Vikan - 18.08.1966, Blaðsíða 10
Golf er sport, sem nýtur vax-
andi hylli hér á landi, en verð-
ur ekki iðkaS, nema góð að-
staða sé fyrir hendi og golfvell-
ir eru að jafnaði mikil og dýr
fyrirtæki. Golfvöllur Golfklúbbs
Reykjavíkur er við Grafarholt,
en Golfklúbbur Ness hefur gert
ágætan völl á Seltjarnarnesi og
það er ágæt þátttaka á hverjum
degi og kvöldi, enda er golf í-
þrótt fyrir fólk á öllum aldri.
10 VIKAN
Jónatan Ólafsson, Loftssonar útgerðar-
manns, púttar, þ.e. blakar kúlunni
síðasta spölinn að holunni. Jónatan
er 17 ára, en unglingar allt frá 14
ára aldri geta náð ágætum árangri í
golfi.
Myndin til vinstri:
Kolbeinn Pétursson, tæknifræðingur
púttar eins og golfmenn kalla það.
Því miður tala þeir um að húkka og
splæsa og flötin kringum holuna lieit-
ir á þeirra máli grín. Þeir þyrftu að
fá orðhaga menn til aðstoðar við að
iosna við enskuna, líkt og knattspyrnu-
menn hafa gert.
Þarna .sést, hvernig á að fara að £>
því. Frederic Riley, enskur atvinnu-
maður í golfi og kennari hjá Golf-
klúbb Ness, gefur kúlunnl högg. Hann
slær allt að 250 metra í beztu högg-
um, en það þykir sérlega gott. Riley
kennir alla daga og einnig á kvöldin.
Ilann er í sérflokki hér; enginn kemst
nærri honum.