Vikan


Vikan - 30.10.1969, Blaðsíða 3

Vikan - 30.10.1969, Blaðsíða 3
31. árgangur - 44. tölublaS - 30. október 1969 í ÞESSARI VIKU Geimfararnir halda áfram að segja frá hinni stórkostlegu tunglferð. I síðasta blaði birtum við frásögn Armstrongs en nú kemur röðin að Aldrin. Hann er léttur í skapi og segir skemmtilega frá. Margt kemur fram í grein hans, sem ekki var áður vitað, eins og til dæmis, að hann gekk til altaris á tunglinu. „Fjarri heimsins glaumi" heitir næsta framhaldsaga Vikunnar, og tekur hún við af Angelique. Þetta er framhalds- saga, sem við mælum eindregið með. Hér er um að ræða kvikmyndasögu sem gerð er eftir skáldverki hins fræga, brezka rithöfundar, Thomas Hardy, en þekktasta saga hans er Tess. Kvikmyndin verður sýnd í Gamla bíói, þcgar sögunni lýkur hér I Vikunni. Háskólarektorinn, rithöfundurinn og leikarinn Peter Ustinov gisti ísland í síðasta mánuði í tilefni af frumsýningu nýjasta leikrits hans í Þjóðleikhúsinu, „Betur má ef duga skal". Hann tafði hér aðeins í örfáa daga, en VIKAN fylgdist ofurlítið með ferðum hans og í þessu blaði birtum við myndir af honum á Þingvöllum og viðar. í NÆSTU VIKU Fyrsti rikisráðsfundur þessa árs var haldinn nokkru áður en þingið kom saman. Ljósmyndari blaðsins var staddur fyrir utan ráðherrabústaðinn, þegar forseti íslands og ráðherrarnir gengu hver á fætur öðrum út úr húsinu að fundinum loknum. Við birtum þessar skemmtilegu myndir i næsta blaði af mönnunum, sem bera þunga ábyrgðarinnar á herðum sér. í næsta blaði hefst ný framhaldssaga í staðinn fyrir „Kvöldið fyrir brúðkaupið", sem lauk í síðasta blaði. Nýja sagan heitir „Húsið með járnhliðunum". Hún segir frá ungri skrifstofustúlku, sem orðin er leið á sjálfri sér og lífinu. Hún ræður sig samkvæmt auglýsingu í blaði til að gæta barns í gömlu húsi niður við strönd. Fyrr en varði dregur til tíðinda, og sagan er spennandi frá upphafi til enda. Tunglfararnir halda áfram að segja frá hinni frækilegu ferð sinni. Síðastur í röðinni er Coilins, sem hafði það örðuga verkefni með höndum að svífa einn umhverfis tunglið, á meðan félagar hans stigu fyrstir manna fæti á mánagrund. Collins segist alls ekki hafa verið einmana, því að honum líki jafnan bezt að fljúga einn. I FULLRI ALVÚRU JæOin bwr í Itugannm" í nýjasta leikriti sinu, Betur má ef duga skal, tekur Peter Ustinov til meðferðar girnilegt og tímabært viðfangsefni: hinn þrönga og afmark- aða heim, sem hipparnir lifa og hrærast f, og viðhorf samfélagsins til hans. Leikrit Ustinovs hefur þann fágæta kost að vera fyndið og bráðskemmtilegt, en spegla jafnframt nýjar hlið- ar á vandamáli í samtímanum. Ustinov er aðeins einn af mörgum höfundum, sem fjalla um þetta nýja og undarlega fyrir- bæri: hippana og þann lífsmáta, sem þeir hafa tileinkað sér. Nokkrar skáldsögur hafa kom- ið út erlendis um þetta efni, og kvikmyndir um það eru sýndar við mikla aðsókn. Einnig mætti nefna söngleikinn „Hair", sem nú er sýndur um allan heim og er sagður lýsa lifi hippanna á nýstárlegan og áhrifamikinn hátt. Helzta skoðunin, sem leikrit Ustinovs túlkar, er á þá leið, að ekki sé á færi hvers sem er að brjóta af sér hlekki hins vanabundna og borg- aralega lífs, sem þróazt hefur um aldir. Til þess þurfi meiri kjark, staðfestu og reynslu en óharðn- aðir og ráðvilltir unglingar hafa til að bera. Hershöfðinginn í Betur má ef duga skal reyn- ist sjálfur ósáttur við borgaralega hversdagslíf- ið og hefur löngun til að gera uppreisn gegn vanaþrælkun, skinhelgi og fáfengileika. En hann hefur skapstyrk og þroska til að gera það I fullri alvöru, en ekki út í loftið til þess eins að mótmæla ríkjandi lifnaðarháttum og skoðun- um. Uppreisn æskunnar miðar fyrst og fremst ( átt til aukins frelsis. En þetta töfraorð nútímans hefur að sjálfsögðu í sér fólgna annmarka, eins og önnur mannleg fyrirbæri. Þegar hershöfð- inginn hefur tekið sér bólfestu uppi ( tré og fyrirmenn þjóðfélagsins fylgja fordæmi hans hver af öðrum, spyr sóknarpresturinn hann, hvort máli skipti hve hátt tréð sé sem maður búi (. Kjarni málsins felst ef til vill í svari hershöfðingj- ans, sem var á þessa leið:: „Hæðin býr i huganum." G.Gr. VltVAIN Útgefandi Hilmir hf. Ritstjóri: Gylfi Gröndal. Blaðamenn: Dagur Þorleifsson og Ómar Valdimarsson. Útlitsteikning: Halldóra Halldórsdótt- ir. Auglýsingastjóri: Jensina Karisdóttir. — Rit- stjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skip- holti 33. Simar 35320 — 35323. Pósthólf: 533. VerS í lausasölu kr. 50.00. Áskriftarverð er 475 kr. fyrlr 13 tölublöð ársfjórðungslega, 900 kr. fyrir 26 tölu- blöð missirislega. Áskriftargjaldið greiðist fyrlrfram. Gjalddagar eru: Nóvember, febrúar, mai og ágúst. 44. tbi. VIKAN 3

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.