Vikan - 30.10.1969, Side 4
Oft kemur góður, þá getið er,
svangur, þá etið er, og illur þá
um er rætt.
íslenzkur málsháttur.
# fólk i fréttunum
„Eg var nakin í lauginni í Clivden, og
heyrði ekki þegar Astor lávarður kom
með einn gesta sinna. Stephen sagði þá
við mig: „Chris, mig langar að kynna þig
fyrir Jack Profumo.“ Bill Astor lét mig
aldrei í friði allt kvöldið, en vandræða-
legast fannst mér að standa þarna, í einu
handklæði, þegar frú Profumo sagði: „Ert
þú ekki í neinu gervi?““
Svo langt sem þetta nær er það allt í
lagi, en þetta er nú bara örlítið brot af
endurminningum Kristínu Keeler, og alla
söguna hefur hún selt brezka blaðinu
„London News of the World“. Hefur sú ákvörðun hennar vakið mikla
reiði og athygli víða um lönd, og hafa margir orðið til þess að skora
á ritstjóra blaðsins að vera ekkert að birta þetta „klám“.
En í blaðið skal það, og raddirnar sem vilja kveða þennan draug
niður verða sífellt háværari: „John Profumo hefur þegar liðið nóg,“
en hann starfar nú sem félagsráðgjafi í fátækrahverfum Lundúna.
En höfundur bókarinnar, Kristín Keeler sjálf, berst af öllu afli
fyrir því, að bók hennar verði birt í blaðinu. Hún skrifaði nýlega
opið bréf til „The Times of London" þar sem hún sagði meðal ann-
ars: „Sennilega ætlast allir til, að ég hafi skolazt burt í einhverjum
rennusteininum fyrir löngu, en mér finnst ég eiga fullan rétt á því
að segja frá minni hlið á málinu. É'g hef verið stimpluð hóra og
mér finnst ég verða að gera eitthvað í því.“
Og vinkona okkar, Vanessa Redgrave,
eignaðist son um daginn. Var sveinninn
vatni ausinn strax við fæðingu og kall-
aður Carlo Gabriel. Sonurinn fæddist á
heimili Vanessu í Chiswick, Englandi,
þann 15. september, og var fagnað ákaf-
lega af móður og föður, en hann er ítalski
leikarinn Franco Nero.
„Hann var nærri því alltof myndarlegur;
tæplega 180 cm á hæð og herðabreiður eft-
ir því, með dökkbrúnt hár og þessi dá-
samlegu augu sem virðast hafa gengið í
erfðir. Bros hans var undursamlegt og
mjög fáar konur gátu staðizt það. Hann
var ekki orðinn 29 ára, ógiftur og millj-
ónamæringur." Þessar línur eru úr bók-
inni „Týndi prinsinn" — ævisögu Jóseps
Kennedy, yngri, sem fórst árið 1944 er
hann var að koma úr árásarherferð, yfir
Englandi. Ævisöguhöfundur þessa elzta
Kennedy-bróðurins er Hank nokkur
Searls, og segir hann síðar í bókinni að júníorinn hafi verið ástfang-
inn af ungri, enskri konu, giftri, „með himinblá augu og hlýlegan,
eggjandi hlátur". Hún var gift manni sem átti milljónir á milljónir
ofan og hafði áður verið gift náunga, sem átti enn fleiri spesíur. Þó
er nafn þessarar konu hvergi nefnt, og „hún býr enn í Englandi,
jafn fögur og fyrr — og gift í þriðja skiptið," sagði Searls við
fréttamann nýlega. „Og það vill nú þannig til, að hún er nokkuð
vel þekkt!"
N? BÍLATEGUND
Volkswagen-verksmiðjurnar hafa ný-
verið sent frá sér nýja bílategund,
sem spáð er miklum vinsældum. Hér
er um að ræða fjögurra sæta, opinn
bíl, sem er sérstaklega hentugur til
ferðalaga á sumrin. Þessi bíll er ekki
ósvipaður jeppategund, sem notuð
var í stríðinu, eins og sjá má á með-
fylgjandi myndum.
f-------------------------A
STUTT
OG
LAG-
GOTT
Á hverjum degi í ellefu ár
vaknaði sölumaður nokkur
í San Francisco klukkan
sex á morgnana til að fara
út að ganga með hundinn
sinn. Þá bar svo við, að
hundurinn veiktist og
drapst. Morguninn eftir
vaknaði sölumaðurinn
klukkan sex eins og venju-
lega, en mundi ekki eftir
hinum óbreyttu aðstæðum,
fyrr en hann var búinn að
klæða sig. Þá hnippti hann
í konu sína og sagði:
— Heyrðu! Geturðu ekki
komið út að labba?
V__________________________/
SJÁLFSMORÐ
- FYRIR BÍLINN
Loksins hafði Frakkinn Marcel
Desgranges, sem var 32 ára,
fundið einu og sönnu ástina í lífi
sínu — bílinn sinn.
Fyrir tveimur árum keypti
hann sér lítinn, bláan Renault
með afborgunum. Hann setti
sjálflýsandi efni á stuðarana,
klæddi hann að innan með silki
og teppalagði. Og um hver mán-
aðamót borgaði hann sína 150
franka.
En daginn sem hann borgaði
síðustu afborgunina, og bíllinn
var loksins orðinn hans eigin,
lenti hann í árekstri og bíllinn
var ónýtur á eftir.
Þá náði Marcel í haglabyssuna
sína, labbaði út í skóg og skaut
sig. Vinur hans sagði við frétta-
mann, að „Marcel hefði ekki get-
að hugsað sér að lifa án litla,
bláa Renault-bílsins."
ÁHYGGJURNAR
Amerískur háskóli hefur kom-
izt að þeirri niðurstöðu, að 40%
af áhyggjum okkar sé vegna þess,
sem aldrei gerist; 30% út af
vandamálum, sem í rauninni séu
þegar leyst og 20% af áhyggjum
okkar séu smávægilegar og
óþarfar.
4 VIKAN 44- ‘bi-