Vikan - 08.10.1970, Page 49
geti orðið mjög góðir. Mér fannst
þeir til að mynda margfalt betri
•en flestar hljómsveitir sem mað-
ur heyrir í í Englandi þessa dag-
ana. Ég var sérlega hrifinn af
flautuleikaranum (Gunnari
Þórðarsyni). Hann gerði þetta
svo eðlilega og var ekki að reyna
að sýna einum eða neinum hvað
hann væri góður flautuleikari.
Trommuleikarinn (Ólafur Garð-
arsson) var einnig mjög góður
og sömuleiðis bassaleikarinn
(Rúnar Júlíusson), og til að vera
hreinskilinn, þá kom mér það
mjög á óvart að finna hljóm-
sveit sem þessa hér á íslandi.
Orgelleikarinn (Magnús Kjart-
ansson) var einnig góður, en
þetta orgel hans var hreint ægi-
legt. Ég hef aldrei séð orgel í
jafn slæmu ástandi. Sem orgel-
leikara var ég ekki tiltakanlega
hrifinn af honum, en mér fannst
hann mjög góður rythmagítar-
leikari.
— Hvað var það fyrsta sem
þér datt í hug þegar þú vissir
að þið væruð á leið til fslands?
— Það fyrsta sem mér datt í
hug var að flugvélin myndi far-
ast, svo hvort það væri ekki ægi-
lega kalt hérna og í þriðja lagi
hvernig áheyrendur við mynd-
um fá. Ég vissi ekki hvort þeir
yrðu eins og amerískir áheyr-
endur eða þá brezkir — nú eða
sambland af hvorutveggja. (f
greininni um hljómleikana hér
að framan segir Gösli svo álit
sitt á íslenzkum áheyrendum.)
Héðan förum við svo til London
og notum tvær næstu vikur til
hljóðritunar tveggja LP-platna.
Við erum þegar búnir með 8 lög
og eigum 16 eftir, og það er mitt
persónulega álit að þetta komi
til með að verða það bezta sem
nokkurntíma hefur komið frá
hljómsveitinni Kinks.
— Nú er ekki hægt að segja
að þið John Dalton séuð líkir
þeim þrem sem hafa verið í
hljómsveitinni frá upphafi. Þeir
eru allir áþekkir að sjá, en svo
komið þið allt í einu, báðir svart-
ir og mun síðhærðari en Davies-
bræðurnir og Mick Avory.
— Já, það er víst óhætt að
segja það, og rétt áður en ég
kom hingað var mér skipað að
fara til rakara og' láta klippa mig.
Það var umboðsskrifstofan okk-
ar í London sem stóð fyrir því,
þar sem einhver hringdi frá
Kaliforníu og fór að kvarta yfir
því að við værum hálf-óþokka-
legir að sjá. Ég lét klippa mig
— en það var ekki meira en
þumlungur eða svo.
(Við spjölluðum eitthvað um
Led Zeppelin og ég sagði honum
af hljómleikum þeirra hér í sum-
ar.) — Nú er Led Zeppelin á
toppnum: heldurðu að Kinks
geti náð þangað aftur?
— Já, mér finnst það mögu-
leiki. Ástæðan er sú að við höf-
um breytt um „andlit“ ef svo
má segja, og nú erum við að
færa eitthvað nýtt fram. Þetta
hefur verið þróunin, að „com-
mercial“ hljómsveitir hafa farið
út í framúrstefnu og það hefur
gefist vel. Ég veit ekki umhljóm-
sveitir eins og Love Affair, þeir
eru á allt öðrum „basis“, en við,
með snilling eins og Ray í broddi
fylkingar, ættum við að geta það.
Þá hefur Dave einnig samið
meira undanfarið en nokkru
sinni áður og hefur farið mjög
fram. Mick hefur tekið alveg gíf-
urlegum framförum; hann er
ekki bara trommari lengur, held-
ur músíkant. Hann hefur tekið
sóló á hljómleikum töluvert og
gerir það betur en margur ann-
ar. Það byrjaði þannig að við
vorum í Montreal í Kanada, og
einhver fábjáni tók allt kerfið
okkar úr sambandi. Mick var sá
eini sem hélt sínu striki og tók
alveg stórkostlegt sóló. Hann er
orðinn mikill jazzaðdáandi, og
það hefur verið töluvert áber-
andi í því sem hann hefur verið
að gera undanfarið. En senni-
lega verðum við að fara að lækka
örlítið í okkur; mér persónulega
finnst við farnir að spila of hátt,
og ég held að Ray sé á sama
máli.
— Hvernig viðtökur viltu fá
á hljómleikum? Óp og skræki?
