Vikan - 01.06.1967, Blaðsíða 7
Fyrsfa flolcfks frá FONflXi
ATLÁS
KÆUSKÁPAB - FRYSTISKÁPAR - FRYSTIKISTUR
KÆLING er aðferSin, þcgar geyma á matvæll gtuttan
tíma. Þetta vita allir og enginn vill vera án bæUsktpi.
FRYSTING, þ. e. djúpfrysting við a. m. k. 18 stlga frost,
er auSveidasta og hezta aSferSin, þegar geyma 4 mat-
væli langan tíma. Æ fleiri gera sér ljós þægindin viS
að eiga frysti: fjöibreyttari, ódj'rari og betrl mat, raögu-
leikana á því aS búa t haginn með matargerð og balutri
fram í tímann, færri spor og skemmri tima tll innkaupa
— því að „ég á það i frystiuuin".
Við bjóðum ySur 5 stærðir ATLAS kæliskápa, 80—
180 crn háa. Allir, nema sá minnsti, hafa djúpfrystl-
bólf, þrír með hinni snjöllu „3ja þrepa froststillingu",
sem gerir það mögulegt að halda miklu frosti í
frystiliólfinu, án þess að frjósi neðantil i skápnum;
en einum er skipt í tvo hluta, sem hvor hefur sjálf-
stæða ytri hurð, kæii að ofan með sér kuldastilllngu
og alsjálfvirka þíðingu, en frysti að ncðan með eigin
froststillingu.
Ennfremur getið þér valið um 3 stærðir ATLAS frystlklsta
og 2 stærðir ATLAS frystiskápa
i.oks má nefna hina glæsilegu ATLAS viðar-kællskápa I
herbergi og stofur. Þér getið valið um viðartegundir og
2 stærðir, með eða án viiiskáps.
Munið ATLAS einkennin:
if Glæsilegt og stilhreint, nýtízku útlit.
☆ Fullkomin nýting geymslurýmisins með vand-
aðri markvissri innréttingu.
Vr Innbyggingarmöguleikar með sérstökum Atl-
asbúnaði.
A Sambyggingarmöguieikar (kæliskápur ofan á
frystiskáp), þegar gólfrými er lítið.
■fr Færanleg hurð fyrir hægri eða vinstri opnun.
☆ Hljóð, létt og þétt segullæsing og möguleikar
á fótopnun
w 5 ára ábyrgð á kerti og traust þjónusta.
, sm
ibkr*“Ls.€.
og við byrjuðum aftur. Kvöldið
eftir fór ég og vinkona mín til
stráksins, sem hún er með, en
hann er vinur stráksins, sem ég
var með. Vinur minn kom ekki,
því að hinn strákurinn gleymdi
að hringja í hann. Kvöldið eft-
ir fór ég til vinkonu minnar, sem
þekkir hann mjög vel. Hún sagði
mér þær fréttir, að hún hafi ver-
ið í partíi og séð strákinn (sem
ég var með) með annarri stelpu.
Þegar hún bað um skýringu,
sagði hann að hann væri löngu
hættur við mig, en hafi verið
bara með mér eitt kvöld. Segðu
mér nú hvað ég á að gera? Ég
er svo ofsalega hrifin af honum,
og ég veit að hann er ekkert hrif-
inn af þessari nýju. Ég er fimm-
tán ára.
Síðan þakka ég þér fyrir allt
gamalt og gott.
Ein í ástarsorg.
Þeir eru erfiðir viðureignar,
þessir gæjar. Ef þeir skella ekki
á elskuna sína í símanum, þá
rífast þeir við hana og skella á
eftir sér hurðinni. Svona eru
þessir karlmenn, jafnvel þótt
þeim sé varla farin að spretta
grön! Ef þú ert sannfærð um að
hann sé ekkert hrifinn af þessarí
nýju, -— þá skaltu gera eitthvað
í málinu. Annars skaltu Iáta hann
sigla sinn sjó og láta þér þetta
allt saman í léttu rúmi liggja.
Þú ert ekki nema fimmtán ára
og átt allt lífið framundan.
HYRNUR OG HANDRIT
Kæri Póstur!
Fyrir nokkrum mánuðum var
mikið skrifað um mjólkurhyrn-
ur í kjaftadálkum blaðanna. Hver
húsmóðirin á fætur annarri sett-
ist við eldhúsborðið og lýsti van-
þóknun sinni á hyrnum Mjólk-
ursamsölunnar. Og sérfræðing-
ar í þessum efnum skýrðu frá
ýmsum öðrum og hentugri
hyrnum, sem notaðar væru er-
lendis. Maður hélt að þessi her-
ferð, sem var talsvert kröftug
á okkar mælikvarða, mundi
verða til þess, að þægilegri mjólk-
urumbúðir yrðu settar á mark-
aðinn. En hver mánuðurinn hef-
ur liðið á fætur öðrum og ekk-
ert hefur gerzt. Alltaf eru hyrn-
urnar eins. Maður verður að
reikna með, að einhver þeirra
leki og allt fari á flot í ískápn-
um hjá manni. Það eina sem
gerzt hefur er það, að ytra út-
lit hyrnanna hefur breytzt. Lög-
unin er hins vegar enn sú sama.
Nú eru þær ekki lengur rauð-
köflóttar heldur hvítar og
skreyttar með einhverjum gam-
aldags krúsindúllum, sem minna
á handritin. Kannski meiningin
sé að minna okkur á þennan
hátt daglega á, að við höfum et-
ið handritin okkar í gamla daga!
En gamanlaust: Hvenær fáum
við nýjar mjólkurhyrnur? Þarf
að gera aðra herferð í blöðun-
um til þess? Góði Póstur: Komdu
nú þessu á framfæri fyrir mig og
gerðu ekki gys að þessu mikla
alvörumáli okkar húsmæðranna.
Með þökk fyrir birtinguna.
Húsmóðir.
Hyrnur Mjólkursamsölunnar
hafa hlotið harða gagnrýni. Flest-
ir eru sammála um, að þær séu
á margan hátt óþægilegar. Þær
taka mikið rúm í ísskápnum, það
skvettist úr þeim, þegar maður
ætlar að hella í glasið sitt, og
svo vilja þær leka eins og þú
nefnir og setja þá allt á flot í
ísskápnum. Okkur minnir, að í
einhverju dagblaðinu hafi stað-
ið ekki fyrir löngu, að nýjar
hyrnur væru væntanlegar alveg
á næstunni. Það hefur sem sagt
verið unnið að þessum málum,
og herferðin góða hefur haft til-
ætluð áhrif. Vonandi koma nýj-
ar hyrnur á markaðinn sem allra
fyrst. Kannski verða þær komn-
ar, þegar þetta birtist.
Veiztu ekki að hægri reglan gildir
hér uppi?
Um allt þetta fáið þér frekari upplýs-
ingar, með þv( að koma og skoða,
skrifa eða útfylla úrklippuna, og mun-
um við leggja okkur fram um góða af-
greiðslu. — Sendum um allt land.
FÖIIX
SÍMI 24420. SUÐURGATA 10. RVÍK.
Sendið undirrit. ATLAS myndalista og nákvæmar upplýsingar. m.a. um verð
og greiðsluskilmála. I
Nafn:..........................................................................
Heimilisfang: .................................................................
22. tbi. VIKAN 7