Vikan


Vikan - 08.10.1970, Blaðsíða 22

Vikan - 08.10.1970, Blaðsíða 22
Allt er stöðugum breytingum undirorpið. Umhverfi okkar breytist á hverjum degi, en það er ekki fyrr en við rekumst á nokkurra ára gamlar myndir, sem við gerum okkur Ijóst, hvað hefur í raun og veru gerzt. Hí- býli manna breytast, ekki að- eins hið ytra, heldur einnig hið innra. í seinni tíð hafa augu arkitekta mjög beinzt að börn- um og aðbúnaði þeirra á heim- ilunum. Segja má, að bylting sé orðin í húsbúnaði barna. Sú nýjung, sem mest hefur rutt sér til rúms i seinni tíð, er afar ein- föld: trékassar með handföng- um, sumir með tvær hliðar opn- ar. Komið hefur í ljós, að þetta einfalda leikfang er afar vinsælt hjá börnum. Þau geta unað við það lengi að byggja úr slíkum kössum og príla í þeim. Þeir hagsýnustu hafa einfaldlega orðið sér úti um ölkassa og mál- að þá í skærum litum: gula, rauða og bláa. Einnig hafa leiktæki á leik- völlum gerbreytzt, og mætti leikvallanefnd Reykjavíkur- borgar taka það til athugunar. Hér á landi hafa sömu leiktæk- in tíðkazt í áraraðir: rólur, sölt og rennibrautir. Erlendis hafa ýmiss konar nýtízkuleg tæki komið til sögunnar, eins og sjá má af myndum á þessari opnu. Fátt er mikilvægara í borgar- lífi nútímans en að huga sem bezt að aðbúnaði barnanna. Þau eru að vísu furðu klók að búa sér til sín leikföng sjálf, en þau leiktæki, sem fullorðna fólkið fær þeim í hendur, eru miklu eftirsóknarverðari. * Þrátt fyrir alla tæknina, er þaS einfaldleikinn, sem hrífur börnin mest. Það leikfang, sem nú er vinsælast erlendis, eru opnir kassar, ýmist úr tré eða plasti og gjarnan málaðir í skærum litum. Athafnaþrá barnsins fær útrás við að raða slíkum kössum saman á ótal vegu og príla í þeim endalaust. BYLTINGI ABBÚNABI BABNA Fátt er mikilvægara í borgarh'fi nútímans en að huga sem bezt að að- búnaði barnanna. Þau mega sízt af öllu gleymast í skipu- lagi stórborganna, og seint verður hlutur þeirra of góður.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.