Vikan


Vikan - 30.10.1969, Blaðsíða 23

Vikan - 30.10.1969, Blaðsíða 23
heyrðist dúndrandi brak, þegar Porscheinn ók á brynvarða bílinn, sem lagt hafði verið þvert yfir bakhliðið. Hawk nam staðar. Þyrlan kallaði í radíó- ið. — Maðurinn er kominn úr bílflakinu. Hann hleypur burtu. Nú fer hann inn í einu bygginguna í suðvesturhorninu.... Hawk greip hljóðnemann. — Umkringið bygginguna, en farið ekki inn. Og hafið járn- jómfrú tilbúna, þegar ég kem. Þegar Hawk náði til suðvesturhornsins skipaði hann þyrlunni að slökkva á liósköst- urunum. Nú var hlutverkum skipt. Með kúg- arann inni í myrkri byggingunni, en þá sjálfa úti, voru þeir upplýst skotmörk fyrir þann, sem inni var. Þeir lágu þrír og fjórir saman í hópum og biðu myrkurs. Ekkerthljóðheyrð- ist innan úr byggingunni. Bak við skjöld úr skotheldu plasti fór Hawk í járnjómfrúna. Menn hans hjálpuðu honum að spenna á sig hina ýmsu hluta hennar. Þegar Hawk var fullgallaður, var hann einna líkastur gervimanni. Hann var al- þakin af trefjagleri og plasti, og þótt þessi efni væru mun léttari en það, sem tíðkaðist í brynjur á miðöldum, voru allar hreyfing- ar í þessum klæðum samt erfiðar. Þegar Ijósin höfðu verið slökkt á þyrlunni og augu mannanna höfðu vanizt myrkrinu, lagði Hawk af stað heim að húsinu. Hann gekk hægt og klunnalega. Hann hafði átt von á skoti þá þegar, en ekkert gerðist. Hann opnaði dyrnar og steig inn, en beið svo, meðan tveir menn komu á eftir honum í brynvörðum eins manns farartækjum, en þau voru búin hringsjá og ljóskösturum. Geislar ljóskastaranna liðu um yfirgefna neðstu hæðina. Einu sinni höfðu verið vélar hér, en nú voru aðeins undirstöður þeirra eftir. f innsta horninu var afhýsi, sem einu sinni hafði verið skrifstofa. Hawk gekk inn fyrir. Hann var ákjósan- legt skotmark. Þegar hann hafði virt salinn gaumgæfilega fyrir sér, lagði hann af stað í áttina til afhýsisins. Þegar hann var kominn nokkur skref inn á gólfið, gall við skammbyssuskot, og kúlan kom í brjóstplötuna. Svo annað, og hið þriðja. Hann barðist móti löngun til að flýja undan þessu skytteríi, og neyddi sig til að vera kyrr. Svo sagði hann gegnum hátalar bún- ingsins: — Komdu út með peningana, haltu þeim yfir höfðinu með báðum höndum. f svars stað kom enn eitt skot. Það skall á öðrum ljóskastaranum og endurkastaðist af skotheldu glerinu. Hawk hélt áfram: — Þú átt engrar undankomu auðið. Ef þú reynir að brjótast út, ertu dauður með sama. Neyddu okkur ekki til að granda þér. Þú átt of margt til að lifa fyrir. Stundum var hægt að tala þá til. Stundum mistókst það. Átján sinnum hafði honum tekizt það, sex sinnum ekki. Skiptin átján voru gleymd, en þessi sex mundi hann. — í hverjum glugga standa á þér vélbyss- ur. Líka fyrir utan dyrnar. Maðurinn kom hægt fram úr afhýsinu. Hann hélt peningabögglinum hátt yfir höfð- inu með báðum höndum. — Skjótið ekki, sagði hann. — Skjótið ekki. Málinu var lokið. Afgangurinn vissi að dómstólunum. Ákæruvaldið móti Joseph Z. McNulty. í litla yfirheyrsluherberginu upplýstist málið smám saman. Þegar, áður en radd- línuritin lágu fyrir, var Hawk næstum viss í sinni sök. Þó var eftir að komast að orsök- inni fyrir þessar fölsku kúgun. Meðan á yfir- heyrslunni stóð, kom Barney inn og hvísl- aði að Hawk. — Hún hefur nú fengið meðvitund og spyr eftir unnusta sínum. Ég hringdi í hann, og hann er á leiðinni. Læknarnir segja, að hún sé talsvert marin og skrámuð, en ekki sér á henni að öðru leyti. Barney fór, og Hawk hélt áfram yfirheyrsl- unni. í ljós kom, að fyrir tveimur árum, áður en Helen byrjaði að vinna hjá Frank Mitchell, hafði hún leitað vinnu sem einkaritari hjá JZM verktökum. Það var McNulty sjálfur, sem talaði við hana, og hún gaf honum all- ar upplýsingar um sig. Hún hafði haft áhrif á hann, svo hann minntist hennar, þegar hann skipulagði afbrot sitt. Með mestu leynd hafði hann aflað sér upplýsinga um það, sem hann