Vikan


Vikan - 30.10.1969, Blaðsíða 13

Vikan - 30.10.1969, Blaðsíða 13
aumi GABRIEL OAK er sterkur maSur, þolinmóður og óeigingjarn. Lífið hefur kennt honum að greiða úr vandræðum og horfast í augu við mótlæti. En þegar Batsheba verður á vegi hans, er hann lík- astur leikhrúðu á valdi örlaganna. Honum er um megn að standa gegn ástinni til hennar, - hann er varnarlaus. hverjum fingri. Hún vildi alls ekki láta hann halda það! Bat- sheba lyfti upp pilsinu og hljóp á eftir honum. En Gabriel gekk hratt, löngum skrefum og hún gat ekki hlaupið hann uppi. Gabriel flýtti sér burt. Von- brigðin voru svo mikil og snögg, að hann gerði sér ekki fulla grein fyrir þeim. Hann hefði mátt vita að þetta var tilgangslaust! Hann hefði mátt vita að enginn karl- maður gat staðizt Batshebu Ev- erdene. Hann gerði sér ekki strax ljóst hvað það var, þegar hann heyrði mjóróma rödd kalla til sín. — Þetta er alls ekki satt! sagði Batsheba, þegar hún náði honum, andstutt og rjóð. — Ég á enga aðdáendur, — ekki einn einasta! Gabriel trúði varla sínum eig- in eyrum. Hún kom til hans! — En hvað það gleður mig að heyra þetta, sagði hann, og augu hans sögðu meir en öll þau fag- uryrði sem hann hugsaði, en kom ekki yfir varirnar. Hann rétti höndina fram, en hún hörfaði undan. Hún sneri við og gekk heim á leið aftur, ekki lengur svo rjóð í kinnum, en augnaráðið var svo- lítið hræðslulegt. Gabriel fylgdi henni eftir. — Eg á ágætis býli, sagði hann. — Það liggur í augum uppi að ég varð að taka lán til að eignast það, en ég get borgað það, þegar kindurnar eru allar bornar. Og þegar við giftum okk- ur vinn ég helmingi meira, til að þú getir fengið allt sem þú óskar! —Píanó, — ef þú vilt- Þá getum við spilað saman, ég á flautuna mína og þú á píanóið. Og við skulum fá okkur lítinn vagn, til að aka í á markaðinn, og — og vermireit fyrir agúrk- ur..... Píanó og flauta.... Augu Ga- briels urðu dreymandi, og um stund hreif hann hana með sér. Hún sá þetta fyrir sér.... — Ég læt setja það í blaðið, — ég á við fréttina um brúðkaup okkar, — og svo koma börnin ... öllsömul.... Það var nú út af fyrir sig að halda brúðkaup! En maður talar ekki um börn fyrirfram! Það var ekki háttvísi. Hún leit undan. — Og síðar.... á kvöldin, þegar við sitjum við eldinn.... og ég lít upp og sé að þú situr þar.... alltaf! Og þú horfir á mig og veizt að ég er þar líka ... alltaf.... Vera þar alltaf! Vera til taks.. vera eign .... fasteign .... Hún þoldi ekki að hugsa það til enda. — Nei! sagði hún áköf. Það er tilgangslaust, Gabriel! Eg elska þig ekki. Dreymandi augnaráð hans breyttist, hann var særður...... æstur. — Hversvegna komstu þá hlaupandi á eftir mér? sagði hann biturlega, — ef þú vilt ekkert hafa með mig að gera? — Þú skilur þetta ekki, sagði Batsheba, og var ósköp eymdar- leg. — É’g vil ekki vera eign nokkurs manns. — Eg .... hún þagnaði; hún var nærri búin að segja: Ég vil vera frjáls, en hún vissi að hún gat ekki útskýrt það. Hún vildi ekki binda sig strax. — Það liggur nú í augum uppi að ég er búinn að hugsa mikið um þetta, sagði Gabriel, illu heilli. Batsheba rauk upp. — Hvers- vegna kemurðu þá hingað til að angra mig? sagði hún hvasst. — Vegna þess að ég kæri mig ekki um að hugsa mig um! Hann gekk skrefi nær, en hún hörfaði snöggt undan. — Svo þú heldur að ég ætli að binda mig manni, sem ekki hugsar sig vel um. Þú ert svei mér frakkur! — Batsheba, segðu þetta ekki! Hugsaðu málið. Það var svo margt sem hann hefði viljað segja. Hann hefði viljað strjúka rjóðar kinnar nennar og úfið hárið hennar, kyssa gneistrandi augun og þrjóskulegar varirnar. En hann gat aðeins stunið upp: — Ég elska þig meir en ... meir en allt annað.... meir en lífið sjálft.... Hann heyrði sjálfur hve klunnalega þetta hljómaði. Og hún hörfaði ennþá aftur um nokkur skref og horfði hæðnis- lega á hann. — Því miður elska ég þig ekki hið allra minnsta, svo það er algerlega tilgangslaust að ég hugsi málið. — Þá það, sagði Gabriel þung- lega. — Ég skal þá ekki ónáða þig meir. Og hann lagði aftur af stað yf- ir hæðirnar, en nú heyrðist hvorki hróp eða létt fótatak að baki hans. Hann vissi ekkert um bréfið, sem kom heim til Sally Hurst nokkrum dögum síðar. Og hann sá heldur ekki vagninn, er sótti Batshebu og eigur hennar, til að flytja hana á búgarðinn, sem hún hafði erft eftir föðurbróður sinn, — flytji hana til nýrra lifnaðar- hátta. Hann vissi aðeins að nú sá hann henni aldrei bregða fyr- ir í hæðunum, hvorki henni eða hestinum hennar. En það er margt álíkt með hamingju og ó- hamingju, — hamingjan veitir æ meiri gleði, en fyrir Gabriel Oak varð óhamingjan að harmleik. Bjölluhljómurinn úr fjárgirð- ingunni náði yfirleitt ekki eyr- um Gabriels á nóttunni, nema þegar eitthvað óvænt bar að. Og 44.tbi. VIKAN 13

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.