Vikan - 20.07.1967, Síða 17
*******************************************************************************************************************************************************************
Enn hefur áströlsk hljómsveit látið að sér kveða á brezka vinsælda-
listanum, að þessu sinni' hljómsveitin ,,The Bee Gees“, en lagið, sem
hefur gerl þá svo vinæla, heitir „New York Mining Disaster 1941“
(Námuslysið i N. Y. 1941). Þessi hljómsveit hefur um langan tímá
verið skæðasti keppinautur The Easybeats, sem er líka frá Astraliu,
og virðast Easybeats nú hafa farið halloka. The Bee Gees eiga góða
möguleika á að komu sér áfram í Bretlandi. Umboðsmaður þeirra
þar í lundi er Briari Épstein. í hljómsveitinni eru þrir bræður, Robin
og Maurice Gibbs, sem eru átján ára og tvíburar, og Barry Gibbs.
Fjórði liðsmaðurinn heitir Colin Peterson. Hljómsveitin The Bee
Gees hefur verið gagnrýnd fyrir að „stæla Bítlana“, en músik
áslrölsku piltanna þykir bera keim af músik Lennon og McCartney.
Þessu vísa hinir ungu Áslralíumenn á bug og segja að hljómsveitin
sé miklu eldri en The Beatles og því sé ekki hægt að tala um
stælingav.
*★★★★★★★★*★★★******★★*★★**********
HEIMA ER BEZT
Þegar Brian Poole og The Tremeloes létu
leiðir skiljast, álitu margir, að Brian tækist
að slá í gegn sem einsöngvari en fáum kom
til hugar, að The Tremeloes ættu eftir að
láta að sér kveða. Skömmu eftir „skilnaðinn“
sendu The Trcmeloes frá sér lagið „Herc
comes my baby“, og þegar lagið þaut upp
eftir vinsældalislanum, vissu þeir, að þeir
voru á réttri leið. Síðan kom hið fallega Iag
„Silence is Golden“ (Þögn er gulls ígildi),
og þar kemur í Ijós, að þeir geta sungið betur
en flestar aðrar hljómsveitir. The Tremeloes
hefur nú verið boðið í hljómleikaferð um
Bandaríkin, en þeir segjast ekki hafa hug
á að dvelja þar um lengri tíma, eins og t.d.
Herman's Hermits og The Dave Clark Five
hafa gert. Heima cr bezt, scgja þeir.
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★ ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★ 'k'k'ki
Herb Albevt hefur sannarlega í mörgu að snúast. Auk þess að blása í trompetinn sinn
er hann afkastamikill lagasmiður, hann er umboðsmaður margra valinkunnra skemmti-
krafta, hann sér um upplökur á hljómplötunv og hann sér um skemmtiþátt í brezka
sjónvarpinu. Nýjasta metsölulag Herb Albert er „Casino Royale“ eftir samnefndri James
Bond sögu, sem hefur verið kvikmynduð méð mörgum þekktum leikurum, m.a. Peter
Framhald á bls. 28,
Jf
*
*
*
*