Vikan - 26.02.1970, Qupperneq 12
Hættan vofir yfir
íslenzkri æsku
urinn af slúdentum þar hafi
að minnsta kosti reynt mari-
júana. Könnun, sem gerð var
árið 1967, sýndi, að 40%
nemenda í Yale-háskólanum
reyktu marijúana og ári síð-
ar kom í ljós, að helmingur-
inn af nemendum Harvard-
háskóla, sem er virðulegasta
menntastofnun í Bandaríkj-
unum, reyktu marijúana.
Á síðasta ári voru 50.327
manns handteknir í Kaliforn-
íu sakaðir um að hafa neytt
marjúana, og af þessum stóra
hópi var þriðjungurinn undir
átján ára aldri.
Þessar tölur sýna svo að
ekki verður um villzt hina
gífurlegu útbreiðslu marijú-
ana í Bandaríkjunum. En
það sem verst er, er viðhorf
almennings til þessa mikla
vanda. Sú skoðun er útbreidd,
að marijúana sé alls ekki
iiættulegt lyf og margir vilja
leyfa neyzlu þess, rétt eins og
tóbaks og áfengis. Lyfið er
enn svo nýtt af nálinni, að
það hefur ekki verið rann-
sakað til fullnustu vísinda-
lega, en unnið er kappsam-
lega að slíkri rannsókn og
verður vonandi ekki langt að
bíða, þar til endanlega verð-
ur hrakinn sá misskilningur,
að þessi stórhættulegu lyf
séu skaðlaus.
Fyrir skömmu kom út bók
um eiturlyfjamál eftir Norð-
manninn Karl Evang. Hann
er yfirmaður heilbrigðiseftirj
litsins í Noregi og nýtur mik-
ils álits meðal heilbrigðisyf-
irvalda bæði í heimalandi
sínu og erlendis. Hann hefur
starfað á vegum Sameinuðu
þjóðanna og verið formaður
nefnda, sem hafa rannsakað
eiturlyfjamál. í þessari bók
sinni segir Karl Evang með-
al annars:
„Það er fullkomlega ljóst,
að alþjóðaglæpahringur með
margra ára reynslu í smygli
og deyfilyfjaverzlun hefur
hafizt handa um sölu og út-
breiðslu marijúana á nýjum
mörkuðum í Bandaríkjun-
um, Kanada og Vestur-Ev-
rópu.
Ungu kaupendurnir eru
ginntir af áróðri sölumann-
anna.. Til dæmis segja þeir:
„Marijúana er ekki hættu-
legt og því engin hætta á, að
menn venjist á notkun þess,
þótt neytt sé. Þú verður fé-
lagslyndur og lærir að
þekkja sjálfan þig. Þú lcynn-
ist nýjum viðhorfum og losn-
ar undan þvingandi fjötrum
vanans.“
Allar þessar fullyrðingar,
sem settar eru fram af eitur-
lyfjasölunum á mismunandi
hátt, hafa ekki við rök að
styðjast. Sú fullyrðing, að
marijúana sé hættulaust eru
bein ósannindi. Marijúana er
liættulegt nautnalyf, sem ger-
ir menn háða sér á stuttum
tíma og er mjög auðvelt að
útbreiða það.
Evang segir, að marijúana
og hashish myndu eyðileggja
allt samlíf og leggja atvinnu-
vegi Norðurlandanna í rúst,
ef þessi eiturlyf væru notuð
í sama mæli og tóbak og vín
í þessum löndum.
Viðvaranir í sama dúr hafa
komið fram í Bandaríkjun-
um. Forráðamenn háskóla og
menntastofnana, sem þekkja
vandamálið hetur en aðrir og
hafa það fyrir augunum
næstum daglega, eru mjög
uggandi um þessa þróun.
Þeir sem svartsýnastir eru
hika ekki við að fullyrða, að
bandarísk æska fljóti sofandi
að feigðarósi, og stór hluti
liennar glatist, ef elcki verði
gripið til róttælcra ráðstaf-
ana.
