Vikan


Vikan - 14.09.1967, Síða 25

Vikan - 14.09.1967, Síða 25
Þessi sídd á kjólunum hefur án efa náö fótfestu, þótt stutt pils séu enn a6álklæÖna,öurinn. Þetta byrjaði meö síöu kápunum í fyrra, en varla sást nokkur kona i stór- borg erlendis í þannig kápu, þó aö tízkúblööin sýndu þær óspart. Nú eru stúlkur í London farnar aö sýna sig í þetta síöum kjólum ööru liverju og má taka þaö sem öruggt merki þess, aö þeir nái vinsældum. Nokkrar stúlkur í Lon- don voru komnar i þessa síöu kjóla áöur en tízkuhúsin í París sýndu þá, en eins og undanfariö byrja nýjungarnar þar, þótt París setji svo síöar opinberan stimpil á fötin. Til þess aö þessir kjólar séu fallegir, þarf suldin aö vera rétt — of stuttir veröa þeir bara gamaldags, og þaö er ekki nóg aö sikka gömlu fötin, (varla möguleiki fyrir þær stutt- Jclæddustu!J því aö sniöiö þarf aö lienta siddinni. Kjóllinn hér aö neöan og nœst t. h. sýna klæöilega sídd og styttri en kjóllinn lengst t h. mega pilsin ekki vera. Sá kjóll er svolítiö útsniöinn, en hinir eru meö mittislínuna hátt uppi og pilsiö rykkt viö hana, en þaö er augljóst, aö einhvers staöar þarf víddin aö koma í pilsin svo aö liægt sé aö ganga í þeim svona síöum. Á neöri kjólnum er skinnbrydding aö neöan, en hinn er sérstáklega fállegur og rómantísk- ur, meö hvítum gamaldags kraga og flauelsslaufu. TakiÖ eftir hárgreiöslunni viö báöa þessa kjóla. Hálfsítt liár og slöngulokkar fylgja þessari tízku og oft er haföur aöeins einn langur lokkur í sitthvorri hliö, en þœr sem voru stutt- klipptar í sumar þurfa aö veröa sér úti um hann úr fölsku hári.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.