Vikan - 20.07.1967, Side 18
í meira en þrjú þúsund ár
hefur framhlið Ramsesarhofs-
ins mikla blasað við þeim, sem
sigldu eða reru framhjá á Níl.
Framhliðin var skreytt fjór-
um risastyttum af Ramsesi, en
höfuðið brotnaði af einni
þeirra allskömmu eftir dauða
hans. Þetta skoðuðu hlutaðeig-
andi prestar sem merki þess
að reiði guðanna hvíldi yfir
hofinu, og flýðu í ofboði. Síð-
an hefur það ekki verið not-
að til guðsþjónustu eða nokk-
urs annars.
egar þetta er ritað, virð-
ist svo sem lokið sé
þriðja stríðinu milli Ar-
aba og Gyðinga, og hef-
ur enn farið sem fyrr,
að vígamennska hinna fyrr-
nefndu hefur verið meiri í
orði en á borði. Sagt er að
ísraelsmenn hafi eyðilagt
mestan hluta þeirra herflug-
véla, sem Egyptar höfðu
höndlað af málvinum sínum
Rússum fyrir ærið fé, og
getað síðan í næði bom-
bardérað vítt og breitt um
ríki Nassers. Aðstaða Eg-
ypta til styrjaldarreksturs hef-
ur sjaldan verið verri ,því
að með einu velmiðuðu höggi
væri ísraelska flughernum í
lófa lagið að valda þeim marg-
faldlega meiri skelfingum en
Mósesi og Jehóva báðum lukk-
aðist í sameiningu með plág-
18 VIKAN 29-tbl'
unum tíu, sællar minningar.
Ef Assúan-stíflan mikla sem ver-
ið hefur meginstolt Nassers síð-
ustu árin, væri sprengd, myndi
fimmtán metra há flóðbylgja æða
niður Nílardalinn, allar götur út
í Miðjarðarhaf. Sú flóðalda hlyti
að valda meiri tortímingu en
hægt er að gera sér í hugarlund
í fljótu bragði og drekkja á einu
bretti fleiri Egyptum en nokkru
sinni hefur verið gert síðan þeir
álpuðust út í Rauðahafið á eftir
hjörð tötramanna og strokuþræla,
sem Evrópumenn þeir, er á síð-
ustu árum hafa gert Palestínu að
brosandi vin vesturlenzks mann-
dóms í eyðimörk arabísks miðald-
sljóleika og aumingjaskapar,
kalla forfeður sína, þótt undar-
lega kunni að hljóma.
Assúan-stíflan hefur orðið
frægari en ella hefði orðið vegna
klettamusterisins mikla við Abú
Simbel, sem fullyrt er að sé meðal
merkilegustu húsa í heimi. Til
þess að það lenti ekki undir
stöðuvatni því, sem myndaðist of-
an við stífluna, var það skorið í
smástykki af mikilli list og tækni,
hífað upp og sett niður góðan
spöl ofan við yfirborð stöðuvatns-
ins, sem er fimmtíu mílna langt.
Þar á það svo að standa um ald-
ur og ævi, túristum og fróðleiks-
mönnum um fornfræði til ynd-
is. Þessi flutningur kostaði auð-
vitað morð fjár, er greitt var af
flestum menningarríkjum í ver-
öldinni, Hugmyndin að 3|ðferð-
inni, sem notuð var til að
bjarga hofinu undan vatni, var
sænsk, en tæknifróðir menn
frá ýmsum löndum lögðu hönd
að verkinu.
Hofið lét Ramses annar Eg-
yptalandsfaraó höggva inn í
bergið sjálfum sér til heiðurs.
Jöfur þessi var uppi á þrett-
ándu öld fyrir Krist, þegar
bronsöld var á Norðurlöndum.
Hann er frægastur allra þjóð-
höfðingja Egyptalands að
fornu og nýju, og stafar það
þó ekki af því að hann hafi
verið mestur og beztur mað-
ur þeirra allra, heldur fremur
af því að hann hefur verið
þeirra mestur gortari og kjaft-
askur, svo að þar slær einu-
sinni Nasser honum varla við.
Sú hömlulausa sjálfsdýrkun,
sem faróamir tömdu sér, náði
hámarki með honum. Hann
var einlægt að reisa hof og ó-
beliska og rista í grjót hól um
sjálfan sig út um gervallt Eg-
yptaland, enda er stífur helm-
ingur allra fornminja, sem
fundizt hafa í landinu, frá
hans tíð. Til þessarar stóriðju
þurfti auðvitað óhemju vinnu-
afl, þar á meðal erlent, og var
þá gripið til Gyðinga, svo sem
frá segir í fornsögum Austur-
landa nær. En sökum of mik-
illar yfirvinnu gerðu þeir
verkfall og stálust út á sand-
ana. Af þessari elztu vinnu-
Með því að sprengja Assúan-
stífluna gætu ísraelsmenn
drekkt stórum hluta Egypta í
hroðalegra syndaflóði en áður
hefði þekkzt__Ofan við stífl-
una er nú fimmtíu mílna langt
stöðuvatn, og þekur það svæði,
þar sem áður stóð meðal ann-
arra merkra fornminja hið
fræga Ramsesarhof við Abu
Simbel. En tækni nútímans er
fátt ómögulegt, hofið var sagað
í smástykki, hífað upp úr Nílar-
dalnum og nú er verið að setja
það saman rétt vestan við vatn
JÞcssi stórfagra kona var uppáhaldsdrottn-
ing Ramscsar, Nefertari a3 nafni. Mynd-
irnaf af henni standa við hlið eigin-
manns hennar og ná þeim aðeins í hné —
dæmigert fyrir þá „piatsýkólógíu", scm
Egyptar ástunduðu svo mjög til forna
og að því cr virðist enn í dag.
Hér er verið að hífa upp eitt Ramsesar-
höfuðið. Timans tönn hefur orðið furðu-
lítið ágengt við að má hrokann og þrótt-
inn úr andlitsdráttum fornkonungsins,
sem á einni áletruninni í hofinu hœlir sér
af því að hafa cinn saman og hjálparlaust
stökkt á flótta sjö þúsund og fimm
liundruð Hittítum, er fóru á tvö þúsund og
fimm hundruð stríðsvögnum. Það væri
reynandi fyrir Nasser að leika þetta eftir
I gegn Gyðingum,