Vikan


Vikan - 10.01.1974, Síða 8

Vikan - 10.01.1974, Síða 8
Hrævareldur Þótt Margot væri horfin, var samt sem andi hennar orsakaði þetta hrollkalda andrúmsloft á Greystones. Ég rifjaði að- eins upp óþægilegar minningar og ein- manaleikinn varð hálfu verri.... day stóö þarna framini, al- klæddur. — Er allt í lagi hjá þér? spuríji hann. — Ég sef yfirleitt ekki vel og var að fá mér göngu i snjónum og þá sá ég ljósið hjá þér. Mér datt i hug, hvort þú hefðir orðið veik. Mér fannst ég verða að tala við hann og ég gat ekki látið hann standa fram á gangi. Ég opnaði dyrnar. — Komdu snöggvast inn, sagði ég. — Þaö er svolitið, sem mig langar til að spyrja þig að. Hann hikaöi aðeins. Ég greip vikuritið af náttborðinu og rétti honum það. Hann kom þá strax inn og lokaði dyrunum á eftir sér. — Hvar fékkstu þetta? spurði hann. — Ég kom með það. Ég sagði þér, að ég hefði fengið áhuga á Greystones. Þú sagðir mér i kvöld, að þú værir rithöfundur, svo mér datt i hug, hvort þú hefðir skrifað þessa grein. Það hefur einhver gert, sem er kunnugur málunum. Ég er viss um, að eng- inn úr McCabe fjölskyldunni hefði leyst svona frá skjóöunni. Hann gekk út að glugganum. — Ég þyrfti að hafa útiljós hérna bak við húsið. Það er reyndar úti- ljós við kofana, en það væri betra að hafa annað ljós við húsið. — Þú átt við það, að þú ætlir ekki að svara spurningu minni? sagði ég. — Hefur Julian séð þessa grein? Veit hann hver skrifaði hana? Hann sneri sér við, eins og hann væri að hugsa sig um. — Að sjálf- sögðu hefur hann séð hana. Hann bað mig að skrifa hana. Hann vissi að það átti að skrifa grein i þetta blað, og hann hugsaði, að ég gæti skrifað það sem rétt væri. Ég viðurkenni að mér var þetta mik- ið á móti skapi, þetta var ekki auðvelt hlutverk. Einhvern veginn létti mér tölu- vert við það, að Clay hefði ekki gert sig sekan um að fara á bak viö Julian. Clay var mjög hugsandi. — Hvað fannst þér um greinina? — Ég held þú hafir verið mjög sanngjarn, nema að þvi sem að Margot sneri. Ég býst við, að þú hafir ekki haft mikið dálæti á Margot. — Ég fyrirleit hana, viður- kenndi hann. — Ég get alls ekki syrgt hana. Ég reikna með, að eitthvað þvi likt hafi skinið i gegnum skrif min. — Varö Julian ekki reiður yfir þvi? — Ég veit þaö ekki. Hann var farinn til Maine og hann hefur aldrei orðaö þetta. Þú verður að minnsta kosti aö viðurkenna, að ég lagði mig i lfma til að hlifa stjúpbróður þinum, Stuart Parr- ish. Ég saup hreinlega hveljur af undrun. Hann hló lágt og kom svo til min, til að fá mig til aö setjast. — Svona nú, seztu nú og reyndu að taka þessu rólega. Ég ætlaði nú ekki að segja þér þetta svona snögglega. Ég vil ekki að þú hlaupir á brott. — Veit Julian hver ég er? Striðnisbrosiö var aftur komið i algleymi. — Ég vissi þetta, þegar þú hringdir út af auglýsingunni. Þess vegna sagði ég þér, að koma strax. En Julian veit þetta ekki. Hann vildi ekki lesa allt sem skrifað var þá og blöðunum var haldið frá Shan og Adriu. Ef Jul- ian vissi hver þú ert, þá hefði hann séð til þess að þú færir um hæl. Hann myndi aldrei þola að hafa... ja, hvaðgetum við sagt? —- njósnara, eða heldur þú það? —- Ég er aðeins að reyna að hjálpa bróður minum, sagði ég. — En hvað ætlar þú að gera? Hann bandaði frá sér með höndunum og breytti ekki um svip. — Ekkert, að minnsta kosti ekki eins og er. — En ef þú ert nú að vinna fyrir Julian... -- Þess vegna er fíetra að hafa þig þar, sem ég get haft auga með þér, til að vita hverju þú getur tekið upp á. Hann myndi alls ekki sætta sig við nærveru þina, en lik- lega er það mesti greiði, sem ég get gert honum. — En getur ekki verið hætta á, aö hann reki þig, ef hann veit hver ég er? Hann kemst að likindum að þvi. Clay hristi höfuðið. — Ég held að hann reki mig ekki. Og svo get- ur lika verið, að þá verði hann bú- inn að komast að þvi sanna. Og ef þér tekst að benda á rétta söku- dólginn, þá sér hann, að ég hefi alltaf haft á réttu að standa. Ég segi ,,ef”e en ég er hræddur um, að þeir hafi náð þeim rétta. — Nei!! Það er ekki Stuart! Það gæti aldrei verið hann! — Hvers vegna ekki? — Vegna þess, að ég þekki hann, ég þekki bróður minn. Hann gæti aldrei gert nokkuri lifandi veru mein. Og þess utan, þú varst sjálfur i bókaherberginu með honum, þegar slysið varð. Þegar Stuart gekk út, hefðir þú sem bezt getað farið gegnum