Vikan - 30.10.1969, Blaðsíða 44
NEW
Portrait Make up
X FILM
BY DOROTHY GRAY
Algerlega nýtt make-up, sem gef-
ur eðlilegt útlit og mjúka húð —
MÝKRI EN SILKI.
Strikar ekki né breytir lit og þurrk-
ar ekki húðina.
Portrait Make-up á við alla húð og
endist bezt — ER UNDURSAM-
LEGT.
Notað með eða án púðurs.
Reykjavík, INGÓLFS APÓTEK.
DOROTHY GRAY
NEWYORK • LONDON • PARIS
■HAR ER DBKIN RANS NÍA?
Það er alltaf sami leikurinn í henni Yndisfríð okkar. Hún hefur
falið örkina hans Nóa einhvers staðar í blaðinu og heitir góð-
um verðlaunum handa þeim, sem getur fundið örkina. Verð-
launin eru stór konfektkassi, fullur af bezta konfekti. og fram-
leiðandinn er auðvitað Sselgætisgerðin Nói.
SlSast er dreglð var hlaut verðlaunln:
Haraldur Örn Arnarson, Hraunbæ 86, Reykjavík.
Vlnnlnganna mé vltja í skrifstoíu Vlkunnar.
Nafn
Helmllt
Örkin er á bls. 44.
heimi. Það er til mikið af fólki sem
ekki getur náð sambandi við aðra
og er alltaf þvingað, en á svið-
inu er það frjálst eins og fuglinn."
Og Arlo bætir við: „Það sem ég er
að reyna að gera á hljómleikum er
ekki aðeins að vera þar og gefa
fólki eitthvað fyrir snúð sinn. Ég
geri mínar athuganir og reyni síðan
að koma þeim til fólksins án þess
að blanda sjálfum mér inn í málið."
Þegar Arthur Penn ákvað að gera
kvikmyndina „Alicés Restaurant",
var staðfesta Arlo's að halda sjálfum
sér frá öllu saman, eitt helzta vanda-
málið í sambandi við leikstjórnina.
„Það sem var virkilega ergilegt í
sambandi við hann," segir Penn,
„var þetta ægilega hIutleysi. Ég var
í sífellu að reyna að fá hann til að
gera eitthvað raunverulegt. Stundum
spurði ég hann: „Hvað myndir þú
gera nú?" Og þá sagði hann: „Það
sem ég er að gera."
„Og hvað ertu að gera?"
„Horfa á."
Og ég hélt baráttunni áfram, en
það er ákaflega erfitt að fá áhuga-
leikara til að gera eitthvað virkilega
vel. Þeir hafa bara ekki nægilega
undirstöðu til þess. I einu atriðinu
átti hann að sýna reiði, en þess í
stað varð hann sífellt hlutlausari.
Loksins greip Jimmy Broderick, sá
sem leikur Ray, í höndina á hon-
um undir borðinu og kreisti hana af
öllu afli bara til að koma honum í
samband við það sem var að ske."
Og þolinmæði og ástundun Penn's
kom til með að borga sig, því leik-
ur Arlo's er virkilega eðlilegur, hrif-
næmur og fyndinn."
„Alice's Restaurant" er einkenni-
leg kvikmynd. Lögregluþjónninn
sem handtók Arlo er þar leikinn af
sjálfum sér, Alice og Ray leika lítil
hlutverk, þó ekki sig sjálf, þar sem
þau slitu samvistum um það leyti
sem kvikmyndatakan hófst, en þau
voru viðstödd nær allan tímann og
horfðu steini lostin á sig leikin af
öðrum. Eins og áður segir. þá var
Rey leikinn af Jimmy Broderick, og
Alice lék Pat Quinn, sem er furðu-
lega lík henni. Aðalleikararnir
kvörtuðu tíðum yfir því að hinir
raunverulegu „karakterar" væru of
nálægt til þess að allt væri í lagi.
Og það kom fyrir oftar en einu
sinni að hin raunverulega Alice réðst
á Jimmy með skömmum og svívirð-
ingum fyrir eitthvað sem maður
hennar hafði gert eða sagt.
En fyrir Arlo skiptir þessi kvik-
mynd ekki miklu máli. „Blessaður,
maður," segir hann, „ég vil ekki
láta flækja mér í þennan peninga-
hringdans sem þessi heimur er. Þá
vil ég heldur skapa mlna eigin ver-
öld. Mér finnst bezt að halda mér við
vini mtna. Við erum öll á sama báti
og höfum ekki trú á að það væri
til neins að fara af honum. Það hef-
ur verið allt of mikið um það að
fólk sé að hafa áhyggjur af öðrum.
Nú, auðvitað er það fallega gert að
líta eftir meðbróður sínum, en fyrst
verður maður að læra að líta eftir
sjálfum sér."
(Arlo Guthrie hefur verið nefnd-
ur fulltrúi eða talsmaður ungu kyn-
44 VIKAN 44 tbl