Vikan


Vikan - 13.11.1969, Page 41

Vikan - 13.11.1969, Page 41
ist. Hann hefur alltaf átt ómerki- lega menn fyrir vini, menn sem eru sjúkir og illgjarnir. Hugs- aðu þér bara að geta þola'ð ná- unga eins og Hans Jæger. Og fleiri slíka. Það er ekki hægt að treysta manni, sem umgengst slíkt fólk. Æ, láttu þessar ávítur ekki fara neitt lengra. Ég hef jú ekki kvartað undan Ibsen áður, hvorki við þig né neinn annan. En þú getur sagt Sigurði þetta alveg eins og það er. Hann er svo heiðarlegur og gáfaður maður, og ég verð alltaf glaður, þegar ég hitti hann. Þinn faðir og vinur, Björnstjerne Björnsson." ÓVEÐRINU SLOTAÐI og haust- ið 1892 var ákveðið, að brúðkaup okkar skyldi fara fram. Faðir minn skrifar Ibsen og býður honum að koma til Aulestad. Hann segir meðal annars: „Kæri vinur: Brúðkaupið er ákveðið þann 11. október og við Karolina höf- um þann heiður og gleði að bjóða ykkur hingað.... Það spyrst ef þið komið ekki, og krakkanna vegna má það ekki gerast. . . . Aðeins nánustu ætt- ingjar verða viðstaddir. .. . Við munum reyna af fremsta megni að taka vel á móti ykkur. ... “ Eins og sést á þessu bréfi er nú allt fallið í ljúfa löð. Foreldrar mínir hafa heimsótt Ibsens-hjón- in í Kristíaníu og fengið hlýleg- ar móttökur. Mikil voru því von- brigðin, þegar Ibsen sendi afboð rétt fyrir brúðkaupið. Hann var orðinn veikur. En frú Ibsen kom ásamt bróður sínum, Herman Thoresen, hæstaréttarlögmanni. Presturinn Konow vígði okkur á skrifstofu föður míns 11. októ- ber 1892. Þar með hafði rætzt draumur ungu stúlknanna, Sús- önnu Thoresen og Karoline Keimers: Sonur annarrar var kvæntur dóttur hinnar. Og Hen- rik Ibsen hafði reynzt sannspár, er hann sagði við konu sína eft- ir heimkomuna frá Schwaz, en þar sá hann mig í fyrsta sinn: Nú hef ég séð eiginkonu Sigurð- ar. ... Við bjuggum síðan í Kristian- íu og heimsóttum þess vegna Ib- sens-hjónin mjög oft. Fyrir mig var heimili þeirra eins og nýr og einkennilegur heimur. Á heimili okkar í Aulestad ríkti jafnan líf og fjör, en hjá Ibsen var allt grafkyrrt og hljótt. Hið andlega líf var raunar engu síð- ur öflugt á þessu heimili en á Aulestad, þótt hið ytra form væri gerólíkt. ííg var líka svo ung þá og ótalmargt, sem ég fékk ekki skilið. Ég var vön öðr- um aðstæðum og öðru fólki, t. d. föður mínum, sem trúði á allt og alla, trúði því sem maður sagði honum, hvort sem það var gott eða illt. Hann trúði á mennina almennt, bæði þá sem sögðu satt og þá sem lugu. En nú þurfti ég að venjast Henrik Ibsen, sem trúði alls engu, sem honum var sagt. Ég minnist þess, er ég kom stundum til þeirra úr bænum, hafði nýjar fréttir á hverjum fingri og sagði hreykin frá. Hen- rik Ibsen sat kyrr hjá og hlust- aði. Loks sagði hann: — Þú skalt ekki trúa einu orði af því sem fólkið blaðrar. Það er allt saman tóm lygi. Ég gat varla leynt vonbrigð- um mínum, en þó skal viður- kennt, að oft hafði Ibsen á réttu að standa hvað þetta senrti. Það var einkennilegt hversu Ibsen virtist lengi að skilja. Það varð að segja honum hverja sögu tvisvar sinnum. í fyrra sinnið hlustaði hann þegjandi á hana. f annað skiptið spurði hann í þaula spurði og spurði um hvert einasta smáatriði, sem mér fannst engu máli skipta. Þegar hann heyrði eitthvað, sem hann hafði sérstakan áuhga á, þá lyfti hann annarri augabrúninni og annað augað í honum virtist miklu stærra en hitt. En stuttu síðar spratt hann kannski á fætur og fór inn í vinnuherbergið sitt. Hann var sívinnandi, enda var það ekkert smáræði, sem hann afkastaði um ævina. Eftir heimkomuna skrif- aði hann „Bygmester Solness“ og skömmu eftir brúðkaup okk- ar Sigurðar var hann önnum kafinn við að semja leikritið „Lille Eyjolf“, sem hann lauk við tveimur árum síðar. En hann hafði ýmsu öðru að sinna en semja leikrit sín. Þegar farið var að þýða verk hans á önnur tungumál, varð hann að standa í stöðugum bréfaskriftum við þýðendur, útgefendur og leikstjóra. Umboðsmenn lista- manna, eins og nú tíðkast, voru þá ekki til. Hann varð að gefa leikurum, leikstjórum og þýð- endum margvíslegar upplýsing- ar og leiðbeiningar — og allt bréflega. Það streymdu til hans handrit frá ungum höfundum, sem leituðu álits hans. Slíku sinnti hann mjög sjaldan. Hann taldi sig hafa annað við tímann að gera. Mjög oft varð hann að ferðast í allar áttir til þess að vera viðstaddur frumsýningar á leikritum sínum. Á bréfum frá honum sést, að hann varð að vera mikið í sam- kvæmum, þótt honum væri það þvert um geð. Fjölmargar sögur eru sagðar um Ibsen í veizlum, sem haldnar voru honum til heiðurs. Sérstaklega er veizlan á Grand 1891 fræg orðin. Bæði George Brandes og Thommensen ritstjóri hafa lýst geðillsku Ib- sens, meðan á borðhaldinu stóð. SÖGUSAFN HITCHGOCKS 10 SPENNANDI OG SKEMMTILEGAR SAKAMÁLASÖGUR Fæst á næsta sölustað. HILMIR HF. - SKIPHOLTI 33 POSTHOLF 533 - SÍMI 35320 - REYKJAVÍK ____________________________________/ 46. tbi. VIKAN 41

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.