Vikan - 14.09.1967, Side 24
Litirnir í haust- og vetrartízkunni eru aöállega
dökkbrúnt, appelsínurautt og hvítt. Skœru litirnir
frá í sumar eru horfnir, nema eins og fyrr segir
sá appelsínuguli. Sjaldan hefur einn litur ráöiö svo
miklu sem sá brúni gerir núna. Þaö gengur meira
aö segja svo langt, aö nú er varla lengur talaö um
fiann „litla svartá', þvt aö hann á líka aö vera dökk-
brúnn. Flauel er nvikiö notaö, sérstaklega t buxna-
dragtir, en þær eru nú margbreytilegar og skemmti-
legar, og í næsta blaöi veröa nokkrar myndir af þeim
og meira um hausttízkuna. Þykkt tweed-efni er vin-
sœlt í kápur, en þaö er nú reyndar sígilt, þótt nokk-
ur áraskipti séu aö vinsœldum þess. MikiÖ ber enn
á hermannaútlitinu, háir kragar og gylltir hnappar,
en þó hafa línurnar oröiö mýkri og kvenlegri yfir-
leitt.
01
VOlfM
fizkan
.. Saint Laurent, aöáltízkuteikn-
arinn í París, sýndi enn stutt pils
og raunar áldrei styttri en nú.
Stuttu pilsin Vialda því enn velli
og veröa sjálfsagt vinscel enn um
hríö, þótt hálfsíöir kjólar þyki há-
mark dirfsku og glœsileika viö
viss tækifæri og til tilbreytingar.
Há stígvél þykja jafnsjálfsögö viö
stutt og síö föt og ná mislangt upp,
sum alveg í sokkálengd, en í þeim,
er þá teygjanlegt leöur, en öll eru
þau þröng um leggina. Spennur,
ólar og annaö skraut er oft haft
ofan á ristinni, en segja má aö
enginn komizt af án hárra stíg-
véla í vetur! Á myndinni nœst
t.h. ná stígvélin upp fyrir hnéö, á
neöstu myndinni lengra t.h. eru
þau há upp á legginn og sést þar
vel skrautiö á ristinni. Þar fyrir
ofan eru svo hanzkastígvélin svo-
kölluöu í fullri sokkálengd, notuö
viö stuttan kvöldklceönaö, hvaö
sem þeir í súlnasálnum á Hótel
Sögu segöu nú viö því, en þeir
hafa hingaö til neitaö aö Kleypa
stígvélaklasddum stúlkum inn, þótt
slíkt sé tekiö gott og gilt á fín-
ustu skemmtistööum erlendis. A
efstu myndinni sést svo hvernig há
stigvél gefa síöu pilsunum Uka
réttan svip...................
24 VIKAN 37- tbI-