Vikan - 30.10.1969, Síða 6
Þar sem stöðugt berast bréf
frá einmana fólki, sem vill láta
okkur annast bréfaskipti fyrir
sig, þá viljum við taka fram, af
gefnu tilefni, það sem nú skal
greina:
Bréfin skulu látin í lokað ums-
lag, frímerkt án utanáskriftar,
en senda það í öðru umslagi ut-
an yfir, frímerktu og utanáskrif-
uðu til Vikunnar, pósthólf 533,
Reykjavík. Með í umslaginu
skulu fylgja fyrirmæli um, hverj-
um eigi að senda ómerkta bréf-
ið.
Athugið: Þau bréf, sem gengið
er frá á ófullnægjandi hátt, t. d.
ekki nægilega frímerkt, lenda í
ruslakörfunni.
Svo kemur hér ein Einmana í
borginni, sem vill gjarnan skrif-
ast á við jafnaldra, en hún er um
tvítugt, og nýkomin til borgar-
innar.
Hér kemur líka svar til EIIu:
Þú getur skrifað V-M-9 og G. G.
eftir þeim reglum, sem hér hafa
verið greindar.
Skólabækur
Kæri Póstur!
Mig langar til að leggja orð í
belg varðandi mál, sem mér hef-
ur lengi legið á hjarta. Það er 1
sambandi við skólabækurnar. —
Mér er fullkomlega ljóst, að góð-
ar og skemmtilegar skólabækur
eru mikils virði og geta haft úr-
slitaþýðingu um það, hvort bless-
aðir unglingarnir nenna að líta í
bók eða ekki. Það er ekki svo
ýkja langt síðan skólabækur
voru heldur óásjálegar, fábreytt-
ar og lítt skreyttar myndum. Nú
hefur þetta breytzt sem betur
fer á nokkrum árum. Nú virðast
kennslubækur vera skemmtilegri
útlits og í alla staði girnilegri en
áður var. Ég fagna þessu, en
vandamálið gamla er samt ekki
úr sögunni, að mínum dómi. Enn
eru of margar kennslubækur í
gangi í hverju fagi og er undir
hælinn lagt hvaða bók er kennd,
eftir því hvaða kennari á í hlut.
Þetta kemur sér bagalega þar
sem systkini eru mörg og kann-
ski aðeins eitt eða tvö ár á milli
þeirra. Þannig háttar til hjá mér.
Elzti strákurinn keypti bækur
fyrir þúsundir króna í fyrra, og
ég hugsaði með mér, að sá næsti
mundi geta notað þær líka, en
hann er bara einu ári yngri. En
þar skjátlaðist mér. Hann þurfti
líka að kaupa sér skólabækur
fyrir alltof mikinn pening, þar
sem hann lenti hjá öðrum kenn-
urum, sem vildu kenna aðrar
skólabækur.
Ég er ekki að segja, að þetta
sé stórvægilegt atriði, en það er
samt vel þess virði að mínum
dómi að á því sé vakin athygli.
Það er þröngt í búi hjá mörgum
láglaunafjölskyldum, ekki sízt
núna síðustu árin og munar sann-
arlega um hvern eyri í dýrtíð-
inni.
Mér þætti vænt um, ef þú
vildir, Póstur góður, birta þetta
bréf fyrir mig, þótt þér finnist
það kannski ekki merkilegt. Ég
geri að tillögu minni, að fræðslu-
yfirvöld hafi betra eftirlit með
því, hvaða kennslubækur eru
gefnar út, og reynt sé að kenna
sömu bækurnar í sem flestum
skólum.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna.
Húsmóðir.
Viff höfum áður fengiff bréf um
þetta sama efni. Okkur finnst
sjálfsagt aff þetta sjónarmiff komi
fram, og birtum því bréf „Hús-
móffur“ meff ánægju.
Frygðarleg
Kæri Póstur!
Ég hef nú aldrei skrifað þér,
en alltaf ætlað að gera það. Mér
finnst Vikan skemmtilegt blað,
þótt hún sé nokkuð dýr, sérstak-
lega vil ég þakka fyrir fram-
haldssöguna. En nú kem ég að
erindinu. Hvað þýðir að vera
frygffarleg?
Kæri Póstur! Svaraðu þessu
fyrir mig.
Kær kveðja.
Ein frygðarleg.
(Hvað sem það nú þýðir).
Sá, sem kallaffi þig þessu nafni,
var sannarlega heppinn, aff þú
skyldir ekki skilja þaff. Annars
hefffir þú áreiðanlega lamið hann
duglega. Frygffarleg er sú stúlka,
sem ber þaff meff sér, aff hún
sækist eftir holdlegum ástum. —
Viff vonum, aff þetta gefi þér
hugmynd um, hvaff orffiff þýffir,
en ef þú vilt fá nánari vitneskju
um þaff, skaltu fletta upp í ein-
hverri íslenzkri orðabók. Og aff
lokum: Næst þegar þú sérff þann,
Reykurinn fer ca. 22,5 sm. í
gegnum kælikerfi RONSON
pípunnar og kemur kældur
og þurr út.
Það eru fleiri en ein pípa í sömu pípunni, 10 mismun-
andi kóngar og tvenns konar munnstykki fyrirliggjandi.
Það er hægt að velja á milli.
EINKAUMBOÐ: I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F. HVERFISGÖTU 89, REYKJAVÍK.
6 vikan 44 «•