Vikan - 30.10.1969, Side 5
r
...V • ■.
'...“...^.
■'■■'■■■. - ••■■
■■•>., . •..................;;;;
'*íí" ...
vísur vikunnar
Á sérhvern tíma tízkustefnur
og tækniþróun marka spor,
og enn er sögð á undanhaldi
hin ævaforna menning vor.
En þó að andans orkugjafi
sé illa virkur þar og hér,
er alltaf sama fjaðrafokið
í flestu af því sem skrifað er.
MEGUM VIÐ KYNNA:
HANS GUÐDÖMLEGA NÁÐ
BYLTINGASINNI
FREMUR
SJÁLFSMORÐ
Gabrielle Russier var 32 ára
er hún tók inn nokkrar svefn-
töflur á heimili sínu í Marseille
og skrúfaði síðan frá gasofninum.
Þannig forðaði hún frönskum
skólayfirvöldum frá stórhneyksli;
hún hafði nefnilega verið kærð
fyrir að beina athygli nemenda
sinna frá því sem athyglin átti
að beinast að.
Forsaga þessa máls hefur áður
birst hér í blaðinu: Gabrielle
hafði, í maíóeirðunum í fyrra
staðið við hlið eins nemanda
síns, hins 17 ára gamla Christians,
og báru þau skilti sem á stóð:
Því meira sem maður elskar því
meiri þörf er á byltingu. Og þau
tóku þátt í byltingunni vegna
þess að þau elskuðust af lífi og
sál. En það voru foreldrar
Christian’s ekki ánægð með og
Gabriellu var stefnt fyrir rétt
fyrir að hafa flekað dreng und-
ir lögaldri. Þá var hún dæmd í
eins árs skilorðsbundið fangelsi
og sat á meðan í tugthúsi með
vændiskonum, þjófum og öðrum
misyndiskvinnum. Á meðan á
réttarhöldunum stóð æpti lýð-
urinn á hana og kallaði hana hóru
og öðrum illum nöfnum. En nú
hefur hún losnað við allt þetta. .
☆
EITT MORÐ Á DAG
Lögreglustjóri Parísarborgar
hélt nýlega fund með engilsax-
neska blaðamannaklúbbnum og
þar sagði hann meðal annars:
„Við fáum tilkynningar um 3
innbrot á klukkustund, eitt morð
á dag, fimm vopnaðar árásir i
mánuði og 66 bílstuldi á dag. Þá
fær eiturlyfjadeild okkar 20 mál
að glíma við í mánuð':, sem er
fjórum sinnum meira en fyrir
fjórum árum síðan.“
☆
KONUNGHOLLIR
HOLLENDINGAR
Rúmlega 85% af Hollending-
um styðja konungdóminn þar í
landi en aðeins 10% eru því
fylgjandi að lýðveldi verði stofn-
að. Þessar tölur eru niðurstöð-
ur úr nýlegri skoðanakönnun
sem gerð var í því blauta landi
nýlega. Þar kom einnig fram, að
51% þjóðarinnar standa í þeirri
meiningu, að Júlíana drottning
iáti af stjórn innan fimm ára
og feli dóttur sinni, Beatrix,
stjórn ríkisins. Þó er Júlíana
drottning ákaflega vinsæl meðal
þegna sinna; 91% þeirra sem
voru henni fylgjandi sögðust dá
hana mjög — en 82% Hollend-
inga eru því hlynntir að hún
verði látin borga skatta rétt sem
þeir sjálfir.
☆
MÚTUR Í SOVÉT
Fjórir kennarar við mennta-
stofnun í Moskvu voru nýlega
dæmdir í 8—15 ára fangelsi fyr-
ir að þiggja mútur fyrir að líta
framhjá nokkrum prófum nem-
enda sem ekki höfðu staðizt inn-
tökuskilyrðin í skólann. Izvestija
sagði í grein um málið að það
væri æðsta ósk margra foreldra
að koma börnum sínum inn í há-
skóla. Greinilega vita margir
kennararnir þetta, því einn
þeirra viðurkenndi fyrir rétti að
hann hefði þegið rúmar 3000
rúblur (306 þús. ísl.) fyrir svipuð
agabrot.
FÓSTUREYÐINGAR
Fyrir ári síðan voru fóstur-
eyðingar lögleiddar í Bretlandi,
og þar með var hægt að láta eyða
óæskilegu lífi á opinberu sjúkra-
húsi með aðstoð sjúkrasamlags-
ins. Síðan lögin gengu í gildi hafa
verið framkvæmdar 32213 slíkar
aðgerðir í landinu.
Tölurnar hafa stigið jafnt og
þétt. Á tímabilinu maí-júní í
fyrra voru framkvæmdar 4212
fóstureyðingar, júlí-september
7937, október-desember 9907 og
í janúar-marz 9957 aðgerðir.
Um það bil 40% allra aðgerð-
anna fara fram á einkastofum,
þótt það sé nokkuð dýrara. Brezk
yfirvöld segjast reikna með, að
nokkuð stór hluti af þessu fólki
komi erlendis frá, en ekki er ná-
kvæmlega vitað hve stór hundr-
aðstala það er. Ýmsir læknar
telja, að fólk sé ekki eins gætið
í ástum þegar svo auðvelt er að
fá framkvæmda fóstureyðingu.
Fullur titill hans er Hans Guð-
dómlega náð, Abhay Charan
Bhaktivedanta Swami, og hann
er herra og lærimeistari alþjóð-
legu Hare-Krishna hreyfingar-
innar. En þetta nafn er full-langt,
og því skulum við aðeins kalla
hann Swami.
Nýlega kom hann í heimsókn
til Bretaveldis og þar var hon-
um ákaft fagnað af fylgjendum
sínum — flestum krúnurökuðum
— sem lögðust í gólfið og kysstu
allranáðarsamlegar tær hans.
Meðal þeirra sem heimsóttu
hann voru þeir Bítlar John Ono
Lennon og George Harrison,
ásamt einkaumboðsmanni Harri-
son’s, Terry Doran, sem sagði við
fréttamenn að þeir kumpánar
myndu vera mikið með Swami á
meðan heimsókn hans í Bretlandi
stæði yfir.
Og Bítlafyrirtækið „Apple“
hefur í hyggju að gefa út hljóm-
plötu með „mantra“ eða boðskap
meistarans. Swami reiknaði með
að koma eitthvað fram opinber-
lega á meðan hann var í London,
en þá væri það aðallega á vegum
„Apple“. Að loknum óopinberum
blaðamannafundi á flugvellinum
útlistaði hann örlítið speki sína
við viðstadda (hún er svipuð
þeirri speki sem jókinn Mahar-
ishi básúnaði um allar jarðir hér
einu sinni) og steig síðan upp í
skjannahvítan Rólls-Royce bíl
Lennons. •&
44 tbl VIKAN 5