Vikan


Vikan - 30.10.1969, Qupperneq 33

Vikan - 30.10.1969, Qupperneq 33
TIL AÐ SPARA YÐUR TÍMA OG FYRIRHÖFN ALLT A SAMA GOLFI Tíminn er yður dýrmætur. Þróunin er í þá átt aS mynda stórar heildir. Það á líka við í verzlun, ekki sízt þegar um er að ræða hluti eins og húsgögn, innréttingar, heimilistæki, hillusamstæður, eldhús og barnarúm. Með öðrum orðum: Allt til heimilisins. Allt á einu gólfi, úrvalsvörur eingöngu. Merkin tala sínu máli: Pira-hillusamstæður, Neff-rafmagns- tæki, Dúna-sófasett og dýnur, hlaðrúm og stólar frá Krómhúsgögn. Og þannig mætti lengi telja. Þér veljið í stofuna, í eldhúsið, í barnaherbergin og húsbóndahergergið. Allt á einu bretti — allt á sama gólfi. HÚS OG SKIR ÁRMÚLA 5 SÍMI 84415 OG 84416 v_______________/ STJÖRNUSPÁ Hrútsmerkið (21. marz — 20. aprfl): Það eru margir sem eiga erindi við þig, og þú þarit að snúast mikið í annarra þágu. Þú ættir ekki að taka neinum tiiboðum, nema hugsa þig vandlega um. Heillatalan er sjö. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú munt eiga mjög þægilega daga í vændum. Þú virðist í góðu jafnvægi og ert því vel búin undir smávegis mótlæti. Þú eyðir nokkrum tíma þínum í að hjálpa sjúklingi. m Nautsmerkið (21. aprfl — 21. maf); Vertu sem mest einn og heima við. Þér þýðst starf sem er öllu lakara en það sem þú hefur, en þegar þú hafnar því skaltu vera kurteis. Þú hefur bók að láni. Skilaðu henni. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Vikan verður fremur daufleg, en það er auðvitað undir sjálfum þér komið, hvort þú kannt að gera þér mat úr litlu. Oskir þínar fá nokkurn annan hljóm- grunn, en þú hafðir gert þér vonir um. m JUL Tvíburamerkið (22. maf — 21. júnf); Það verður margt fólk umhverfis þig þessa viku, en þú nýtur þín ekki fyllilega. Ákveðin persóna hefur mjög truflandi áhrif á þig. Þú verður að leggja þig fram til að ná góðum árangri. Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú þarft að vera til taks á mörgum vígstöðvum í einu og hefur lítinn tíma til eigin umráða. Líklega gerist eitthvað neikvætt á föstudag, ef þú ert ekki vel vakandi. Fjólublátt er heillalitur. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Af tilviljun kemstu að mjög góðum kaupum á hlut, sem þig hefur lengi langað til að eignast. Þú ert mikið að hugsa um að skipta um húsnæði. Þú ferð í skemmtilegt samkvæmi um helgina. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Kunningjakona þín leitar hjálpar hjá þér, og er lík- legt, að þið verðið löngum stundum saman. Þér heppnast mjög vel verk, sem þú hefur farið leynt með. Þú ert fremur þreyttur og argur. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Vinur þinn gerir eitthvað sem kemur óþægilega við þig. Þú átt erfitt með að einbeita þér að verkefnum þínum vegna utanaðkomandi truflana. Reyndu að hafa stjórn á tilfinningum þínum. Vatnsberamerkið L21. janúar — 19. febrúar): 5>ú tekur að þér verk, sem er þér ofviða, þegar fram líða stundir. Áhugi þinn á tómstundastarfi, sem þú lagöir stund á fyrir nokkrum árum, vaknar á nýjan leik, og truflar allar ráðagerðir þínar. k-i Wmr Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Gamall maður færir þér grip til varðveizlu. Þú verð- ur vitni að hlutum, sem þú mátt ekki láta neinn vita, að þú hafir nokkra nasasjón af. Þú átt í nokkr- um fjárhagsörðugleikum. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú hefur heppnina með þér í sambandi við mál, sem flestir töldu hið mesta glapræði. Sigur þinn verður sannarlega kærkominn og þú munt vaxa gífurlega í áliti hjá öllum þínum og vandamönnum.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.