Vikan - 13.11.1969, Blaðsíða 5
SEX ’69
Danskir héldu nýlega rnikla
sýningu á öllu því sem viðkem-
ur klámi. Var þetta fyrsta sýn-
ing sinnar tegundar í heiminum,
og haldin í tilefni þess, að nú
gilda engin lög þess efnis að ekki
megi dreif klámkenndum bók-
menntum, myndum og öðru
mögulegu um allt kóngsins land.
Eftir lýsingum að dæma má
telja hugmyndaflug Dana alveg
stórkostlegt, því á sýningunni
mátti meðal annars f'nna klám-
skartgripi, hvað sem það nú er.
Jens Theander, 25 ára gamall
ljósmyndari, sem er einn af
helztu klámmönnum Dana, sagði
við fréttamenn á sýningunni, er
þeir inntu hann eftir undirtekt-
um gesta: „Þeir elska þetta allt,
vegna þess að þetta er hre:nt
klám. Þeir eru venjulegt fólk og
hafa gaman af öllu saman. Þess
vegna get ég grætt svona mikið
og sofið með hreina samvizku.
Myndin er úr einum básnum og
skýrir sig sjálf.
JÚMBO
Mikið hefur verið rætt um hina
nýju Boeing vél, 747. Er bygg-
ingu hennar verður lokið, kemst
þar með í gagnið stærsta far-
þegaflugvél í heiminum — um
það bil 500 farþegar komast með
henni í hvert skipti (gárungarn-
ir hafa skotið að Nixon að fá
sér eina eða tvær slíkar til að
rubba af heimflutningi hermanna
sinna frá Viet Nam), og er stærð
hennar og lúxus eftir því. Meðal
annars er stélið hærra en 5 hæða
hús, og 4 kvikmyndasalir eru í
þessari miklu rellu — og uppi á
annarri hæð er auðvitað heil-
mikill bar. Myndin sýnir vél
Lufthansa í smíðum, en það fyr-
irtæki ætlar að vera flugfélaga
fyrst til að fljúga Júmbó.
r v
• vísur vikunnar
Lægðir yfir landið þjóta
lykur fjöllin þokan svarta
veðragnýr og vetrarkvíði
vekur ugg í mörgu hjarta.
Oftast fátt af einum segir
opin standa vök og pyttur
útum landsins auðnir ráfa
áttavilltar rjúpnaskyttur.
ÁLIT EKKJUNNAR A
ALPAHÚFU-
HNEYKSLINU
Með lítið barn á handleggnum
kom hún ráfandi inn í banda-
ríska send'ráðið í Saigon og
kvaðst vera Lhan Kim Lien,
ekk-'a Thai Khac Chuyen, S-viet-
narnans sem Grænu alpahújurnar
alræmdu myrtu.
Tilgangur heimsóknar hennar
í ameríska sendiráðið var að af-
henda Ellisworth Bujiker, sendi-
herra, bréf, þar sem hún krafð-
ist þess að manni sínum yrði
veitt uppreisn æru og e'ns vildi
hún fá það staðfest að Banda-
ríkjastjórn myndi greiða „með-
lag“ með barni sínu, því enginn
gæti unnið fyrir því eftir dauða
föðursins.
Daginn áður hafði hún rætt
við ameríska fréttamenn í Saig-
gon, og þá sagði hún meðal ann-
ars: „Þið eruð verri en Viet Cong.
Maðurinn minn var aldrei í þjón-
ustu annarra en ykkar, en nú
ætla ég að slást í hópinn með
Viet Cong, og ég skal sprengja
ykkur í loft upp.“
Hún var í móðursýkiskasti, og
það var kannske eins gott, að
það tölublað Newsweek, sem
sagði frá að það hefði' verið vit-
laus maður sem „Alpahúfurnar“
drápu. var hvergi nærri. Túlkur-
inn Thai Khac Chuven, sem var
skotinn og hent í hafið. var
nefnilega nauðalíkur manni að
nafni Vu Ngoc Nha, sem hafði
verið tekinn í Saigon og settur í
fangelsi fyrir njósnir.
VIÐ VILJUM ÞAÐ EKKI
Heimilislausar fjölskyldur í
Bretlandi tóku nýlega á sitt vald
stjórnarbyggingu eina í Brighton
og skildu börnin sín eftir fyrir
utan með spjöld sem á var letr-
að: Við viljum ekki vera flœk-
ingar, við verðum að vera það.
Borgarstjórinn lofaði hátíðlega
- EN VIÐ VERÐUM
að gera eitthvað í málinu, og
he'milisleysingjarnir skiluðu
húsinu aftur. — Reiknað er með
að um það bil ein milljón Breta
eigi hvergi höfði sínu að halla —
og er þar aðeins átt við fjöl-
skyldufólk.
48. tbi. VIKAN 5