Vikan - 15.07.1971, Blaðsíða 28
Aldrei
aldrei
aldrei
þreytt,
hrædd,
veik
hún hafði orðið að venjast
breyttu mataræði og hafði jafn-
vel stundum ekki haft tíma til
þess að snæða.
„Það er synd að ónáða yður,
því að þér hljótið að vera dauð-
þreytt,“ sagði ég.
„Ég er aldrei þreytt."
Þarna kom þessi furðulega
staðhæfing, sem ég hafði lesið
áður en varla trúað. Hún sagði
þetta lágt og rólega og líkt og
þetta væri alveg sjálfsagt. For-
setafrúin var sannarlega óþreyt-
andi miðað við flest okkar. Hún
sat bein í sætinu og brosti til
mín. Það gat ekki að líta nein
þreytumerki fyrir neðan augun.
Og föt hennar og hárgreiðsla
litu alveg eins glæsilega út og
um morguninn, áður en hún
lagði upp í ferðina.
Er hún raunverulega aldrei
þreytt? Það er staðreynd, að
hún ferðast líkt og kona, sem
veit ekki, hvað orðið „þreytt“
þýðir. Hún hefur aldrei með sér
þernu né hárgreiðslukonu. Og
hún gengur ekki aðeins frá eig-
in fötum í ferðatöskurnar, held-
ur gekk hún einnig frá fatnaði
mannsins síns þangað til ný-
lega. „Áður fyrr var’ö ég að
gera það,“ segir hún. „Það voru
engir peningar til bess að hafa
þernur. Og nú get ég sjálf gert
■ þetta allt saman með lokuðum
augum. Æ, ég kann ekki við að
breyta þessu." Kannski kann
hún heldur ekki við tilhugsun-
ina um, að enda þótt þerna
mundi spara henni bæði tíma
og fyrirhöfn, þá mundi hún
einnig ræna hana þeirri ein-
veru, sem hún nýtur í þessum
ferðum. Þá gæti hún ekki leng-
ur verið út af fyrir sig.
Kona, sem getur með sanni
sagt: „Ég er aldrei þreytt,"
hlýtur að vera hughraust og
hlýtur að finna til stolts yfir
því að geta látið sér slíkt orð
um munn fara. Hún getur ekki
beðizt undan fyrirhöfn né skor-
azt undan ýmiss konar álagi,
eftir að hún hefur sagt slíkt orð.
Hún getur ekki farið fram á
samúð annarra. Og Pat Nixon
gerir það heldur ekki. Þessi yf-
irlýsing hennar og trú hennar á,
að sú yfirlýsing sé sönn, grund-
vallast líklega á reynslu hennar
sem ungrar stúlku, þegar hún
missti móður sína og varð að
annast veikan föður sinn og
hugsa jafnframt um yngri
bræður sína. Þá var hún í senn
nemandi og húsmóðir og einnig
framfærandi, því að hún varð
einnig að vinna utan heimilis-
ins. Þá hefur hún sjáifsagt sagt
við sjálfa sig: „Þú mátt ekki
vera þreytt. Það hvílir allt á
þér. Þú ert ekki þreytt.“
„GEFSTU ALDREI UPP“
Þegar ég reyndi að spyrja
hana um líf hennar sem ung-
lings og ungrar stúlku í Kali-
forníu, sagði hún bara: „Mig
langar ekki til þess að hugsa
aftur til þess tíma. Ég hef lagt
hann að baki.“
Og það er orð að sönnu. En
þau ár og árin þar á undan
gerðu hana einmitt að því, sem
hún er núna, þ.e. að konu, sem
er vön því að axla byrðar og
taka á sig ábyrgð án þess að
mögla.
Sem skólastúlka var Pat Nix-
Hér að ofan Sjáum við David Eisenhower
ásamt Nixon-fjölskyldunni. Síðan þessi
mynd var tekin hefur einn tengdasonur
bætzt við, Cox eiginmaður Patriciu.
A/lyndirs efst til vinstri er einmitt frá brúð-
kaupi Triciu og Cox. Forsetahjónin fagna
brúðhjónunum og eru umkringd af blaða-
Ijósmyndurum og sjónvarpsmönnum.
Hér til hægri er svo nærmynd af brúðhjón-
unum. Þau eru bæði fríð sýnum, ekki verð-
ur annað sagt. Sumum þykir fegurð þeirra
um of í ætt við „karamellu", eins og eitt
blaðið komst að orði.
A myndinni hér til vinstri sjáum við for-
setafrúna, Patriciu Nixon, á blaðamanna-
fundi. Eingöngu blaðakonur eru sendar á
vettvang, þegar forsetafrúin býður blöðun-
um til Hvíta hússins.
28 VIKAN 28. TBL