dyrnar inn til Margot sjálfur. Þér hefði verið lófa lagið, að ýta stólnum fram af! — Heldurðu að það hafi farið framhjá rannsóknarmönnunum? spurði hann rólega. — En hvers vegna Stuart, en ekki þú? Ég hélt auðvitaö ekki, að það hefði verið Clay, ég var bara að reyna hann. — Vegna þess, kjáninn þinn litli, að dyrnar á milli bókaher— bergisins og herbergis Margot voru læstar. Það hefði verið möguleiki fyrir einhVern, að fara inn i dagstofuna og inn til Margot gegnum dyrnar þar á milli. En hinar dyrnar voru læstar og ég hafði engan lykil að þeim. Ég var i bókaherberginu, þegar hún hljóðaði og ég reyndi dyrnar, til að vita hvað væri um að vera. Ég gat það ekki, vegna þess að dyrn- ar voru læstar. Hver sem hefir komið til hennar, hefur farið ann- aðhvort gegnum dyrnar frá dag- stofunni eða þá að utan, upR á svalirnar eftir skábrautinni. Ég starði á hann. Ég h„fði ekki vitað um þessar læstu dyr, en það breytti samt engu fyrir mér. Það var einhver skýring og ætlaði mér að komast að þvi. Clay sagöi vingjarnlega: — Ég held aö þú sért þreyttari en þú heldur. Þú ættir að fara i rúmið. — Clay, sagði ég, áður t.. 1 ann opnaði dyrnar, — mér þykir leitt, að ég skuli hafa talað svona heiftarlega. Þetta hetur verið mjög erfiður dagur. Ég er nú ekki vön við svona laumuspil. Síuart vildi alls ekki, að ég færi hingað. Hann sagði, að það væri tilgangs- laust. — Hver veit, það gæti borið árangur. En ef þú ert að biðjast afsökunar á þvi að hafa dróttað þvi að mér, að ég hafi myrt Marg- ot, þá fyrirgef ég þér alls hugar. — Ég er fegin þvi, sagði ég. — Það gerir allt auðveldara. En Clay, það er svolitið, sem ég hefi ekki sagt þér, ég held að Emory viti lika hver ég er. Ég veit ekki hvernig, en hann veit það. En hann er nú samt ekki búinn að segja Julian frá þvi og það skil ég ekki. Ég gekk órólega um gólf. — Ég verð að komast að þvi, hvers vegna hann hefur ekki gert það. — Svo þar liggur hundurinn grafinn? Ég var að furða mig á þvi, hvers vegna þú varst svona óttaslegin, þegar þú komst inn i dag. Það er ekkert ósennilegt, að hann viti hver þú ert. Þú hefur farið nokkrum sinnum til fangels- isins, til að finna Stuart. Emory hefur oft farið þangað, til að tala við lögreglustjórann, sem hefur skrifstofu hinum megin við göt- una. Hann hefur verið á móti Stu- art frá fyrstu, en hvers vegna, er mér alls ekki ljóst. Ég hélt áfram að mæla gólfið. — Ég verðað komast að þvi, hvað hann hefur á móti Stuart! Clay, viltu hjálpa mér? — Þú ert hér að eigin ósk, en ég skal ekki segja Julian frá þér, að svo stöddu. En fyrst og fremst er ég á hans bandi, það á hann hjá mér. Hann opnaði dyrnar, fór út og lokaði hægt á eftir sér. Ég slökkti ljósið og skreið upp I rúm. Mér fannst ég vera i gildru meðal ó- vina og að ég ætti enga undan- komuleið. Ég svaf nokkuð fram- eftir morgni. Þegar ég vaknaði, hafði ég mestar áhyggjur af þessu há- degisverðarboði til Greystones. Shan myndi ábyggilega verða mér þrándur i götu, ef ég reyndi aö koma mér i mjúkinn hjá Adriu. Ég hafði fundið fyrir afbrýðisem- inni, sem kvaldi hana. Hún vildi halda eins konar eignarrétti yfir telpunni, enda fannst mér það vera það eina i fari hennar, sem var einlægt. Mér varð hugsað til Julians, sem var svo hræðilega einmana, að nokkru leyti útilokaður frá ti’.- trú dóttur sinnar, vegna þess, að hann var hræddur um að hún væri sek, en þráði samt ofar öllu aö fá vissu um að hún væri það ekki. Jafnvel þótt svo hefði ekki verið, langaði mig til að sinna þessu barni, ef ég gæti, en það var varla við þvi að búast, að mér tækist það, þar sem Shan var alltaf á verði. Þegar ég var komin á fætur, fór ég niður i borðstofuna. Ciay Davidson var hvergi sjáanlegur og ég vissi eiginlega ekki, hvað ég átti af mér að gera. Þar sem en*' inn virtist þurfa á aðsto* ’••’ni að halda, fór ég upp i bilinn og ók af stað, til aðhitta Stuart. Einu sinni •’nnþá sat ég fyrir framan járn- grindina og horfði á hann. Timinn var naumur og hann hlustaði eitt- hvað svo utangátta á það sem ég hafði að Segja, um það sem á daga mina hafði drifið, siðan ég hringdi til Clay Davidsons. — Ef Julian er kominn heim, þá kemur hann fljótlega að finna mig, sagði hann með svo miklu trúnaðartrausi. — Þessi njósna - starfsemi þin er kjánaleg og ekk- 3. HLllTI 8 VIKAN 2.TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.