ekki vissi þegar. Hún hafði hins veg- ar steingleymt honum, hann var í hennar augum aðeins einn af þeim tuttugu vinnu- veitendum, sem hún hafði heimsótt á einni viku. — Bölvuð tíkin, öskraði McNulty. — Hún laug að mér. Hún hélt því fram.... — .... að hún ynni ekki lengur með lög- reglunni, botnaði Hawk fyrir hann. — Nei, það var ég, sem hélt þvi fram. Það sagði ég engum öðrum en þér. Ég sagði, að hún kæmi ein. þegar hún afhenti peningana, og þegar ég heyrði þig segja á rás eitt, að þú værir feg- inn því, að hún hefði sagt skilið við lögregl- una, vissi ég, hver maðurinn var. Hawk hafði ráðið þessu til ]ykta, þótt raddlínuritið hefði ekki komið til. McNulty gleypti agnið, sem fyrir hann var lagt. Hawk lagaði bindið sitt. — Það er hálf bágur fjár- hagurinn hjá þér, McNulty, sagði hann. — Er það ekki rétt? Hann sá, að hann hafði komið við auman blett, og hélt áfram. — Lánardrottnarnir urðu stöðugt óþolinmóðari. Þú hefðir farið á hausinn. Og þar með hyrfi þitt fína hús og þínir fínu bílar. Frú og börn áttu erfiða tíma í vændum. Það eina, sem þú áttir, voru hlutabréf fyrir 200 þúsund. Þú veltir því mikið fyrir þér, hvernig þú ættir að koma þeim undan gjaldþrotinu. Þú vissir, að þú gazt hvergi geymt þetta fé, ekki einu sinni í erlendum banka. En ef þú létir fé af hendi við utanaðkomandi kúgara — þá væri allt í lagi. Svo þú neyddir Sam Bronston til að af- henda peningana, svó þú hefðir vitni að því, að þú hefðir látið þá af hendi. Og til þess að beina athyglinni frá þér, komstu því svo fyrir, að Helen Rogers gæti svarið, að hún hefði sótt og talið peningana, áður en hún afhenti þá kú;garanum. En svo, þegar allt lenti í flækju, ákvaðstu að myrða hana í staðinn. Hawk spretti á seðlabunkanum: — Fyrir þessi pappírsblöð varstu reiðubúinn að drepa konu, sem aldrei hafði gert þér neitt. —• Dó hún? spurði McNuIty. — Hverju skiptir það þig? spurði Hawk á móti. Hann þagði, og lék sér að seðlunum. Varla var hægt að kæra McNulty fyrir fjár- kúgun. Það er ekki hægt að kúga fé af sjálf- um sér. Nei, ákæran yrði nokkuð alvarlegri: Morðtilraun. Hann hafði skipulagt spreng- inguna í sekúndum. Hefði Helen ekki hras- að, Hawk ekki getað stöðvað hana á elleftu stund, væri hún ekki lengur lífs. Ailt í einu féll McNulty saman. — Má ég hringja til konunnar minnar? Hawk benti á símann. — Gerðu svo vel, sagði hann. — Nancy, það kom svolítið fyrir. Nei, það var ekki slys — og þó, á sinn hátt var það slys..... Brúðarmarsinn hlaut að hefjast á hverri andrá. Helen beið á sínum stað, aftast í lcirkjunni. Hún vissi, að hún var allt annað en glæsileg útlits. Hún var öll blá og marin, með krossplástra um allt andlitið. Annað augað var bókstaflega lokað, og það vantaði flipa í annað eyrað á henni. Tveimur tímum eftir komuna til sjúkra- hússins var hún farin að ganga um gólf í stoíunni. Læknirinn var farinní og hjúkrun- arkonan var ekki við, í fullvissu þess, að sjúklingurinn svæfi. Hún fór fram úr til að vita, hvaða limi hún gæti hrært. Hún gat að minnsta kosti staðið upp, og þrátt fyrir brennandi höfuð- verk og fleiri smákvilla gat hún reiknað í huganum. Að fenginni þeirri niðurstöðu leið henni til þess að gera vel. Nú var þetta af- staðið. Nú gat hún snúið aftur til venjulegs, daglegs lífs. Þegar Frank kom, var hún enn á fótum. — Af hverju liggurðu ekki? spurði hann. -— Ég er að vita, hvernig þetta gengur. Ég vil ekki fresta brúðkaupinu. Ekki ef ég get skriðið upp að altarinu. Hugsaðu um allt það, sem við höfum lagt út: Blóm, kirkju- leiguna, fatakostnaðinn og allt annað. Ef við frestum þessu núna, höfum við aldrei efni á að gifta okkur! Svo hófst brúðarmarsinn, og einhver rétti henni stafina hennar. Nú var engrar undankomu auðið, það var að duga eða drep- ast. Hún fann hláturinn vella fram. Var nokkur hætta úr þessu, að hún dræpist? Endir. 44. tbi. VIKAN 23

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.