Vikan - 20.07.1967, Page 24
Leifturstríðið hófst með leifturárás ísraelska
flughersins á flugvelli Egypta, og voru um
þrjú hundruð og fimmtíu af fimm hundruð
og fimmtíu herflugvélum hinna síðarnefndu
þá eyðilagðar á jörðu niðri. Hér sjást þrjár
af flugvélum Egypta, sem flestar eru keyptar
af Rússum, eftir árásina. ísraelski flugmað-
urinn hefur rennt sér yfir þær í dauðafæri og
hausað þær eins og þorska. Flugvélar ísraels-
manna eru flestar franskar, af gerð sem köll-
uð er Mirage og af mörgum talin sú bezta
í heimi.
„Hann lá sem hefði hann lagzt til svefns er leiknum hætta
bar...“ Fallinn bedúíni í Jerúsalem. Blóð lians seitlar í
lækjum I steinrykinu. Hann var í hinni frægu Arabíulegíón,
sem Glubb pasja stofnaði og er kjarninn í jórdanska hern-
um. Úti við sjóndeildarhring blasir við hið ginnheilaga
Olíufjall.
ísraelsmenn við grátmúrinn, helgasta stað gervalls
gyðingdómsins. Yfirkominn af tilfinningu faðmar
hermaðurinn steininn.
Ilér sjást nokkrir Jórdanir í bardögunum í Jerú-
salem. Útbúnaður þeirra mun einkum fenginn frá
Bretum, svo sem sjá má á einkennisbúningunum.
ÉllHllp
W'X'VW/bf:
?*:'-:4 '■
I m
' ' "'ý'j's ' ý i í ''
mm§
ísraelskir hermenn horfa vesturyfir Súezskurð. Takmarki leiftursóknarinnar hefur verið náð.
WM.