Vikan - 26.02.1970, Síða 3
9. tölublað - 26. febrúar 1970 - 32. árgangur
í NÆSTU VIKU
Willy Brandt, hinn nýi kanslari Vestur-
Þýzkalands, verður á dagskrá hjá okkur i
næsta blaði. Þegar jafnaðarmenn
unnu kosningasigur sinn í fyrra og Brandt
tók við völdum, var það í fyrsta
skipti síðan 1930, að jafnaðarmenn
fara með stjórnartaumana í Vestur-Þýzkalandi.
Margir hyggja gott til þessara þáttaskila og
vænta sér mikils af Brandt og mönnum hans.
Eins og tilkynnt er í þessu blaði hefst
Unga kynslóðin 1970, fegurðarsamkeppni
Vikunnar og Karnabæjar, í næsta
blaði og verða þá birtar myndir af tveimur
fyrstu þátttakendunum. Jafnan ríkir
mikil eftirvænting í sambandi við þessa
keppni, sem þykir hafa tekizt
prýðilega þrjú undanfarin ár.
Við höldum áfram að segja ævisögu banda-
ríska rithöfundarins og ævintýramannsins
Jack London. Þessir þættir um hina
viðburðaríku og óvenjulegu ævi hans
hafa mælzt vel fyrir og munum
við halda þeim áfram um sinn. í næsta
blaði segir frá gullleitarmanninum
Jack London og Klondyke-ævintýri hans,
sem var ærið sögulegt.
I ÞESSARI VIKU
Skákin setti svip sinn á félagslif
höfuðborgarinnar í byrjun þessa mán-
aðar, og var ástæðan til þess að
sjálfsögðu alþjóðaskákmótið, sem hér var
haldið. Mót þetta var mikið sótt og almennur
áhugi um úrslit þess, sem sannarlega urðu
gleðileg fyrir Island: Sigurvegari varð
Guðmundur Sigurjónsson. Vig birtum mynda-
opnu frá skákmótinu i þessu blaði.
Vikan og Karnabær hafa
undanfarin þrjú ár efnt til fegurðar
samkeppni meðal ungs fólks og
kosið fulltrúa ungu kynslóðarinnar ár
hvert. Akveðið er nú að efna til slikr-
ar keppni einnig i ár, enda hafa hinar fyrri
tekizt prýðilega. Við segjum nánar
frá keppninni „Unga kynslóðin 1970" á bls. 9.
Það þykir alltaf tiðindum sæta, þegar
fleiri en þrjú börn fæðast í einu.
Skömmu fyrir áramótin var konu nokkurri
i Englandi spáð því, að hún mundi
eignast sjöbura. Læknunum skjátlaðist þó of-
urlítið, þvi börnin urðu ekki nem sex.
Eitt þeirra iézt skömmu eftir fæðinguna,
en hin fimm lifa við góða heilsu.
Sjá grein og myndir í þessu blaði.
FORSlÐAN
svipmyndir frá
og fleira.
minnir okkur á sitthvað af fjölbreyttu efni þessa blaðs, svo sem
skákmótinu, táningakeppnina, ítarlega grein um skaðsemi eiturlyfja
í FULLRI ALVÖRU
Ekkert keimili íkelt
Eiturlyfjaneyzla er nú mjög á dagskrá. í síð-
asta tölublaði Vikunnar var birt fjögurra siðna
efni um þetta alvarlega mál, þar sem reynt var
að fræða lesendur um skaðsemi hinna ýmsu
eiturlyfja og alveg sérstaklega rætt um hin nýju
lyf, sem breiðast út um heiminn eins og eldur
í sinu, marijúana og hashish. Með þessu móti
vill VIKAN leggja srtt af mörkum til þess að
berjast gegn notkun eiturlyfja hér á landi. Einnig
má benda á það nýmæli ( sambandi við Ungu
kynslóðina 1970, fegurðarsamkeppni Vikunnar
og Karnabæjar, að helga sér baráttumál hverju
sinni. Fer vel á því í þetta sinn að berjast gegn
eiturlyfjaneyzlu meðal islenzkra unglinga. Eng-
um ætti lengur að blandast hugur um, að hættan
vofir yfir íslenzkri æsku, og ef ekki verður brugð-
ið skjótt við, kann ástandið að verða hér á landi
svipað og í nágrannalöndum okkar.
En mesta athygli hefur frumkvæði unglinganna
sjálfra vakið. Ungt fólk boðaði blaðamenn á sinn
fund nýlega og skýrði þeim skorinort frá ástand-
inu í þessum efnum, eins og það er þegar orðið.
Og skyldi nokkurn hafa grunað, að eiturlyfja-
neyzlan væri orðin jafn almenn og þetta unga
fólk komst að raun um, eftir að hafa kynnt sér
málið? Jónas Jónsson, söngvari í hljómsveit-
inni Náttúru, sagði meðal annars:
„Við verðum meira og minna varir við þetta
á hverjum einasta dansleik, sem við spilum á.
Það er kannski misjafnt eftir húsum. Það eru
jafnvel stórir hópar undir áhrifum af þessu,
heilu borðin undirlögð oft og tíðum."
„Ekkert heimili er lengur óhult", sagði unga
fólkið á blaðamannafundinum og ætti það að
vera næg ástæða til þess, að allir sem einhvers
eru megnugir liðsinntu því í baráttunni gegn
vágestinum.
G.Gr.
VIKAN Útgefandl: Bllmlr hf. Ritstjóri: Gylfi
Gröndal. Blaðamenn: Daeur Þorleifsson, Matthildur
Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlitsteiknlng: Hall-
dóra Halldórsdóttir. Auglýsingastjóri: Jensína Karli-
dóttir. — Ritstjórn, auglýslngar, afgreiSsla og drelf.
ing: Skipholti 33. Símar 35320 — 35323. Pósthólf 533.
VerS í lausasölu kr. 50,00. ÁskriftarverS er 475 kr.
fyrir 13 tölublöS irsfjórSungsIega, 900 kr. fyrir U
tölubiöS misserlslega. ÁskrlftargjaldlS grelSist fyrir-
fram. Gjaldd. eru: Nóvember, febrúar, maf og ágúst.
9. tbi. VITCAN 3