Vikan


Vikan - 15.01.1970, Side 9

Vikan - 15.01.1970, Side 9
í myndinni á María í hlutverki Medeu að vaða eld á leið sinni að undirheimafljótinu Stýx. En sem María kom að eldinum, varð hún að gjalli og urðu menn að ganga undir henni afsíðis. Þótti kvenskörungurinn heldur setja ofan við þetta undanhald. Staðgengillinn hljóp þegar úr eldinum, klæði hans logandi. Aðstoðarmenn brugðu óðara við til hjálpar. Staðgengillinn, Paolo Chiappa, veltist um á gólf- inu, öskrandi af kvölum, meðan verið er að slökkva í honum. Það tókst, en hann skaðbrennd- ist. Já, sitthvað verður á sig að leggja fyrir list- ina. Ípí S - && § -vv: llllSÉÉflÉtÍÉlli . ' :: . Maríu Callas ætti ekki að þurfa að kynna; hún hefur svo áratugum skiptir ekki aðeins verið heimsfræg sem söngkona, heldur og einkum og sér í lagi fyrir samlíf þeirra Onassisar útvegsmanns. Þess utan hefur hún alltaf séð til þess að halda athyglinni vakandi með smáskandölum annað veif- ið, til dæmis grýtti hún einu sinni blekbyttu í for- stjóra Metropolitan-óperunnar í New York og öðru sinni sagði hún við tyrkneskan ráðherra, sem var eitthvað að þreifa fyrir sér hjá henni: „Ég vil ekki sjá yður.“ Nú ætlar hún að fara að leggja kvikmyndirnar fyrir sig, og byrjar með því að fara með aðalhlut- verkið í kvikmynd, sem ítalska filmskáldið Pier Paolo Pasolini er að gera um grísku goðsagna- og harmleikapersónuna Madeu. En þar hefur ekki allt gengið slysalaust, eins og meðfylgjandi myndir sýna. Við kvikmyndatökur eru alltaf til staðar staðgenglar, sem ætlazt er til að hlaupi i skarðið fyrir stjörnurnar og láti limlesta sig og drepa fyrir þær, ef svo bcr til í hættuleg- um atriðum. Staðgengill Callasar hljóp á eldinn, en líklcga heldur djarflega, því að samstundis kviknaði í skrúða hans.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.