Vikan - 15.01.1970, Blaðsíða 9
í myndinni á María í hlutverki Medeu að vaða eld á leið sinni að undirheimafljótinu Stýx. En
sem María kom að eldinum, varð hún að gjalli og urðu menn að ganga undir henni afsíðis.
Þótti kvenskörungurinn heldur setja ofan við þetta undanhald.
Staðgengillinn hljóp þegar úr eldinum, klæði
hans logandi. Aðstoðarmenn brugðu óðara
við til hjálpar.
Staðgengillinn, Paolo Chiappa, veltist um á gólf-
inu, öskrandi af kvölum, meðan verið er að
slökkva í honum. Það tókst, en hann skaðbrennd-
ist. Já, sitthvað verður á sig að leggja fyrir list-
ina.
Ípí S - && § -vv:
llllSÉÉflÉtÍÉlli
.
'
::
.
Maríu Callas ætti ekki að þurfa að kynna; hún
hefur svo áratugum skiptir ekki aðeins verið
heimsfræg sem söngkona, heldur og einkum og sér
í lagi fyrir samlíf þeirra Onassisar útvegsmanns.
Þess utan hefur hún alltaf séð til þess að halda
athyglinni vakandi með smáskandölum annað veif-
ið, til dæmis grýtti hún einu sinni blekbyttu í for-
stjóra Metropolitan-óperunnar í New York og öðru
sinni sagði hún við tyrkneskan ráðherra, sem var
eitthvað að þreifa fyrir sér hjá henni: „Ég vil ekki
sjá yður.“
Nú ætlar hún að fara að leggja kvikmyndirnar
fyrir sig, og byrjar með því að fara með aðalhlut-
verkið í kvikmynd, sem ítalska filmskáldið Pier
Paolo Pasolini er að gera um grísku goðsagna- og
harmleikapersónuna Madeu. En þar hefur ekki allt
gengið slysalaust, eins og meðfylgjandi myndir
sýna.
Við kvikmyndatökur eru alltaf til staðar staðgenglar, sem
ætlazt er til að hlaupi i skarðið fyrir stjörnurnar og láti
limlesta sig og drepa fyrir þær, ef svo bcr til í hættuleg-
um atriðum. Staðgengill Callasar hljóp á eldinn, en líklcga
heldur djarflega, því að samstundis kviknaði í skrúða hans.