Vikan - 26.02.1970, Síða 8
FRÁ RAFHA
NÝ ELDAVÉL GERÐ HE6614. 4 hellur, þar af 1 með stiglausri
stillingu og 2 hraðsuðuhellur, stór ofn, 56 lítra, yfir og undirhiti
fyrir steikingu og bökun, Ijós í ofni. Fæst með eða án glóðar-
steikar elements (grill). — Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð.
VIÐ ÓÐINSTORG - SÍMI 10322
Þér sparié með áskrift
1IIKAN
Skípholti 33 - sími 35320
MIG
DREYMDI
Epli og egg
Kæri draumráðandi!
Fyrir stuttu dreymdi mig dá-
lítið skrýtinn draum sem mig
langar til að biðja þig að ráða.
Hann er á þessa leið:
Mér fannst ég koma gangandi
að húsinu heima. Úti var þoku-
súld og fannst mér þvottur
hanga úti á snúru, en eiginlega
gaf ég honum engan gaum nema
hvað ég tók eftir gallabuxum af
ca. 4—5 ára barni. Svo kem ég
inn í ganginn heima. Þar kemur
mamma á móti mér og biður hún
mig að elda matinn fyrir sig þar
eð hún væri að þvo þvott. É'g
var treg til og fannst mér sem
ég þyrfti endilega eitthvað að
fara. Þá fannst mér mamma
reiðast og taka epli og henda í
mig, svo mörgum að ég gat engri
tölu á komið. Ekki fann ég til
neins samvizkubits og fannst
mér það skrýtið. Ég hugsaði
bara með.mér að hún mætti víst
henda eins og hún vildi, en epl-
in fengi hún ekki aftur. Ég ætla
svo að fara að tína þau upp, en
þá fannst mér þau vera orðin
svo skemmd að ég lét þau eiga
sig.
Því næst sat ég við eldhús-
borðið heima. Á borðinu var fat,
með 3 steiktum eggjum á, og
dáðist ég mjög að því hve fal-
leg þau voru, og vel steikt. Eitt
var hringlaga en hin voru rétt-
hyrnd í laginu. Svo fannst mér
pabbi koma til mín mjög bros-
hýr og spurði hann mig hvort ég
vildi ekki borða eggin. Ég var
eins og snúið roð í hund og
anzaði engu, og fannst mér pabbi
og mamma vera að gera grín að
mér. Ekki voru þau samt vond.
Ég var ekkert nema þrjózkan og
sat grafalvarleg, þótt undir niðri
væri mér hlátur í hug. Að lok-
um gátu þau svo fengið mig til
að brosa. og þá vaknaði ég.
P.S. Stundum hefur mig
dreymt að ég sé að fljúga líkt
og fugl, ýmist ein eða með öðr-
um. Getur þú sagt mér hvað það
þýðir?
Ég vonast svo eftir svari sem
fyrst.
Ein þerdreymin.
Þvettur boðar tíðindi, sem ekki
falla öllum í geð. Hins vegar eru
bæði epli og egg góð tákn í
draumi. Ógiftu fólki er það fyr-
ir giftingu að dreyma epli, og
það boðar gæfu að dreyma egg.
Að borða egg í draumi táknar
gleðitíðindi og fjölgun á heimil-
inu og fer þá barnafjöldinn eftir
tölu eggjanna Við ráðum draum-
inn á þann hátt, að þú munir
senn festa ráð þitt. Móðir þín
verður í fyrstu mótfallin ráða-
hagnum, en þá kemur faðir þinn
til hjálpar og kippir öllu í lið-
inn. Allir aðilar verða sem sagt
ánægðir með maka þinn og
hjónaband ykkar fyrir rest. Og
auðvitað eignizt þið þrjú börn.
— Það táknar frægð, aðdáun eða
háa stöðu í þjóðfélaginu að
dreyma að maður sé að fljúga í
lofti, hvort heldur er á vængjum
eða í flugvél.
Þrír hringar
á sömu hendi
Kæri draumráöandi!
Fyrir nokkru dreymdi mig eft-
irfarandi draum, sem mig mundi
mikið langa til að fá skýringu á.
Mér fannst ég vera send á
vegum skrifstofunnar þar sem ég
vinn að sækja hring, sem ein-
hver átti og var í viðgerð. —
Frænka mín að nafni Guðlaug
þótti mér vera með mér. Þegar
komið var að staðnum opnaði
ég hurð og sá inn í mjög stórt
herbergi og virtist okkur enginn
vera þar. Þegar við ætluðum að
fara þá sjáum við tvo menn og
kemur annar á móti okkur og
er með hinn umrædda hring.
Mér fannst hringurinn vera sá
fallegasti, sem ég hef séð, með
stórum grænum steini og það
glitraði af honum í allar áttir.
Mér fannst ég taka hringinn og
láta hann á fingur mér en hann
var of stór á baugfingur svo ég
setti hann á löngutöng. Þá tók
ég eftir því, að ég var komin
með tvo aðra hringa sitt hvorum
megin við hinn, annan fékk ég í
fermingargjöf frá móður minni
og er hann með hvítum steini,
hinn fékk ég í trúlofunargjöf frá
eiginmanni mínum og er hann
með grænum steini. Þá tekur
maðurinn um hönd mína með
öllum þremur hringunum og seg-
ir: „Ég sé hér dálítið sorglegt.
Þú munt einungis eignast eitt
barn, sem mun deyja ungt, —
kringum 19—30 ára.“ Við þetta
hrökk ég upp og var ólýsanlega
hrygg.
Eins barns móðir.
Þessi draumur er sannarlega svo-
lítið óliugnanlegur. En ekki er
allt sem sýnist í draumi og stund-
um merkja þeir þveröfugt viS
*»ð'i sitt. eins og kunnugt er. —
Hringur með grænum steini er
hamingiutákn í draumi, svo að
við teljum af og frá, að þú mun-
ir missa einkabarn bitt. Ekki vit-
um við hve gömul þú ert né barn
bitt. en við snáum því, að þegar
**n bitt er orðið fullorðið muni
mikil brevting verða á högum
þínum. Þessi breyting verður
siálfri þér til ánægju, en barni
þínu mun líka hún illa.
8 VIKAN
9. tbl.