Vikan - 30.10.1969, Síða 29
...
|pr
t Mmmm
■ ■
Uinátta
Nýjustu hljómplötu brezlcu
hljómsveitarinnar Move hef-
ur vegnað mjög vel á vin-
sældalistanum. Lagið, sem
upp snýr, heitir „Curly“, og
er nafnið fengið frá svini
einu með sama nafni, sem
liðsmenn Move liafa mikið
dálæti á. Hér er einn þeirra
félaga í Move, Carl W.ayne,
með svíninu góða, og er ekki
annað að sjá en vináttan sé
gagnkvæm.
meö ábeyrileu aiufirspíli
Sjaldan hefur eitt lag valdið jafn
miklu fjaðrafoki og „Je T'aime ....
Moi Non Plus", en það hefur nú
verið á kreiki í Bretlandi og víðar
í nær fjóra mánuði. Fyrir skömmu
var það í öðru sæti vinsældalistans
í Englandi og þykir það f frásögur
færandi, þegar þess er gætt, að lag-
ið hefur ekki fengizt leikið í út-
varpsstöðvum þar í landi. Sama er
raunar uppi á teningnum ( fleiri
löndum. I Frakklandi er aðeins heim-
ilt að leika lagið í útvarpið um næt-
ur. Lagið hefur ekki heyrzt í útvarpi
hér, svo okkur sé kunnugt um, og
skal því þeim, sem ekki vita út á
hvað lag þetta gengur, sagt, að hér
er um að að ræða andvörp og stun-
ur og skyld hljóð, ásamt með frem-
ur áheyrilegri tónlist. Það eru þess-
ar síendurteknu stunur sem mönn-
um er þyrnir í eyrum, einkum hin-
um siðavandari. Hljóðin eða stun-
urnar koma úr barka Jane nokk-
urrar Birkin, lítt þekktrar leikkonu.
Geta má þess, að hún lék í kvik-
myndinni „Blow Up", sem sýnd var
i Reykjavík fyrir skömmu. Lék hún
annað stelputryppið, sem lagði að-
alpersónuna í einelti. Þess má líka
geta, að Jane var eitt sinn gift John
Barry, lagahöfundinum, sem m.a.
hefur samið tónlist fyrir allar James
Bond-myndirnar. Nú er hún hins
vegar á lausum kili, en sést tíðum
í kompanii við náunga að nafni
Serge Gainsbourg, en það er ein-
mitt hann sem er potturinn og pann-
an á bak við lagið „Je T'aime . . . ."
Það var Philips-hljómplötufyrir-
tækið sem gaf út lagið „Je T'aime
.....", og mættu menn nú ætla, að
forráðamenn fyrirtækisins væru yfir
sig hressir yfir því, hve vel plötunni
hefur vegnað á vinsældalistanum.
Oðru nær. Eftir því sem platan koms
ofar á blað á vinsældarlistanum
fjölgaði þeim, sem létu í Ijós
hneykslan og andúð, og fór svo um
síðir, að þeir hjá Philips skutu á
húsþingi, þar sem málin voru rædd
í mikilli alvöru. Þótti Philips-mönn-
um sóma fyrirtækisins stefnt í voða,
og varð það að ráði að afturkalla
allar birgðir af plötunni úr verzlun-
um og um uleið afsala útgáfurétt-
inum. Hefur nú annað hljómplötu-
fyrirtæki Major Minor keypt útgáfu-
réttinn af Philips, og sjá forráða-
menn Major Minor fram á stórgróða,
því að allt bendir til, að enn sé
nægur markaður fyrir lagið „Je T'-
aime . . . ."
☆
AMEN CORNER
Hljómsveitin Amen Corner hefur
nú geispað golunni. Þessi hljóm-
sveit var að margra áliti vinsælasta
táningahljómsveitin í Bretlandi og
söngvari hljómsveitarinnar, Andu
Fairweather-Low, þótti ein helzta
poppstjarna þar í landi. Þau tíðindi,
að liðsmenn hljómsveitarinnar hygð-
ust halda hver í sína áttina komu
mjög óvænt, þar eð hljómsveitin
hefur um langt skeið notið og nýtur
MIKKI f ÁSTRALÍU
Hér birtum við mynd af Mick
Jagger eins og hann kemur fram
í kvikmyndinni Ned Kelly. Eins og
við höfum áður sagt frá fer Mick
með titilhlutverk myndarinnar, en
Ned Kelly var frægur skúrkur á of-
anverðri öldinni sem leið. Talsvert
veður hefur verið út af því gert í
blöðum í Astralíu, að þetta hlutverk
skyldi vera falið Englendingi. Hefur
þeim, sem fundu Mikka allt til for-
áttu í fyrstu, þó óðum fækkað, og
er sagt, að Mikki komi sér vel meðal
andfætlinga. Hann kvað vera hrókur
alls fagnaðar, og það er kannski
ekkert undarlegt, því að nýjasta
tveggja laga plata Rollinganna,
„Honky Tonk Woman" er enn ofar-
lega á vinsældalistum víða um lönd.
enn mikilli vinsælda. Margar af plöt-
um Amen Corners hafa náð miklum
vinsældum og má þar nefna m.a.
lögin „Bend Me Shake Me" og „Half
As Nice". Nýjasta hæggenga plata
Amen Corner heitir „The National
Welsh Coast Live Explosion Co", og
hefur hún selst i mjög stórum stíl.
Hljómsveitin, sem verið hefur á
kreiki í 3 ár mun í nóvemberlok
senda frá sér sína síðustu plötu
með lagi Bítlanna „Get Back" í út-
setningu Andy Feirweather-Low.
44. tbi. VIKAN 29