Vikan - 30.10.1969, Qupperneq 50
VEED V- BAR
KEÐJUR er rétta Iausnin
I*að er staðreynd að keðjur eru öruggasta vörnin
gegn slysum í snjó og hálku.
Sendum i póstköfu
um allt land.
WEE D keðjurnar
stöðva bílinn öruggar.
Erú viðbragðsbetri
og halda bílnum
stöðugri á vegi.
Þér getið treyst
Weed V-Bar keðjunum.
KRISIIW GUÐVASOX II.IF.
Klapparstíg 25—27 — Laugaveg 168.
Sími 12314 — 21965 — 22675.
f---------------
MIDA
PREIMTUIM
Takið upp hina nýju aðferð og
látið prenta alls konar aðgöngu-
miða, kontrolnúmer, tilkynning-
ar, kvittanir o.fl. á rúllupappír.
Höfum fyrirliggjandi og útvegum
með stuttum fyrirvara ýmis konar
afgreiðslubox.
LEITIÐ UPPLÝSINGA
HILMIR HF
SKIPHOLTI 33 - SlMI 35320
Relð nakinn á svínsbaki
Framhald af bls. 21.
Eftir þetta gerðist Frykowsky
all-vinalegur við okkur og var
sífellt að spyrja um þetta; hvern-
ig var í tugthúsinu og þar fram
eftir götunum. Þá var hann að
bjóða okkur í mat og veizlur —
sem var að vísu ekkert óvenju-
legt, en okkur fannst hann samt
dálítið undarlegur í framkomu
sinni. Og eina mögulega vitnið
að þessari barsmíð á gamla
manninum var dyravörðurinn í
klúbbnum, en hann sagðist ekki
hafa séð neitt. Alls ekkert.
Svo um vorið þá lentu Fry-
kowsky-bræðurnir í því að lim-
lesta blaðakonu sem hafði verið
viðhangandi þessa klíku, og hún
var lögð á spítala. Fyrst í stað
gerði hún ekkert í málinu en
síðar kærði hún þá, og þá var
Frykowsky kominn til Parísar;
sagði það vera sumarferð.
En þá fór bara ýmislegt fleira
að koma í ljós, og á endanum
komumst við Piwowsky að því
að það var Frykowsky sem hafði
þvælst út blindfullur, lamið
gamla manninn og mútað dyra-
verðinum til að halda sér saman.
Síðan það var hefur hann ekki
komið til Póllands, en sagt var að
hann hefði lifað algjörlega á Pol-
anski eftir þetta, því Frykowsky
hafði aldrei gert ærlegt handtak.
Sem sagt, að mín kynni af hon-
um eru þau, að hann hafi verið
heldur ómerkileg persóna og því
var þetta það fyrsta sem mér
datt í hug, er ég frétti um morð-
in í sumar: Að hann hefði verið
eitthvað viðriðinn þau, og ég tala
nú ekki um eftir að hann fannst
í bíl úti á lóðinni. Þó vil ég ekki
fullyrða neitt um það, þar sem ég
hef ekki kynnt mér málavexti
nægilega vel. En hann var
greindur og vel gefinn strákur
og vinsæll af sínum félögum.
Og nú um daginn frétti ég það,
að lík hans hafi verið flutt aftur
til Póllands — landsins sem hann
flúði — og þar jarðsett með mik-
illi viðhöfn; jarðarförin ku hafa
verið ein sú fjölmennasta sem þar
hefur farið fram, enda átti Fry-
kowsky nokkuð stóran hóp af
góðum vinum. Vinum sem litu
heldur framhjá göllum hans.“
„En Polanski; hefur þú eitt-
hvað frétt af honum síðan þið
vorum saman í skólanum?“
);Nei — og þó. Reynir vinur
okkar Oddson sagði mér ein-
hverntíma að hann hefði hitt
Polanski í London og hefði hann
beðið að heilsa mér!“
Þrándur hallar sér aftur á bak
í stólnum: Hann er yfirmaður
kvikmyndadeildar sjónvarpsins á
fslandi, Polanski er frægur og
syrgir, Frykowsky er farinn til
feðra sinna, Piwowsky er önnum
kafinn í kvikmyndum í Póllandi
og Reynir Oddson er enn í Lon-
dondon. ó.vald.
50 VIKAN tbl-