Vikan - 18.08.1966, Side 28
KAUPIÐ ÞIÐ STÓL, ÞÁ KAUPIÐ I
GÓÐAN STÓL - NORSKI
HVÍLDARSTÓLLINN
FRAMLEIÐANDI ÍSLENZK HÚSGÖGN H F.
KÓPAVOGI AUÐBREKKU 53 SÍMI 41690
Síðasta sameiginlega
fyrirtæki stórveldanna
Framhald af bls. 14.
þetta að eyðileggjast, svo þjóð-
in hefði enga möguleika að lifa
af ósigurinn, sem Hitler taldi
bleyðimennsku hennar hafa vald-
ið. Speer sýndi þá þann mann-
dóm að beita áhrifum sínum til
að hindra framkvæmd þessarar
brjálæðislegu skipunar og tókst
það að miklu Ieyti. Hann reyndi
einnig að koma Foringjanum fyr-
ir kattarnef með því að leiða eit-
urgas niður í loftvarnabyrgið til
hans, en það mistókst. Við Niirn-
bergréttarhöldin kom Speer
mannlega fram og reyndi í engu
að gera lítið úr sínum hluta af
ábyrgðinni á glæpum nazista.
Hann er nú 61 árs.
Bæði Speer og von Schirach
voru dæmdir í tuttugu ára fang-
elsi og á því að láta þá lausa í
haust. Það er sagt, að Speer sé
enn það tápmikill, að hann geti
sem bezt hafizt aftur handa sem
arkitekt, þegar hann sleppur út.
Hann á fjölskyldu, sem bíður
hans óþolinmóð. Von Schirach er
í kunningsskap við aðalsfrú eina,
Karin von Matuschka-Stein að
nafni. Hún er þakklát Baldri fyr-
ir greiða, sem hann gerði henni
á stríðsárunum. Þá féll fyrri mað-
ur hcnnar, og von Schirach sá til
þess, að líkið var sent heim af
vígvöllunum. Nú er Karin stað-
ráðin í að giftast Baldri jafn-
skjótt og honum verður sleppt.
En þangað til í haust verða
þeir Speer og von Schirach að
lifa með sama móti og síðastliðna
tvo áratugi. Þeir eru vaktir
klukkan sex á hverjum morgni
og klukkan tíu á kvöldin eru
Ijósin slökkt í klefum þeirra. Þeir
fá að skrifa eitt bréf í viku og
taka á móti einni heimsókn í
mánuði.
Hvað skeður í Spandau í haust?
Það kostar kringum átta — níu
milljónir króna árlega að reka
fangelsið, og af því fé greiða
þýzkir skattborgarar helminginn.
Þessi kostnaður og hinn gífur-
legi öryggisútbúnaður, sem fang-
elsinu fylgir, kemur enn fárán-
legar fyrir, þegar Hess situr þar
einn eftir, en hann hlaut lífstíð-
ardóm í Núrnberg. Vesturveldin
eru oröin leið á þessum fangels-
isrekstri og vilja gjarnan náða
Hess, enda ætti hann sjálfsagt
fremur lieima á geðveikrahæli.
En Rússarnir eru á öðru máli.
Varðmenn þeirra fá tækifæri til
að skoða sig um í Vestur-Berlín
á leiðinni að og frá fangelsinu.
Svo virðast þeir álíta, að hinn
fangni Hess sé einskonar tákn,
sem hjálpi fólki til að muna
glæpi Hitlers.
Rússunum er trúandi til að
sitja við sinn kcip, svo að í fram-
tíðinni er líklegt að herveldin
fjögur, sem unnu heimsstyrjöld-
ina, standi í sameiningu vörð yf-
ir rugluðu gamalmenni, og verð-
ur það þá næstum eina fyrirtæk-
ið, sem þau reka í sameiningu.
Barnatreyjur
Framhald af bls. 46.
bönd úr rauSgulu efninu og
bryddið með því hálsmálið.
Búið til stóran ávalan vasa,
gangið frá efstu brún hans með
skábandsbryddingu, festið á
treyjuna þar sem vel fer og sting-
ið tæpt í brún.
Gangið frá treyjunni neðst og
framan á ermum með IV2 sm.
breiðum faldi.
Búið til hnappagöt og festið
tölur eins og á treyju nr. 1.
Nr. 3. Efni: Hvítt, þunnt flón-
elsefni með ljósbláum, litlum
blómum, — 4 tölur, — mjó lér-
eftsblúnda.
Sníðið náttkjólinn eins og
treyjurnar, nema hafið hann um
70 sm. á sídd, og sníðið hann út
um 8 sm. á hvora hlið. Hafið
bakið heilt, en framstykkið í
tvennu lagi. Sníðið 3 sm. út frá,
snið framstk., svo auðvelt sé að
búa út klaufina, sem er um 25
sm. löng. (Einnig má sníða fram-
stykkið heilt og búa til klauf með
efnisrenningum).
Saumið mjóa léreftsblúndu frá
hálsmáli og í kring um klaufar-
kantinn og framan á ermafald-
inn.
Gangið frá hálsmálinu með
skábandi.
Búið til 4 hnappagöt á miðjan
klaufarlistann, og festið tölur á
neðra stykkið.
Búið gjarnan til 2ja sm. breitt
rör neðan á náttkjólinn við ann-
an hliðarsauminn.
Nr. 4. Efni: Blá og hvít rúðótt
léreftsefni, — blátt efni sömu
tegundar í vasann, — hvítt efni
í skáband, — og tölur.
Sníðið treyjuna eftir sniðinu,
en lengið ermarnar, og búið til
uppábrot. Saumið treyjuna sam-
an og gangið frá hálsmáli og að
neðan eins og á treyju nr. 2. Bú-
ið til úr ljósbláa efninu, brjótið
í hann lokufall og festið á treyj-
una. Staðsetjið hnappagöt og töl-
ur á sama hátt og treyju nr. 1.
Nr. 5. Efni: Hvítt, þunnt pop-
línefni, — og tölur.
Sníðið treyjuna eftir sniðun-
um, en síkkið hana dálítið. Saum-
ið eins og treyju nr. 2. Gangið
frá hálsmálinu með tvöfaldri
pífu úr efninu og farið eins að
og með léreftsblúnduna í háls-
inn á treyju nr. 1.
Nr. 6. Efni: Bleik- og hvítrúð-
ótt léreftsefni, — dálítið af bleik-
röndóttu efni sömu tegundar, —
tölur.
Sníðið treyjuna eftir sniðinu,
en búið út dálítinn odda niður
að framan.
Saumið skáermar og gangið
28 VIKAN