Dr. Dana L. Farnsworth,
yflirmaður heilbrigðismála
við Harvard-háskóla, maður
sem hefur áratuga reynslu í
starfi sínu og gjörþekkir and-
legt og líkamlegt ástand
bandarískrar slcólaæsku, full-
yrðir, að hér sé á ferðinni al-
varlegri hætta en nokkurn
Framhald á bls. 40
Milljón króna sekt og sex ára
fangavist
Góðu heilli virðast islenzk
stjórnvöld ætla að taka hugs-
anlegt eiturlyfjavandamál
mjög föstum tökum og reyna
eftir mætti að koma í veg fyr-
ir, að eiturlyfjaneyzla verði
jafn alvarlegt vandamál hér
og í ýmsum nágrannalöndum
okkar. Á Norðurlöndum hefur
verið talið nauðsynlegt að
setja miklu strangari refsingu
við brotum á eiturlyfjalögun-
um en áður var og er sama
stefna mörkuð hér í þessum
efnum í frumvarpi, sem nú
bíður afgreiðslu á alþingi. f
frumvarpinu er gert ráð fyrir,
að refsing vegna stórfelldra
brota á lögunum verði fjár-
sektir allt að einni milljón
króna eða varðhald og fang-
elsi allt að sex árum.
Frumvarp þetta er samið á
vegum dóms- og kirkjumála-
ráðuneytisins í samráði við dr.
Þorkei Jóhannesson, prófessor
í lyfjafræði við læknadeild
Háskóla íslands og ráðunaut
heilbrigðisstjórnarinnar í
lyfjamálefnum.
í fyrstu grein frumvarpsins
segir: Óheimilt er að hafa
undir höndum eða varðveita,
veita viðtöku, gefa, afhenda,
selja eða verzla með hvers
konar lyf og efni, sem ákvæði
þessara laga taka til og- ólög-
lega eru flutt inn eða fram-
leidd.
f reglugerð, sem dómsmála-
ráðuneytið setti 28. nóvember
sl. um ávana og fíknilyf eru
upptalin þau efni, sem lögin
ná þegar til og að auki efnin,
sem nefnd eru í frumvarpinu,
en þau eru: Cannabis (mari-
júana og hasihsh), LSD,
meskalín og psílócybin, svo og
hvers konar blöndur og sam-
setningar, sem þessi efni hafa
að geyma.
f athugasemdum um laga-
frumvarpið, sem nú hlýtur
meðferð alþingis, segir, að í
lögunum um tilbúning og
verzlun með ópíum og fleira
frá 1923 og breytingu á þeim
frá 1968, sé ekkert hann við
vörzlu eða meðferð þeirra
efna, sem lögin taka til, eða
úrskurða megi að falli undir
ákvæði þeirra og ólöglega eru
flutt eða framleidd. Sömu-
leiðis séu ekki í lögunum
ákvæði um upptöku slíks
varnings eða ágóða af verzl-
un með hann. Ennfremur er
á það bent, að refsiákvæði
laganna séu orðin úrelt.
í lagafrumvarpinu eru
refsiákvæðin miklu strangari
en áður var. Lögð er fangels-
isrefsing við stórfelldum hrot-
um og hámark sett sex ár.
Þetta er í samræmi við refsi-
ákvæði nágrannalandanna við
sams konar brotum, en þar
hafa slík ákvæði verið sett í
lög á undanförnum árum. Það
er að sjálfsögðu hin óheilla-
vænlega þróun í meðferð
ávana- og fíknilyfja í næstu
nágrannalöndum okkar, sem
gert hefur að verkum, að tal-
ið er nauðsynlegt að setja svo
ströng refsiákvæði við brot-
um á lögunum — til þess að
reyna að vinna bug á vágest-
inum.
☆
12 VIKAN 9 tbl