— Nei, svoleiðis fer í taug-
arnar á mér. Það veltur eigin-
lega alveg á því hvernig skapi
ég er í þegar við spilum, hvern-
ig viðtökur mér þykja beztar. Ég
var til dæmis ánægður með við-
tökurnar sem ég fékk ásamt Trú-
broti í Glaumbæ í gærkvöldi, en
ég veit ekki hvort þær voru svo
góðar af því að við gerðum góða
hluti eða þá að það var vegna
þess að ég var þarna. (Það er
nú okkar persónulega skoðun að
flestir gestir hússins hafi klapp-
að fyrir Björgvin Halldórssyni,
sem sýndi það að hann er góður
munnhörpuleikari.) Ég man eft-
ir því að þegar við vorum í Kan-
ada þá sátu áheyrendur hreyf-
ingarlausir og gáfu ekki frá sér
nein merki um tilfinningar sín-
ar, og þegar við komum heim til
Eriglands lét ég það í ljós í blaða-
viðtali, að mér þætti lítið varið
í kanadíska áheyrendur. Viku
síðar kom bréf til blaðsins, frá
kanadískri stúlku, sem sagði að
þó fólkið sæti og væri ekki með
læti, þá þýddi það ekki að það
væri ekki ánægt. Ray varð að
biðja afsökunar fyrir mig, þann-
ig
— Hvers vegna fórstu upp á
svið í gærkvöldi? Var það vegna
þess að þig langaði til að spila
með þessum mönnum, eða var
það vegna þess að komu þinni
hafði ekki verið mikill gaumur
gefinn? •
— Ó, mér þykir gaman að
spila og með allskoriar fólki, svo
ég fór upp þessvegna. Það var
alls ekki ætlun mín að láta þera
neitt á mér. Ég á bara bágt með
að sitja kyrr. Nú er ég til dæm-
is að tromma hérna á borðið og
fljótlega stekk ég upp og leita
mér að sígarettu. (Gösli stökk
allt í einu upp, krafsaði tauga-
veiklunarlega í tösku og dró upp
sígarettupakka.. Um leið og hann
var búinn að kveikja í róaðist
hann.) Ég er frekar óstyrkur og
um leið og ég fer að spila, þá
róast ég, því þar með fæ ég tæki-
færi til að tjá tilfinningar mín-
ar. Þessvegna læt ég mér ekki
nægja að spila á hljóðfærið sjálft,
heldur fikta ég við magnarann
um leið og fæ þannig fram alls-
konar skemmtilega effekta. f
svopa tilfellum verð ég að spila
hátt. Öðruvísi fæ ég ekki — ja„
fullnægingu. Það er eitthvað
svoleiðis sem ég þarf. Aðalatrið-
ið er að ég hef gaman af- að
spila tónlist fyrir fólk við öll
tækifæri. Þá er mér sama hver
það er sem situr og hlustar á
mig, bara að ég hafi gaman að
því líka. En mér þykir það ákaf-
lega leitt ef fólk hefur haldið
mig vera að láta bera á mér,
þarna í gærkvöldi. Það var alls
ekki meiningin, en það hefur ef
til vill verið sjálfselskt af mér
— ég veit ekki hvort nokkur
hefur haft gaman af því.
— Hvað hefur slegið þig mest
í sambandi við dvöl þína hér á
íslandi?
— Dýrtíðin. Það er svo óskap-
lega dýrt að vera hér, að ég trúi
því ekki! Við höfum verið hér
tveir, ég og umboðsmaðurinn
okkar, og þó við höfum reynt að
lifa fremur ódýrt, þá er þetta
verra en Bandaríkin hvað dýr-
tíð snertir. Þess vegna held ég að
ég gæti ekki verið hér degi leng-
ur.
— Og í lokin langar mig til
að láta þig hafa eina gamla og
góða „klisju“; spurningu sem er
ein sú algengasta og útjaskað-
asta sem til er: Eitthvað sem þú
vilt segja við aðdáendur hér á
landi?
— Ja, eiginlega ekkert nema
að ég vona að þeir taki okkur
eins og við erum nú, en jafn-
framt að taka gömlu Kinks iíka,
ekki gleyma þeim. Persónulega
er ég mjög ánægður með músík-
ina okkar núna, og tel hana á
réttri braut. Þá hefur það kom-
ið mér þægilega á óvart að fólk
hér, svo langt frá umheiminum
viti svo mikið um það sem helzt
er að ske og að hér skuli vera
hljómsveit eins og sú sem ég
spilaði með í klúbbnum (Trú-
brot). Mick, Ray og Dave vissu
allir hvernig þetta er hér, svo
við hefðum ekki komið væru
þeir ekki ánægðir. En sem sagt,
það sem ég vildi sagt hafa, er
að ég vona að íslenzkir tónlist-
araðdáendur taki okkur eins og
við erum, þó svo að þetta sé
ekki sama hljómsveitin og kom
hér árið 1965 — heldur nýir
Kinks.
Hafi svo hver sína skoðun á
því sem Jón Gösli sagði um sjálf-
an sig, hljómsveitina Kinks og
annað.
ó.vald.
Ritvélar fyrir skólafólk
4 MISMUNANDI GERÐIR
ÁBYRGÐ, VARAHLUTA- OG VÍÐGERÐARÞJÓNUSTA
VERÐ FRÁ KR. 5.160
SENDUM GEGN PÓSTKRÖFU
HVERFISGÖTU 39 SÍMI 24130
41. tbi. VIKIAN 49