Vikan - 13.11.1969, Page 6
"glugga
tjalda-
e£ni„
LAUGAVEGI 59 SÍMI 18478
/----------------------------------->
I
■
Þér spariö með áskrift
IIIKAN
Skipliolti 33 - sfmi 35320
v.__:_______________________________
Sígarettureykingar
Herra Póstur!
Það er ekki að okkur íslend-
ingum að spyrja; hvaða skíthæll
sem er getur gert okkur að al-
gjörum bavíönum! Nú síðast
skriðum við enn einu sinni fyrir
Ameríkönum og látum þá kúga
okkur til að merkja eitrið sjálf-
ir. Svo var frá því skýrt opinber-
lega, að „viðunandi lausn“ hefði
fundizt á deilunni. Auðvitað átt-
um við að neita að kaupa eina
einustu sígarettu frá þeim þang-
að til þær komu merktar eins og
landslög fyrirskipa. Bretinn
merkir jú handa okkur pakkana,
enda eru það mannlegar verur
en ekki stirð vélmenni tækni-
þjóðfélagsins.
Vertu svo blessaður.
S. H. S.
í rauninni er þetta spurning um
það, hvort við getum „skikkað“
bandariska tóbaksframleiðendur
til að fara að okkar lögum, enda
segir mér svo hugur, að aldrei
hafi verið til neinir samningar
um það, að sígarettumar skuli
koma með þessari viðvömn til
landsins. Þvi má álykta að við
megum sennilega nokkuð vel
una við málalok enda hefði það
getað haft ákaflega slæmar af-
leiðingar hefðum við neitað að
kaupa af þeim „eitrið“. Eg meina
— efnahagslegt sjálfstæði okkar
er ekki það stöðugt.
Happdrætti
Til Vikunnar!
Síðastliðinn desember var ég
staddur í Reykjavík og keypti
þar nokkra happdrættismiða til
styrktar góðum málefnum. En
vinningsnúmerin hef ég hins
vegar aldrei séð. Gætuð þið ekki
birt þau númer sem upp komu
hjá eftirtöldum aðilum? Það átti
að draga rétt fyrir síðustu jól. f
þessum þremur happdrættum
keypti ég 1—2 miða í hverju:
Happdrætti Krabbameinsfé-
lagsins, Happdrætti Sjálfsbjarg-
ar og Happdrætti Styrktarfélags
vangefinna.
Með beztu kveðjum og kær-
um þökkum fyrir allt gott.
Gamall sjómaður.
Ég skal gefa þér virkilega gott
ráð: Hringdu í aðalstöðvar þess-
ara happdrætta og þar færðu að
vita allt um þessi mál.
Svar til Maju:
í alvizku Póstsins getur hann
því miður ekki hjálpað þér á
annan hátt en þann, að vísa þér
á skrifstofur skipaafgreiðslu hér
í höfuðborginni, og þá myndi ég
álíta Togaraafgreiðsluna einna
vænlegasta. Með þessum upplýs-
ingum sem þú hefur, ættu þeir
áreiðanlega að geta hjálpað þér.
Og fyrirgefðu svo að við skulum
ekki hafa svarað þér strax.
Gamaldags mamma
Elsku Póstur!
Ég þarf að leita ráða hjá þér.
Ég hef gert það áður og ráðið
sem þú gafst mér þá var ágætt.
Jæja, ég er 14 ára og er talin
frekar bráðþroska. Mamma mín
er komin á frekar háan aldur og
er mjög gamaldags. Til dæmis
ef ég ætla í partý, verð ég alltaf
að ljúga mig út: segjast ætla út
að rúnta. En ef ég segist ætla í
partý, þá verður hún hreint og
beint vitlaus. Ef strákar hringja
í mig, hangir mamma yfir mér
á meðan ég er i símanum, og þó
segist hún alveg treysta mér.
Fari ég í bíó eða á böll, er ég
farin að bíða eftir því að hún
segi „Þú kemur sko beint heim!“
Ég get aldrei farið neitt á eftir
með krökkunum. Og ég tala nú
ekki um ef ég er með strák á
föstu, þá spyr hún mig sojörun-
um út og passar mig ennþá bet-
ur en áður.
Þú vilt kannske minna mig á
lögin, en þá skal ég segja þér að
lö^ean sést ekki úti eftir klukk-
an tíu og það fer enginn eftir
þessum löeum.
Hvað á ég að gera til að láta
hana skilia að ég get vel passað
mig siálf? Ég er búin að seaia
henni það, en það bara virðist
ekki duga. Og svo er eitt enn:
Eg er hrifin af strák sem reyndi
við mig í fyrra, en þá vildi ég
ekkert með hann hafa og fór
illa með hann. Núna er ég alveg
veik fyrir honum, en hvað á ég
að gera til að vekja áhuga hans
aftur?
Finnst þér ekki að í siónvarp-
inu ætti að vera þáttur þar sem
talað væri við mæður og börn,
og reynt að láta fullorðna fólkið
skilia okkur unglingana. Ég heM
að það væri þarfara en margt
annað sem sýnt er. Að lokum
þakka ég kærlega fyrir allt efni
VIKUNNAR og vona að þú svar-
ir mér.
Guðrún.
P.S. Hvernig er skriftin?
Sjáffu nú til, Gunna mín. Þaff er
ekki nóg aff fullorffna fólkiff
skilji unglingana — unglingarn-
ir verffa að skilja fullorffna fólk-
iff líka. Þess vegna skaltu reyna
aff setja þig í spor móffur þinnar
og sjá hver útkoman verffur. En
6 VIKAN 46 tbl