan um ætisveppina
hans. Slíkt hefði Penfield upp-
götvað strax, sagði lögreglufor-
inginn. — Morðinginn notaði
sprautu. Að öllum líkindum vann
hann eitrið úr eitursveppum og
sprautaði því inn í ætisveppina,
sem voru orðnir þroskaðir. Þetta
hefur verið anzi sniðuglega hugs-
að. Það hefði líklega heppnazt,
ef Jackson hefði ekki fundið
Penfield deyjandi og sá að þetta
var sveppaeitrun, enda sannaði
réttarkrufningin það. Jackson
var hjá Penfield, þegar hann
tíndi sveppina og gat ekki skil
ið að hann hefði ruglað saman
tegundunum.
— En það hlýtur hann að hafa
gert, sagði Victor. — Ég hefi
aldrei átt neina sprautu. enda
myndi ég ekki vita hvað sneri
aftur eða fram á slíku verkfæri.
— En svo er það furðulegt að
fingraförin yðar skuli vera á
þessari hérna, sagði lögreglufor-
inginn og tók aflangan hlut upp
úr skrifborðsskúffu sinni. — Þeir
segja það í Washington að fingra-
för yðar séu á þessari sprautu.
Þeir fundu þau í nafnaskrá hers-
ins.
Victor horfði á þennan hlut og
gapti af undrun. Þetta var ó-
notalega líkt sprautunni sem
hann hal(ði notað. Hann fann
hvernig magi hans dróst saman.
— Hvar ... ? Hvernig ... ?
— Það var tamdi skjórinn hans
Jacksons, sagði lögregluforing-
inn. — Eins og þér vitið er skjór-
inn hrifinn af öllu sem glitrar.
Venjulega fljúga þeir heim í
hreiðrið með það sem þeir finna.
En þessi skjór færir Jackson alla
dýrgripi sína. Jeb sá strax hvern-
ig í þessu lá. Hann' sá að það
gat verið að þér hefðuð spraut-
að eitri í ætisveppina, þessvegna
sneri hann sér til okkar. Þetta
var klaufalegt af yður, Eliot. Ég
meina að það var klaufalegt að
skilja eftir fingraför. Þér hefðuð
átt að þurrka af sprautunni og
grafa hana svo kyrfilega niður.
Lögregluforinginn hristi höfuð-
ið, eins og hann væri vonsvik-
inn.
Victor hugsaði til þéttra þvrni-
runnanna í botni gjárinnar. Þang-
að komst enginn maður, en fugl-
skrattinn gat auðvitað komizt
þetta, eins og ekkert væri....
☆
Vinsæli lagasmiður
Framhald af bls. 16.
The Bells". Á fjögurra laga plöt-
únni „Kwyet Kinks“ er m.a. lag
hans „Don’t You Fret“, en á
þeirri plötu er einnig lag eftir
bróður hans, Dave. Það heitir
„Wait Till The Summer Comes
Along“. Ray hefur látið í ljós
mikla ánægju yfir hinum ótví-
ræðu hæfileikum bróður síns, en
hitt er svo annað mál, að margir
þykjast greina áhrif frá stóra
bróður.
Ray trúir því, að hann sé góður
lagasmiður, og til þess að hann
missi ekki sjálfstraustið, sann-
færir hann sjálfan sig um, að
hann sé sá eini, sem máli skipti.
— Mér er mest í mun, að lög-
in mín eigi eftir að heyrast á
ókomnum árum, segir hann.
Ray hefur nýlega lokið við
að semja titillag fyrir næstu
kvikmynd Elvis Presley, en nú
er hann önnum kafinn við að
semja kvikmyndahandrit að
fyrstu kvikmynd The Kinks.
Ekki er vitað, hvenær sú kvik-
mynd verður tilbúinn, en Ray
leggur sig allan fram við að
gera hana sem bezta úr garði
og hefur þegar fengið ýmsa úr-
vals leikara til þess að koma
fram í myndinni ásamt The
Kinks.
Cilla veit hvaS hún
syngur
Framhald af bls. 16.
gleymast ekki. En hér í Bretlandi
höfum við aðstöðu til að koma
fram í sjónvarpinu og getum vel
komizt af ón þess að senda fró
okkur plötu.
Og nú hefur Cilla sent frá sér
annað lag, sem nefnist Alfie, og er
úr samnefndri kvikmynd. Hitt lagið
á þessari plötu er komið undan
penna Bobby Wills. Bobby þessi
er hjálparkokkur Cillu og fylgifisk-
ur, er hún kemur fram á hljómleik-
um. Á öndverðu þessu ári gekk sú
saga fjöllunum hærra, að kærleik-
ur væri milli hans og Cillu. Það kom
þó fljótt á daginn, að þessi saga
var runnin undan rifjum Bobba,
sem gerði sér þær gyllivonir að
Cilla vildi ganga að eiga hann.
En blaðran sprakk með háum hvelli,
þegar Cilla lét þá yfirlýsingu á
þrykk út ganga, að ekkert væri
hæft í orðróminum.
Lulu...
Framhald af bls. 17.
þessi atburður ætti eftir að gerbreyta
lífi hennar. Því að sú varð einmitt
rauninl Lagið sló i gegn — eins og
sagt er — það komst á vinsældalist-
ann og áður en langt um leið var
nafn Lulu á hvers manns vörum.
Þannig gekk Lulu sín fyrstu skref á
frægðarbrautinni, en eftir þeim þyrn-
um stráða vegi hefur hún arkað í tvö
ár — og eru leiðarlokin hvergi sjáan-
leg. Hana dreymir um að fá tæki-
færi til að syngja í söngleikjum.
Söngstíll hennar er nú orðinn allur
annar en á fyrstu plötu hennar og
ber nýjasta lagið hennar, „Call me“,
það greinilega með sér.
Sér til aðstoðar hefur Lulu alltaf
haft vini sína, sem hvöttu hana til
að syngja í fyrsta skipti — The
Gleneaglas. Þeir hafa að vísu skipt
um nafn og heita nú The Luvvers —
sem er auðvitað ósvikin skozka!
VIKAN 49