Vikan


Vikan - 30.10.1969, Blaðsíða 25

Vikan - 30.10.1969, Blaðsíða 25
sínum við blaðamenn: Sem sé útúrsnúninga og hálfgerð- an skæting. Hann svaraði öllum spurningum greiðlega og af mikilli vinsemd. Við fórum á Þingvöll. — Ustinov, Guðlaugur Rósin- kranz og Matthías Joliannes- sen í leigubíl og við Viku- menn á einkabíl. Stórir poll- ar voru á öllum götum og örfáir bvítir flekkir voru í Úlfarsfellinu. Við Leirvogs- vatn var svo farið að snjóa. Það var ekki alveg nægilega kalt fyrir virkilega snjó- komu, svo að flyksurnar voru stórar, gráar og blaut- ar. Hann snjóar heldur meira, lausn á erfiðu vandamáli!“ „Hérna,“ segir Mattbías, „sátu þeir svo í nokkrar vik- ur á hverju sumri og ræddu málin. Það var upphaf elzta löggjafarþings í Evrópu.“ Við stöndum á Lögbergi og segjum heimsmanninum frá hlutverki þess staðar. -— Hann stendur einn við ígreiptan steininn sem merk- ir staðinn og horfir út yfir flatirnar. Það er undarlegt að liugsa til þess, að þessi maður skuli vera sá sem raun er á. Eftir útlitinu að dæma gæti hann fullt eins verið síldarskipstjóri að austan — ef ekki væri fyrir það að þeim fer nú óðum er við komum á Þingvelli, en þó er farið út úr bílnum, því nú á að ganga með þegn heimsveldisins niður iAl- mannagjá. Mattliías talar, og Ustinov gleypir við liverju orði um sögu staðarins og þjóðarinnar í heild. Á leið- inni niður að Snorrabúð er rifjuð upp sagan af kristni- töku landsmanna og Ustinov er agndofa: „Ja, þetta var auðveld fækkandi vegna síldarleysis- ins. „Og þarna er Gálgakletl- ur — gættu þín að detta ekki . . .“ segir Þjóðleikhússtjóri og snýr sér við. Það sama gera allir hinir og svo er iialdið áfram niður eftir. „Nú veit ég,“ segir Usti- nov. „Þarna er Drekkingar- hylur, þar sem þið drekktuð konunum ykkar fyrir mörg- um öldum. Hefði ég mátt Ustinov átti í einhverjum vandræðum með að skipta um filmu í mynda- vélinni, og til að forða því að filman eyðilegðist í breytunni skýldu meistar- arnir honum eins og sjá má. 4 „Hérna,“ segir Matthías, „sátu þeir svo í nokkrar vikur á hverju sumri og ræddu málin.“ Ustinov gleypir við hverju orði um sögu staðarins, en hrifn- astur var hann þó af Drekkingarhyl — nema hann hefði frekar kosið að drekkja karlmönnunum! Það va.r fámennt á Þingvöllum þennan októberdag, en í kringum Peter Ustinov er einhver „sjarmi“, sem virkar fjölmennur á mann — jafnvel þó hann sé bara einn, er alltaf töluvert um að vera. -4QÞ ■ S ' < ' ' ' '

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.